Bjarmi - 01.10.2021, Qupperneq 24
24 | bjarmi | október 2021
Kristniboðsmót á
Löngumýri í rúm 40 ár
VIÐTAL VIÐ JÓN ODDGEIR GUÐMUNDSSON
VIGFÚS INGVAR INGVARSSON
Á líflegu og uppbyggilegu kristniboðsmóti
á Löngumýri í sl. júlímánuði er Jón
Oddgeir, sem komið hefur að mótshaldinu
frá upphafi, dreginn afsíðis og spurður um
sögu þessara móta:
Þetta mót er númer 42 í röðinni.
Það var fólk hér fyrir norðan sem átti
frumkvæðið að kristniboðsmótunum
hér á Löngumýri í Skagafirði. Þá voru
enn almennu mótin í Vatnaskógi en það
var áhugi á að hafa mót hér nyrðra fyrir
Akureyringa.
Þá var Helgi Hróbjartsson kristniboði
mikill áhugamaður. Hvort hann var þá ekki
bara í guðfræðideild? Og mig minnir að
Lilja Sigurðardóttir, kennari á Akureyri, hafi
líka sýnt þessu áhuga. Hún var í Hróarsdal í
Hegranesi á sumrin. Ég var með Helga við að
koma þessu af stað, við vorum ágætir vinir.
Unglingahópurinn okkar fjölmennti
hingað. Unga fólkið á Akureyri var eiginlega
uppistaðan í þessu.
Mótin hér hafa yfirleitt verið um miðjan
júlímánuð það er hálfum mánuði eftir
almenna mótið sem var í Vatnaskógi.
Framan af árum kom ekki margt fólk að
sunnan á mótin en þetta breyttist þegar á
leið.
Það höfðu gríðarlega margir viðveru
hér. Skagfirðingar komu mikið hingað.
Til dæmis fólk utan úr Hegranesi. Þau
í Mýrarkoti, foreldrar Önnu Jónsdóttur í
Mýrarkoti og þeirra systra, afi og amma
Jóhanns Bjarnasonar organista á Hólum
og Jóns bróður hans í Skálholti, komu hér
alltaf á fyrstu mótin og fleiri Skagfirðingar.
Mig minnir að pabbi séra Gísla í
Glaumbæ, Gunnar Gíslason, þá prestur
þar og prófastur, hafi verið með okkur á
fyrsta mótinu, árið 1980. Við fórum þá út
á Sauðárkrók í messuna. Séra Gunnar var
þá að leysa af þar.Fyrir utan kirkjuna í Miklabæ - Myndir: Ástríður Kristinsdóttir