Bjarmi - 01.10.2021, Page 26
26 | bjarmi | október 2021
Meðal mótsgesta á Löngumýri í sumar
voru hjónin Steingrímur Ágúst Jónsson
og Þóranna M. Sigurbergsdóttir frá
Vestmannaeyjum. Aðspurð sagði
Þóranna að þetta væri í annað skiptið
sem þau kæmu á þetta árlega mót
Kristniboðssambandsins á Löngumýri.
Í fyrra höfðum við ekki tækifæri til
að fara á neina kristilega ráðstefnu
og við höfðum vitað um þessi mót um
nokkurt skeið en vorum oft upptekin á
þessum tíma. Við ákváðum því að slá
til og sjá hvernig þetta yrði. Þetta varð
mjög gleðileg reynsla, gott mót og
gaman að hitta fólk sem við höfðum
þekkt á árum áður og eins að kynnast
nýjum. Mótið var ekki það fjölmennt að
eðlileg tengsl mynduðust milli manna og
staðurinn mjög hentugur fyrir þennan
fjölda. Dagskráin var bæði uppörvandi
og gagnleg.
Það má segja að sérstaklega
ánægjulegt hafi verið fyrir mig að fara um
Skagafjörðinn þar sem föðurafi minn ólst
upp og langafi minn bjó. Þarna nálgaðist
ég rætur mínar.
Ykkur varð augljóslega ekki meint
af úr því þið ákváðuð að fara aftur
nú í sumar?
Já, þegar við fórum í vor að skoða og
skipuleggja sumarið, ákváðum við að fara
aftur. Það hentaði okkur mjög vel og lítið
hafði verið í boði af mótum og ráðstefnum
vegna samkomutakmarkana.
Hvernig var svo að koma aftur?
Það var mjög gaman, nú fengum við
tækifæri til að hitta margt af sama fólkinu
aftur og kynnast því betur. Umgjörðin og
fræðslan var líka mjög góð og dagskráin
öll uppörvandi og einlægt samfélag. Við
héldum glöð og uppörvuð heim.
Eitthvað sem stendur upp úr?
Það er erfitt að fara að gera upp á
milli en biblíulestur séra Guðmundar
Guðmundssonar var einstaklega góður,
bæði fræðandi og lifandi.
Svo var veðrið alveg dásamlegt,
það var ekki svona gott í fyrra. Við
vorum mikið úti. Það var líka dýrmætt
að fræðast um starfið og fá tækifæri til
að segja frá verkefnum okkar í Nakúrú
í Keníu.
Þið hafið líka merka sögu að segja
sem tengist Keníu og Löngumýri.
Rétt er það. Við hjónin höfum verið að
starfa við að byggja upp betri aðstöðu í
kvennaathvarfi í Nakúrú í Keníu. Við komum
til Íslands fyrir jólin 2019 og ætluðum aftur
til Keníu seinni part árs 2020 og halda
áfram verkinu. Í byrjun sumars 2020 var
Steingrímur að bæta við nokkrum hellum
fyrir innan bílastæðið á lóðinni okkar. Hann
þurfti að ná í sand og fór og náði í sand í fötu
og setti í skottið á bílnum. Þegar hann kom
heim opnaði skottið þá sá hann 20 shillinga
kenískan pening (um 25 íslenskar krónur) á
stéttinni fyrir aftan bílinn og fannst honum
það frekar skrítið. Bíllinn var nýþveginn og
hreinsaður og hann sjálfur var í hreinum
fötum. Svo þurfti hann að ná í meiri sand og
fór aðra ferð og þá hugsaði hann með sér að
það hefði verið skrítið að finna einn kenískan
pening en ef hann fyndi annan þá væri það
merkilegra. Þegar hann kemur heim opnar
hann aftur hurðina þar sem skóflan var og
Langamýri
UPPÖRVANDI SAMFÉLAG
STUTT VIÐTAL VIÐ ÞÓRÖNNU M. SIGURBERGSDÓTTUR