Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2021, Síða 25

Bjarmi - 01.10.2021, Síða 25
bjarmi | október 2021 | 25 Það hafa náttúrlega ýmsir komið. Ég held að það hafi verið 1981, á öðru mótinu, að við fengum Sigurbjörn Einarsson til að koma og vera með okkur. Ég tók á móti honum og Magneu á Akureyri um morguninn. Við vildum nýta hann vel. Hann var með biblíulestur og efni allan daginn. Ég ók honum svo um kvöldið til Akureyrar. Það fylgdi því dálítil stemmning að hafa hann. Það hafa margir talað hér og verið með efni. Jóhannes Ólafsson var hérna á fyrstu mótunum, Áslaug Johnsen kona hans var þá á lífi. Gunnar Sigurjónsson var með biblíulestur á fyrsta mótinu. Ingunn Gísladóttir hjúkrunarkona og kristniboði var hér einnig. Jónas Gíslason var hér með efni. Það voru svo yfirleitt einhverjir kristniboðar svo sem Jónas Þórisson og fleiri og Skúli Svavarsson náttúrlega mjög oft. Helgi Hróbjartsson var hér lengi, þegar hann var hérlendis. Eins var Margrét systir hans í nokkuð mörg ár með innlegg. Samkomurnar voru áður í stofunni en þar var þá stigi upp á loftið. Það var oft mjög þétt setið, hvar sem hægt var að tylla sér og þá einnig uppi á loftsskörinni. Það komu líklega hátt í hundrað manns á mótið þegar flest var. Þá tjölduðu margir og unga fólkið notaði stóra heita pottinn mjög mikið. Áhersla hefur verið lögð á kynningu á kristniboðinu og alltaf verið biblíulestur, bænastundir og vitnisburðarstund. Við Helgi komum saman og lögðum línurnar. Þetta var einkaframkvæmd okkar í byrjun en svo kom Kristniboðssambandið inn í þetta eftir að Skúli Svavarsson varð framkvæmdastjóri þess. Við Skúli vorum með þetta í mörg ár. Nú er komin stjórn fyrir mótin. Með mér í henni eru hjónin Kristján S. Sigurðsson og Hulda Björg, dóttir Jónasar Þórissonar. Ég hef alltaf verið ánægður með mótin en það hafa að vísu verið hæðir og lægðir en nokkuð stöðug aðsókn síðustu árin – 40­50 manns – og svo hafa oft bæst við gestir síðdegis á laugardeginum, helst frá Akureyri og úr Hegranesi. Mótsmessan hefur verið í ýmsum kirkjum. Í samvinnu við Ólaf Hallgrímsson á Mælifelli var hún nokkuð oft í Reykjakirkju, einnig á Mælifelli og tvisvar inni í Goðdölum. Við vorum oft í Glaumbæ og á Sauðárkróki og á Hólum tvisvar eða þrisvar. Einu sinni á Hofsósi en núna síðustu árin á Miklabæ hjá henni Döllu Þórðardóttur prófasti sem ljúft samstarf hefur verið við. Í hittiðfyrra vorum við reyndar á Flugumýri. Langamýri er vel staðsett, rétt við hringveginn en samt í góðu skjóli frá umferðinni. Ólíku er nú saman að jafna með samgöngurnar miðað við það sem var á fyrri árum. Mótin hafa auðveldað fólki í mismunandi landshlutum að halda tengslum og ný dýrmæt kynni hafa skapast þegar nýtt fólk úr ýmsum áttum hefur bæst í hópinn. Nú síðast t.d. úr hvítasunnusöfnuðinum í Vestmannaeyjum. Við gestir austan af landi þökkum Jóni Oddgeiri greinargóð svör um merkan þátt kristniboðssögunnar á Íslandi sem ætti skilið að fá ítarlegri umfjöllun. Leifur Sigurðsson kristniboði flytur hugleiðingu frá Japan Jón Oddgeir Guðmundsson

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.