Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.10.2021, Side 21

Bjarmi - 01.10.2021, Side 21
bjarmi | apríl 2021 | 21 hana út. Þeir vissu að diskurinn myndi seljast best ef hægt væri að selja hann til styrktar góðgerðarsamtökum en ekkert góðgerðarfélag sýndi því áhuga. Þá datt bróður Guðrúnar í hug að bjóða Guðrúnu að vera með í að stofna hjálparsamtök og að nýta þetta tækifæri til að afla fjár til þess að hrinda hugsjón hennar í verk. Guðrún þáði það með þökkum og nefndi samtökin ABC með vísan í tilgang þeirra þ.e. að gefa fólki tækifæri til að læra að lesa og skrifa og styðja börn til náms. Tugþúsundir barna hafa notið góðs af starfinu. BÓKIN Eins og nefnt var í formála var Guðrún að gefa út bókina Skilningurinn á því hver Jesús er: Grundvallarmunurinn á múslimum og kristnum. Gefum Guðrúnu orðið varðandi tilurð bókarinnar: „Bókin er þannig komin til að ég fæ spámannlegt orð árið 2019. Ég veit að margir eru mjög skeptískir á slíkt en hér er um að ræða spádóm sem talaður er fram af heilögum anda í gegnum sanntrúaða manneskju sem er gerólíkt því að leita til spákonu sem Biblían varar við. Það eru ótal dæmi um slíka spádóma í Biblíunni bæði í Gt. og Nt. En m.a. var innihald spádómsins að ég ætti eftir að hafa mikil áhrif í Íran, Írak og löndunum þar í kring, án þess að fara þangað. Annar hluti þessa spádóms fjallaði um að innra með mér væru óskrifaðar bækur. Tveimur mánuðum síðar er ég að hlusta á þennan spádóm því hann var hljóðritaður og viti menn, um leið og afspiluninni lauk kom titill bókarinnar í hugann: „The Understanding of Who Jesus Is; The Basic Difference Between Muslims and Christians.“ Í raun sé ég, eftir á að hyggja, hvernig Guð var búinn að undirbúa þetta verk. Þannig var að fyrir nokkrum árum var ég beðin um að koma í moskuna við Skógarhlíð til að kenna konunum þar íslensku. Ég gerði það og eignaðist þarna góðar vinkonur sem buðu mig innilega velkomna og hef ég haldið áfram að heimsækja þær í moskuna þegar færi hafa gefist. Svo þegar að bókin kom til, sagði ég þeim frá henni og tóku þau í moskunni þessu mjög vel. Imam og framkvæmdastjóri moskunnar lásu bókina yfir, án þess að gera nokkrar athugasemdir. Reyndar lýstu þeir ánægju sinni með bókina og hafa stutt mig í þessu verkefni. Tekist hefur góð vinátta með okkur í gegnum þetta samstarf. Í bókinni tek ég fyrir fimm spurningar sem múslimar og kristnir hafa svarað á ólíkan hátt. Ég greini m.a. frá svörum Kóransins og Biblíunnar við þessum spurningum, hvað Jesús segir og fornir sagnaritarar. Spurningarnar eru: 1. Dó Jesús á krossi? 2. Er Jesús sonur Guðs? 3. Er Jesús Guð? 4. Er Jesús frelsari heimsins? 5. Er Jesús meðalgangarinn á milli Guðs og manna?“ Ég hef farið í stórum dráttum yfir trúargöngu Guðrúnar Margrétar Pálsdóttir en alls ekki á tæmandi hátt. Líf þessarar trúarhetju ber vott um djörfung, hugrekki og traust á Drottni Jesú Kristi. Lífshlaup hennar fram á daginn í dag, hefur sýnt að Guði er ekkert ómáttugt. Dýrð sé Guði.

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.