Bjarmi - 01.10.2021, Side 22
22 | bjarmi | október 2021
um 1400 manns eftir að loftsteinn sprakk
yfir Tsjeljabinsk í Rússlandi.
SÓDÓMA BIBLÍUNNAR
Fræðimenn vísa til deilna um það hvort Tall
elHammam sé bærinn Sódóma sem við
þekkjum af frásögum Gamla testamentisins.
Í Fyrstu Mósebók er sagt frá því að „eldur og
brennisteinn“ féllu af himni vegna guðleysis
og ómældrar syndar íbúa borgarinnar.
„Eldur og brennisteinn“ er góð lýsing
á því hvernig eyðingin hefur átt sér stað.
Í fræðiritinu Nature segja fræðimenn að
spurningin um það hvort Sódóma sé
umræddur bær í Tall elHammam falli
utan þeirra rannsóknarsviðs. Þrátt fyrir
það benda þeir á að frásaga Biblíunnar sé
nærri því sem vitað er að kom fyrir þegar
Tall elHammam var lögð í eyði.
Á vefsíðu norska útvarpsins, NRK, segir frá
því í frétt frá 25. september að allt bendi til
þess að um 8.000 manns hafi farist fyrir
3.600 árum þegar loftsteinn sprakk yfir Tall
elHammam. Umrætt svæði er í Jórdaníu
rétt fyrir norðan Dauðahafið. Á þeim tíma
var þar einn af stærstu bæjum Mið
Austurlanda og um það bil 10 sinum stærri
en Jerúsalem.
Árið 2005 var hafist handa við að grafa
upp rústir bæjarins. Fornleifafræðingar
hafa m.a. fundið eins og hálfs metra
þykkt lag af kolum og ösku sem hylur allt
svæðið. Þeir segjast hafa fundið sönnun
þess að bærinn hafi eyðilagst um það bil
1.650 f. Kr. eða fyrir rúmlega 3.650 árum.
Eyðileggingin átti sér stað þegar loftsteinn
sprakk um 4 kílómetrum fyrir ofan bæinn.
Sprengingin olli 2.000 gráða hita, öflugum
bruna og gríðarlegum stormi, mun verri
en þeir fellibyljir sem við þekkjum til.
Sérfræðingar telja að sprengingin
hafi verið um þúsund sinnum öflugri en
kjarnorkusprengingin sem varpað var á
Hiroshima árið 1945. Byggir sú staðhæfing
á því að fundist hefur brætt járn og berg á
svæðinu. Um tíu beinagrindur hafa fundist
en talið er að allir íbúarnir, 8.000 talsins,
hafi farist í sprengingunni.
Vitað er til þess að loftsteinar geti
valdið mikilli eyðileggingu þegar þeir
springa fyrir ofan jörðu. Fyrir þremur árum
sprakk loftsteinn utan við austurströnd
Rússlands. Sprengiaflið var 10 sinnum
öflugra en í Hiroshima. Árið 2013 slösuðust
Fornleifafræðin: Stór
loftsteinn þurrkaði
út bæ fyrir löngu
— GÆTI VERIÐ SÓDÓMA