Bjarmi - 01.10.2021, Side 10
10 | bjarmi | október 2021
kristnu fólki fækkar þar, en mikil breyting
varð hins vegar í Melanesíu, Míkrónesíu og
Pólinesíu á liðinni öld, en þar er kristin trú
nú ráðandi.
UNDANHALD Í EVRÓPU
Staða kristinnar trúar í Evrópu hefur veikst
á liðnum 120 árum og vitað er að margir
eru skráðir í kirkjur þar án þess að vera
virkir í kirkjustarfi. Einnig hefur dregið
úr skráningum í NorðurAmeríku en í
Bandaríkjunum er hæst hlutfall kristinna.
Þar hefur hvarf hvítra í kirkjum verið bætt
upp með kristnum innflytjendum, einkum frá
Rómönsku Ameríku. Rómanska Ameríka
er sér á báti með áberandi sterka stöðu
rómverskkaþólskra en um leið gríðarlegan
vöxt kirkna með rætur í hvítasunnu og
náðargjafahreyfingunni, þar sem vöxturinn
er frá 0% árið 1900 upp í 32% árið 2020.
Mesta fækkun kristins fólks er í Norður
Afríku og MiðAusturlöndum, þ. á. m. í Írak,
Sýrlandi, Ísrael, Palestínu og Tyrklandi.
Gríðarlegur þrýstingur hefur verið á kristið
fólk og kirkjustarf og á umræddu árabili,
120 árum, hefur kristnum fækkað úr
12,7% í 4.2%. Í Tyrklandi voru 22% kristin
árið 1900 en aðeins 0,2% í fyrra.
Annar áberandi munur á norðri og
suðri er að fjármagnið er mest í norðri en
suðrið er með mannaflann. Margt kristið
fólk í suðri lifir við fátæktarmörk eða undir
þeim á meðan flestir í norðri búa við gott
eða þokkalegt fjárhagslegt öryggi.
Eðlilegur hluti kristins vitnisburðar er
að uppfylla félagslegar þarfir náungans.
Systkinin í norðri geta ekki horft fram hjá
neyð og fátækt, AIDS og margvíslegum
vanda í suðri. Ekki má heldur koma til
hjálpar á forsendum valds og ríkidæmis
heldur í auðmýkt frammi fyrir misrétti sem
blasir við í kirkju Krists í heiminum.
EIN FJÖLSKYLDA
Sem kristin tilheyrum við að minnsta kosti
tveim alþjóðlegum fjölskyldum. Við erum
fædd sem menn, hluti af mannlegri flóru
kynþátta, tungumála, trúarbragða og
menningarhefða. Heimurinn hefur dregist
saman og við þurfum að finna lausnir á
ýmsum vanda, s.s. loftslagsvá, hernaðarvá,
hvernig stunda eigi verslun milli landa
og mörgu öðru. Sumar auðlindir eru
takmarkaðar og kallað er eftir sjálfbærni
án þess að fyrir liggi hvernig eigi að ná því
marki og hver eigi að bera tapið eða greiða
kostnaðinn. Þrátt fyrir þessa spennu nýtur
maðurinn þess að vera skapandi vera,
gríðarlegar tækniframfarir eiga sér stað og
menningin blómstrar sem aldrei fyrr.
Síðan er það hin fjölskyldan sem telur
um 2,5 milljarða eða þriðjung mannkyns,
fjölskylda kristninnar. Kristnir menn eru í
sérhverju landi en eru ekki einsleitir heldur
fjölbreytt samansafn þúsunda þjóðarbrota
og tungumála sem skiptist í margar
kirkjudeildir – sem eru hugsanlega um 45
þúsund talsins! Við lifum hvert á sínum
stað, tölum okkar eigin tungu en tengjumst
hvert öðru vegna sameiginlegrar trúar
okkar.
Eining er verðugt markmið fyrir þessa
alþjóðlegu fjölskyldu kristins fólks. Við
fylgjum Jesú. Fjölskylda hans náði út
fyrir líffræðileg tengsl til allra sem trúin
á hann bindur saman. Þessi fjölskylda
kristninnar er skilgreind út frá samskiptum
og því sameiginlega í mismunandi
birtingarmyndum kristninnar. Við vinnum
og lifum trú okkar, hvert á sínum stað,
meðvituð um sameiginlega trú og
auðkenni okkar sem alþjóðleg fjölskyldu.
ÁSKORUNIN OG HJÁLP ÚR SUÐRI?
Áskorun kirkjunnar á Vesturlöndum
er andvaraleysi í trúmálum, afhelgun
samfélagsins, fækkun þeirra sem skilgreina
sig sem kristna og gamlar kirkjur sem
mótast af frjálslyndri guðfræði þar sem
afhelgunin mótar guðfræði og sjálfsmynd
og dregur úr mikilvægi andlegs lífs og hins
andlega þáttar starfs þeirra. Á sama tíma
flyst kristið fólk úr suðri til norðurs, sest
þar að og getur vonandi með tíð og tíma
borið með sér líf og kraft andlegs lífs og
kirknanna í suðri. Slíkt getur orðið til að
endurnýja kristna trú og snúa þróuninni við.
Meginheimild þessarar greinar er grein í Lausanne
Global Analysis, March 2021, Vol 10/ Issue 2: Is
Christianity Shrinking or Shifting. Findings from the
World Christian Encclopedia, 3rd edition. Höfundar:
Gina A. Zurlo og Todd M. Johnson. https://lausanne.
org/content/lga/202103/ischristianityshrinkingor
shifting.
Einnig er vert að benda á bók dr. Kjartans Jónssonar:
Flóttamenn. Þjónusta kirkna og kristilegra samtaka á
Vesturlöndum í þeirra þágu.