Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2021, Blaðsíða 9

Bjarmi - 01.10.2021, Blaðsíða 9
bjarmi | október 2021 | 9 er erfitt að hafa samband við þær, einkum í Afríku. Engu að síður er þessi bók besta heimildin sem við höfum til að leita svars við spurningunni um stöðu kristinnar trúar í heiminum: Er hún á undanhaldi eða eiga umskipti sér stað? Svarið kemur ekki á óvart, það er bæði og. FLUTNINGUR FRÁ NORÐRI TIL SUÐURS Hlutfall kristins fólks í heiminum hefur lítið breyst undanfarin 120 ár. Árið 1900 var það 34,5%, árið 2020 er hlutfallið 32,2%. Þetta endurspeglar stöðugleika en um leið umfangsmikla breytingu. 82% alls kristins fólks bjó í Evrópu og Norður­Ameríku árið 1900, en aðeins 33% árið 2020. Þessi flutningur þungamiðju kristindómsins frá norðri til suðurs er megineinkenni kristinnar trúar við upphaf 21. aldar. Önnur breyting er sú að trúin mótast af lífi í borgum, ekki síst í stórum borgum í suðri eins og Lagos og Kinshasa. Enn líta margir á kristindóminn sem trú hvíta mannsins, eins og hún var. Hvít, vestræn saga, guðfræði og þjálfun var flutt út og ráðandi í aldir. En þrátt fyrir þessa hugsun er reyndin sú að meirihluti kristins fólks er ekki hvítt. Flest kristið fólk talar spænsku (Rómanska Ameríka), síðan ensku, portúgölsku (Brasilía), rússnesku (Rússneska orþódoxkirkjan) og mandarín­kínversku. Engu að síður, til þess að bera saman undanhald og umbreytingu, þarf að skoða fleira. Árangur kristniboðs hefur verið mikill í Afríku og hlutfall kristins fólks færðist úr 9% árið 1900 í 49% árið 2020. Lýðstjórnarlýðveldið Kongó (CDR) sker sig úr, fer úr 1% í 95%. Tölurnar segja þó ekkert um þann veruleika að kristið fólk í Afríku hefur aðgang að færri læknum, býr við hærri barnadauða, lægri lífslíkur og fleiri tilvik HIV og malaríu en íbúar annarra heimsálfa auk takmarkaðs aðgangs að hreinu drykkjarvatni. Lýðstjórnarlýðveldið Kongó er stundum kallað „höfuðborg nauðgana heimsins“. Asía er þekkt fyrir trúarlega fjölbreytni og vöxtur kristinnar trúar er frá 2% árið 1900 í 8% árið 2020. Mesti vöxturinn er í húskirkjum í Kína sem teljast vera 56 milljónir kristins fólks. Önnur breyting er í Eyjaálfu, en þar eru Ástralía og Nýja­ Sjáland ráðandi vegna stærðarinnar og SÍFELLT STÆRRI HLUTI ÍBÚA JARÐAR BÝR Í BORGUM SEM HEFUR ÁHRIF Á KIRKJUR OG KIRKJULEGT STARF

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.