Bjarmi - 01.10.2021, Side 15
bjarmi | október 2021 | 15
„Blessaður er sá maður, sem reiðir sig
á Drottin og lætur Drottin vera athvarf
sitt. Hann er sem tré, sem gróðursett
er við vatn og teygir rætur sínar út að
læknum, sem hræðist ekki, þótt hitinn
komi, og er með sígrænu laufi, sem
jafnvel í þurrkaári er áhyggjulaust og
lætur ekki af að bera ávöxt“ (Jer 17.7-8).
Lífið er alls konar og á stundum bara
erfitt. Á þeim stundum er gott að vita, að
maður veit, að Drottinn er sá sem hann
segist vera í orði sínu. Hann breytist ekki og
er hinn sami í dag og hann hefur alltaf verið.
Í samfélagi nútímans, þar sem eitt gildir
í dag og annað á morgun og allt of margir
eru uppteknir af því að ganga í augun á
náunga sínum, er í raun merkilegt að lifa
lífinu upptekinn af því sem alls ekki er í
tísku eða þykir langt frá því að vera „hipp
og kúl“ þ.e. að vera kristinn. Vera þjónn
Guðs og líta á lífið hér á jörð sem aðeins
upphaf eilífðarinnar með honum. Þetta er
frelsandi líf og mjög gefandi. Þannig hefur
gleði Guðs orðið styrkur minn og friður
hans gefið mér jafnvægi, þrátt fyrir að á
móti blási, en þannig er bara lífið.
Mér finnst myndlíkingin úr þessu versi
vera svo flott. Það er svo dásamlegt að
geta verið áhyggjulaus þegar hitinn kemur,
í þurrkaári, í hverju sem það er svo fólgið.
Svo frábært að geta orðið eins og þetta tré
og hafa að markmiði að geta borið ávöxt
þ.e. lifað í kærleika, gleði, friði, sýnt gæsku,
góðvild og langlyndi þrátt fyrir mótbyr, því
ekki vil ég vera eins og strá í vindi heldur
staðföst og grundvölluð í kærleika Krists.
Fyrr á þessu ári þurfti ég að horfast í
augu við sjálfa mig vegna heilsu minnar.
Svo sem ekki í fyrsta sinn en þetta skiptið
var það mjög erfitt. Ég fór og hitti lækni sem
tók mig út, svona eins og fasteignasali sem
er að gera söluyfirlit yfir fasteign sem hann
hyggst selja. Eftir þessa heimsókn fór ég
heim með það verkefni að fara yfir stöðu
mína miðað við samtal okkar og skoða
síðustu fjögur ár. Síðan mátti ég koma til
hans hálfgerðri greinargerð. Mér þótti þetta
ekki flókið og fór heim til að klára verkefnið.
Þegar ég hafði rifjað upp, horft í hreinskilni
á stöðuna og fengið vinkonu mína til að
fara yfir þetta með mér, varð ég algjörlega
miður mín. Ég upplifði mig algjörlega ónýta,
ég gerði mér grein fyrir að ef ég væri bíll
yrði ég send í pressuna og fengi kannski
20 þúsund fyrir. Ég gat ekki annað en
skellt upp úr, þó þetta væri nú kannski ekki
fyndið, en sem starfsmaður bílaumboðs var
það nú kannski svolítið í þá áttina.
Í framhaldinu helltist yfir mig sorg. Sorg
yfir þessu klúðri. Sorg yfir líkamlegu ástandi
mínu, sem ég hafði lagt mig alla fram að
afneita. Sorg yfir breyttu lífsmunstri og sorg
yfir því sem ekki gat orðið. Svo varð ég reið
af því mistök áttu sér stað og ég hugsaði
aftur og aftur, „ef ég hefði“ — já, ég varð allt
í einu hálfvonlaus.
Þetta varði í tvo daga. Mikið var þetta
leiðinlegt, en þá ákvað ég að þetta væri
komið nóg, enda sjálfsvorkunn hræðilegur
pyttur. Ég minnti mig á þetta vers, að sá
sem reiðir sig á Drottin er eins og þetta tré
og ekkert hafði í raun breyst. Ég treysti Guði
til að leiða líf mitt áfram eins og hann hafði
gert hingað til og ákvað að taka stjórn á
huga mínum. Njóta lífsins í breyttu landslagi
sem ekkert endilega þyrfti að vera verra eða
minna ævintýralegt en það sem áður var.
Guð minn hafði ekki breyst, fyrirheit hans
voru enn hin sömu og það sem meira er,
að hann gerir kraftaverk enn í dag. Og þrátt
fyrir allt, skiptir engu máli hverjar aðstæður
mínar eru, það finnast tækifæri í öllum
aðstæðum. Hann hefur alltaf áætlun, mér
til heilla en ekki óhamingju. Ég er þakklát
fyrir að eiga hann í hjarta mínu og geta
fagnað og glaðst yfir blessunum mínum
sem meðal annars eru fólgnar í yndislegri
fjölskyldu og frábærum vinum, kirkjunni
minni og fallega landinu mínu. Á göngunni
með honum hef ég líka fengið tækifæri til
að fara í ókunn lönd, hitta fólk sem ég hefði
annars aldrei hitt, hýsa fólk frá ólíklegustu
stöðum í veröldinni og ekki síst séð hann
endurreisa fólk og gefa því líf og nýja von,
endurheimta sjálfsvirðinguna. Já, þetta er
gott líf.
Uppáhaldsversið mitt
GUÐLAUG TÓMASDÓTTIR