Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2021, Blaðsíða 8

Bjarmi - 01.10.2021, Blaðsíða 8
| bjarmi | október 20218 Á tímum umskipta og örra breytinga leiða menn gjarnan hugann að því hvað breytist þegar kemur að stöðu kristinnar trúar og kirkju um víða veröld. Ein þeirra fyrirsagna sem tengjast trúmálum þessi misserin snýst um samdrátt kristindóms í Norður­Ameríku. Vestur­Evrópa er talin vera síðkristin eða hafa verið kristin og skoðanakannanir endurspegla minnkandi trú og trúariðkun og færri sem auðkenna sig með trú sinni. Þetta er þó ekki öll sagan, því töluverð umskipti hafa orðið á kristindómi frá norðri til suðurs sem endurspeglar gríðarlegan vöxt kirkna í löndum sunnan Sahara og í Austur­Asíu. Þessi þróun hefur haldið áfram á 21. öld. Er kristin trú á undanhaldi eða er aðeins um umskipti að ræða? Handbókin World Christian Encyclopedia (Alfræðiorðabók kristninnar á heimsvísu), 3. útgáfa, getur hjálpað okkur að fá svör við þessari spurningu og fleiri slíkum, enda birtir hún mynd af stöðu kristinnar trúar á heimsvísu. Kristin trú er til staðar í öllum löndum meðal fjölda þjóða og þjóðarbrota í fjölbreyttu samhengi mismunandi menningarheima og samskiptum manna á milli. Afríka náði því að verða heimsálfan með flestum játendum kristinnar trúar árið 2018 og komst fram úr Rómönsku Ameríku sem hins vegar náði Evrópu 2014. Þessi staða, flutningur þungamiðjunnar til suðurs, vekur spurningar. Hefur þetta áhrif á guðfræðina, söguritun, mannauð og fleira? Meginmiðstöðvar kristninnar eru nú í suðri meðan staðan versnar á Vesturlöndum. Allt þetta hjálpar okkur að skilja betur stöðu kristninnar á 21. öld. Umrædd bók, World Christian Encyclopedia, er tilraun til að koma tölu á fjölda kristinna manna og þeirra sem aðhyllast aðra trú á heildrænan hátt með því að skoða kirkjudeildir og mismunandi hópa, áður fyrr og nú, í 234 löndum. Við útgáfu bókarinnar var haft samband við allar þekktar kirkjudeildir í hverju landi fyrir sig til að hafa uppfærðar upplýsingar. Leitað var til fólks sem gat staðfest þær, einkum í þeim löndum sem erfitt er að fá aðgang að eða vita neitt fyrir víst um. Fyrir bragðið eru upplýsingarnar eins nákvæmar og unnt var að hafa þær. Í umfjöllun um hvert land fyrir sig er lögð áhersla á það sem sérstakt er þar, svo sem guðfræðimenntun, stöðu kynjanna, heilbrigðiskerfi, loftslagsbreytingar, ofbeldi, stjórnmál og samtímamenningu. Með þessu er komist nær reynsluheimi kristins fólks hér og þar um heiminn. Ýmislegt gerir þetta erfiðara, svo sem óskýrari mörk milli kirkjudeilda og ekki er alltaf ljóst hvaða kirkju fólk tilheyrir. Gömlu mótmælendakirkjurnar missa safnaðarfólk yfir í sjálfstæðar kirkjur sem ekki tengjast neinum öðrum. Eins er erfitt að staðfesta vöxt neðanjarðarkirkna víða í Asíu. Vöxturinn er hvað mestur í kirkjum sem eru undir áhrifum hvítasunnu­ eða náðargjafastrauma en af ýmsum ástæðum Er kristindómurinn á undanhaldi eða að umbreytast? RAGNAR GUNNARSSON

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.