Bjarmi - 01.10.2021, Page 16
16 | bjarmi | október 2021
Sköpunarsaga eða sögur Biblíunnar
hafa verið deiluefni í hálfa aðra öld
eða meira. Sjálfsagt hafa verið skiptar
skoðanir af og til í margar aldir, en upp úr
miðri 19. öld óx vantrú á hana fiskur um
hrygg með þróunarkenningu Darwins.
Þó að hann réðist ekki beinlínis gegn
Biblíunni nýttu margir efasemdamenn um
sköpunarsöguna þróunarkenninguna til að
grafa undan trú manna á að sköpunarsagan
hefði nokkurt gildi nema kannski sem
ævintýri eða eins konar dæmisaga sem
mætti læra af. Lesendur Bjarma þekkja
sjálfsagt mikið til þessarar umræðu, enda
hefur verið fjallað um sköpunarsöguna
áður í Bjarma. En mig langar að benda á
sjónarhorn sem ég tel að hafi ekki komið
fram.
Ég sótti guðfræðideild Háskóla Íslands
frá því í nóvemberlok 1970 til júlí 1972
og hætti áður en fyrrihlutapróf var haldið.
Ég hreifst af hebreskunni enda naut
guðfræðideildin frábærs kennara, próf.
Þóris Kr. Þórðarsonar í því fagi. Venjulega
var aðeins boðið upp á eins vetrar nám
í hebresku, en Þórir bauð mér að taka
framhaldsnámskeið og fyrir það er ég
óendanlega þakklátur. Námskeiðið stóð
allan veturinn og fram á sumar. Hann
kenndi ekki aðeins málið heldur reyndi að
Vitni að
sköpun jarðar
BÖÐVAR BJÖRGVINSSON