Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2021, Blaðsíða 23

Bjarmi - 01.10.2021, Blaðsíða 23
bjarmi | október 2021 | 23 Ég trúi því að Biblían sé innblásið orð Guðs, að það sé lifandi og kröftugt og beittara hverju tvíeggjuðu sverði og að það snúi ekki til baka fyrr en það hefur unnið það verk sem Guð ætlar því. Það hefur verið daglegur förunautur minn í tugi ára og kemur alltaf ferskt og nýtt inn í líf mitt og aðstæður. Ég hef í gegnum tíðina átt mörg uppáhaldsvers og í þessum skrifum langar mig að benda ykkur á eitt þeirra. Það stendur í Hebreabréfinu 11.1 og er svona: „Trúin er fullvissa um það sem menn vona, sannfæring um þá hluti sem eigi er auðið að sjá.“ Þetta er svo magnað, að það sem ég vona, verð ég að vera sannfærð um að Guð geri þó ég sjái það ekki núna. Þetta finnst mér svo dásamlegt. Það er þetta með trúna. Við skiljum ekki allt sem Guð segir eða gerir en við trúum og treystum orði hans. Það er ómögulegt að þóknast Guði án trúar. Við verðum að trúa að hann sé til og að hann beri umhyggju fyrir okkur. Hann elskar okkur og þráir samfélag við okkur. Hann vill að við komum fram fyrir hann í trú og að við gerum honum kunnar óskir okkar og þrár. Að hann opinberi fyrir okkur orð sitt svo það nái að festa rætur í lífi okkar og bera ávöxt til eilífs lífs. Inn í allar aðstæður og á öllum tímum, sé okkar lausn að leita til hans í trú, sannfærð um að hann geti og vilji breyta öllum hlutum. Við þurfum að lesa orð hans og trúa því, standa á því og kunna það. Hann sendir orð sitt til að bræða ísinn sem er í hjarta þínu. Hann sendir orð sitt til að gleðja hjarta þitt. Í orði hans er líf, lausn og lækning. Hann gaf okkur það besta sem hann átti, sinn eingetinn son, Jesú Krist, Drottin okkar og frelsara. Hann frelsaði okkur undan öllu óvinarins veldi. Hann sendir engla sína til að gæta okkar á öllum vegum okkar. Hann er alltaf nálægur og aldrei fjarlægur. Hann er okkar fyrirmynd og við eigum að spegla okkur í honum, en ekki hvert í öðru, því hver og einn þarf að koma fram fyrir Drottin í þeim mæli trúar sem honum hefur verið gefinn. Ekki gera þá kröfu á aðra kristna að þeir lifi eftir þeim mæli trúar sem þú átt og ekki dæma þá sem þér finnst ekki eiga næga trú. Jesús kom ekki til að dæma heiminn heldur til að frelsa hann. Og við eigum að fylgja hans fordæmi. Verum þakklát fyrir það sem við höfum eignast og munum að trúin kemur af boðuninni en boðunin byggist á orði Guðs. Þess vegna þurfum við að lesa orðið og trúa því, reyna það, ganga út á það og þá munum við sjá að Guð er ekki maður sem lýgur heldur er hann Guð, hinn eini sanni Guð sem aldrei gengur á bak orða sinna. Hann er trúfastur og góður Guð, faðir okkar himneski sem elskar okkur óendanlega mikið. Ég vona að þessi skrif mín hafi þau áhrif á þig, að þú uppörvist og finnir fyrir elsku Guðs til þín, því hann er persónulegur Guð þinn og þráir samfélag við þig með afbrýði andans. Þú ert svo mikils virði í augum Guðs okkar. Vertu bara þú, svona yndisleg sköpun Guðs og gefðu frá þér til annarra þennan kærleika sem hann gaf þér. Því meira sem þú gefur frá þér, þeim mun meira færðu. Og ég bið fyrir einu og sérhverju ykkar, að sú áætlun sem Guð hefur fyrir líf ykkar, nái fram að ganga og að hann fari fyrir ykkur í óslitinni sigurför. Og gleymum ekki orðum Jesú í Jóh. 13:34­35. „Nýtt boðorð gef ég ykkur, að þið elskið hver annan. Eins og ég hef elskað ykkur, skuluð þið einnig elska hver annan. Á því munu allir þekkja, að þið eruð mínir lærisveinar, ef þið berið elsku hver til annars.“ Svo mörg voru þau orð og þau eru sannarlega í gildi fyrir okkur í dag. Kærleikskveðja, ykkar Dadda. Bréf til þín – uppáhaldsversið mitt SIGRÚN ÁSTA KRISTINSDÓTTIR

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.