Bjarmi - 01.10.2021, Síða 18
18 | bjarmi | október 2021
Í síðustu fjórum tölublöðum Bjarma hef
ég rifjað upp sögu nokkurra kvenna sem
voru trúarhetjur Drottins. Í þessari grein
langar mig að kynna til sögunnar enn eina
trúarhetjuna. Það má lýsa trúarskrefum
hennar á eftirfarandi hátt: Rétt yfir tvítugt
fór hún í hnattferð sem stóð í eitt ár. Í
vasanum hafði hún u.þ.b 10 dollara á
dag í farareyri. Í kjölfarið varð hún einn af
stofnendum alþjóðlegu hjálparsamtakanna
ABC barnahjálpar og hún er handhafi
Hinnar íslensku fálkaorðu vegna líknarstarfa
á alþjóðavettvangi. Fyrir fáeinum vikum kom
úr prentun bók eftir hana:
„The Understanding of Who Jesus Is;
The Basic Difference Between Muslims
and Christians.“ (Skilningurinn á því
hver Jesús er: Grundvallarmundurinn á
múslimum og kristnum).
Einnig er hún að setja á stofn vefsíðu
tengda bókinni; whojesus.is. Eins og
titillinn ber merki um er bókin skrifuð á
ensku. Á vefsíðunni verður hægt að lesa
bókina og hlaða henni ókeypis niður á
mismunandi tungumálum. Nú þegar er
hún komin í þýðingu á ein átta tungumál;
urdu, arabísku, íslensku, spænsku,
telugu, persnesku, bengali og frönsku.
Nýjustu fréttir eru svo að hún var að fá
þýðingastyrk upp á 5 milljónir sem gerir
það kleift að þýða bókina á 22 önnur
tungumál og prenta hana í nokkrum
löndum. Henni mun verða dreift ókeypis
á alþjóðavettvangi, einkanlega í löndum
þar sem íslam er ríkjandi. Vegna þess
hve verkefnið hefur stækkað er verið að
stofna félag utan um útgáfuna.
En hver er hún þessi kona?
FJÖLSKYLDUSAGAN
Hún heitir Guðrún Margrét Pálsdóttir, í
daglegu tali kölluð Gunna Magga. Hún
er fædd í mars árið 1959 nánar tiltekið í
bakhúsi við Hverfisgötu 60a í Reykjavík.
Hún er eina dóttir og yngsta barn
hjónanna Páls Axelssonar og Sigríðar
Halldórsdóttur.
Áður en Guðrún fæddist hafði
fjölskylda Guðrúnar takmarkaðan áhuga
á bæði guðstrú og andlegum málefnum.
Það breyttist hins vegar fyrir inngrip Guðs
sem notaði vinnumann til að vitna fyrir
stjúpafa hennar, Arinbirni Árnasyni bónda
í VesturHúnavatnssýslu. En Arinbjörn var
eiginmaður föðurömmu Guðrúnar.
Vinnumaðurinn vitnaði fyrir Arinbirni
sem hæddist þá að honum og bað hann
að sanna að Guð væri til. Vinnumaðurinn
spurði þá: „Myndir þú trúa ef þú hættir að
nota tóbak?“
„Það mun aldrei gerast,“ svaraði
Arinbjörn að bragði en hann gekk
venjulega með tvær eða þrjár tóbaksdósir
á sér.
Að viku liðinni spyr síðan vinnumaðurinn
Arinbjörn: „Ertu enn að nota tóbak?“
Sér til undrunar uppgötvar Arinbjörn að
hann hafði ekki snert það í heila viku því
löngunin var algjörlega horfin. Þó að þetta
atvik hafi ekki sannfært hann fullkomlega,
var það þó neistinn sem þurfti til þess að
hann eignaðist trú á Jesú Krist.
Foreldrar Guðrúnar tóku þessari nýju
afstöðu Arinbjarnar illa og sniðgengu hann
fyrir vikið. En svo gerist það að móðurafi
Guðrúnar veikist alvarlega af berklum og
er fluttur á Vífilsstaði þar sem honum er
vart hugað líf. Sigríður, mamma Guðrúnar,
leitar þá til Arinbjarnar og biður hann um
fyrirbæn fyrir pabba sínum. Arinbjörn
Nýtt verkefni og
ný tækifæri
VIÐTAL VIÐ GUÐRÚNU MARGRÉTI PÁLSDÓTTUR
RÓSA ÓLÖF ÓLAFÍUDÓTTIR