Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2021, Blaðsíða 17

Bjarmi - 01.10.2021, Blaðsíða 17
bjarmi | október 2021 | 17 koma nemendum í skilning um hebreska hugsun og hve frábrugðin hún er okkar grísk/rómversk/norrænu hugsun. Í framhaldsnámskeiðinu var m.a. lesinn allstór hluti 1. Mósebókar og byrjað á byrjuninni, „bresjít“ á hebresku, en það er fyrsta orð Biblíunnar og þýðir „í upphafi“. Mjög nákvæmlega var farið í allan texta, setningarbygging skoðuð og möguleikar á tengingum orða miðað við málfræðina. Hann benti m.a. á að þýða má upphafssetningu 1. Mósebókar annars vegar sem: „Í upphafi skapaði Guð himin og jörð, og jörðin var auð og tóm“ eins og hefð er, en einnig sem: „Í upphafi þess að Guð skapaði himin og jörð var jörðin auð og tóm.“ Það er svo sem ekki reginmunur á, en þó er hann nokkur. Ég ætla samt ekki að dvelja við það hér. Það sem vakti fljótt athygli mína var það sem stendur í lok 2. vers: „…og andi Guðs sveif yfir vötnunum“. Og nú langar mig til að lesendur fletti upp í Biblíunni og lesi sköpunarsöguna hægt og rólega með þetta orð í huga. Kannski fer ykkur eins og mér að spyrja: Hvernig kom þessi texti til okkar? Flestir þeirra sem trúa á Biblíuna sem heilagt og óskeikult orð Guðs telja að Guð hafi opinberað þetta Móse. Ekki mótmæli ég því. En samt var það önnur tilfinning sem greip mig. Við sjáum aftur og aftur að Andi Guðs opinberar mönnunum ýmsa hluti. Mér varð einnig hugsað til orða Páls í Róm 8.16: „Sjálfur andinn vitnar með vorum anda, að vér erum Guðs börn.“ Og einnig Heb 10.15: „Og einnig heilagur andi vitnar fyrir oss“, 1Pét 1.11: „Þeir rannsökuðu, til hvers eða hvílíks tíma andi Krists, sem í þeim bjó, benti, þá er hann vitnaði fyrir fram um píslir Krists og dýrðina þar á eftir“; og 1Jóh 5.6­7: „Og andinn er sá sem vitnar … Því að þrír eru þeir sem vitna [í himninum: Faðirinn, orðið og heilagur andi, og þessir þrír eru eitt. Og þeir eru þrír sem vitna á jörðunni].“ Eins má vísa til Jóh 3.31og áfr.: „Sá sem kemur að ofan … vitnar um það sem hann hefur séð og heyrt.“ Þar er að vísu verið að tala um Jesú en tengingin var samt lifandi fyrir mér. Það sem mér hefur síðan fundist vera reyndin er einmitt þetta, að það er Andi Guðs sem vitnar fyrir okkur mönnunum sannleika Guðs. Og þarna er Andi Guðs til staðar, „svífandi yfir vötnunum“. Það er hann sem vitnar sem sjónarvottur, séð frá þeim stað þar sem hann svífur yfir vötnunum og horfir á hlutina gerast. Og við vitum af öðrum stöðum í Biblíunni að gerandi sköpunarinnar er Orðið, Jesús Kristur, Sonurinn. „Allir hlutir urðu fyrir hann, án hans varð ekki neitt, sem til er.“ (Jóh 1.3.) Við sjáum sem sagt þríeinan Guð hér að verki. Faðirinn er upphaf alls og á bak við allt, Sonurinn gerandinn í sköpuninni og Heilagur andi vitnið sem ber til okkar sannleika Guðs, Orð hans. Sköpunarsagan er þannig frásaga séð frá jörðinni um sköpun Guðs, hvernig ljósið kemur fyrst og síðan greinir Guð ljós frá myrkri. Það er væntanlega sett fram í senn bæði í efnislegum og siðfræðilegum skilningi. Og það merkilega er að sól, tungl og stjörnur sjást ekki fyrr en í 14. v., á fjórða degi sköpunarinnar. Það er svolítið merkilegt atriði inn í umræðuna um sköpun jarðar á sjö dögum, sem svo margir telja til venjulegra vikudaga eins og við þekkjum þá. Hvað með „dagana“ þrjá fyrstu þegar engin sól og tungl var til staðar? Hvað var þá til að marka dag og nótt? Mér finnst þetta styðja þá kenningu að með „dögum“ sköpunarsögunnar sé um að ræða tiltölulega óskilgreind tímabil sem frekar er stutt af orðum sálmaskáldsins: „Því að þúsund ár eru í þínum augum sem dagurinn í gær, þegar hann er liðinn, já, eins og næturvaka.“ Þegar við horfum á þetta frá þessu sjónarhorni vitnisburðar Anda Guðs, sjáum við að sköpunarsagan hin fyrri er engan veginn úr samhljómi við niðurstöður vísindanna. Röð atburða er hin sama í meginatriðum. Sköpunarsagan hin fyrri styður sem sagt vísindaniðurstöður. Ég segi hin fyrri því að önnur sköpunarsaga sem sett er fram í öðrum tilgangi kemur strax í lok þessarar og fjallar um samskipti mannsins við Guð og síðan fráfall hans en hún hefst með 1Mós 2.4 eða 2.5 (ekki er víst hvort vers 2.4 er lokin á fyrri sköpunarsögunni eða upphaf þeirrar síðari). Guð var sáttur við sköpun sína. Allt fór eins og hann hafði ætlað. „Og það varð svo. Og Guð leit allt, sem hann hafði gjört, og sjá, það var harla gott.“

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.