Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.10.2021, Page 27

Bjarmi - 01.10.2021, Page 27
bjarmi | október 2021 | 27 þá sér hann annan eins kenískan pening á stéttinni. Hann spurði mig hvort ég hefði verið með peninga en ég var ekki með neina keníska peninga í umferð. Við fórum að reyna að túlka hvað þetta þýddi, að við færum til Kenía eftir tvo mánuði og að við færum tvö saman. En þetta var mjög merkilegt. Núna á mótinu hér vorum við beðin um að segja frá starfi okkar i Keníu. Steingrímur var að hugsa um að segja frá kenísku peningunum en hann hugsaði með sér að hann gæti það ekki því sagan væri bara hálf. Hann vildi vita hvert Guð væri að fara með þetta. Svo rétt áður en við áttum að tala þá biður hann; Drottinn hvað ertu að segja mér? Þá kom í huga hans frásögnin þar sem Jesús talaði um tvo smápeninga og hann fann í Lúkasarguðspjalli 12.6, frásögn Jesú er hann talar um fimm spörva og tvo smápeninga; Eru ekki fimm spörvar seldir fyrir tvo smápeninga? Og þó gleymir Guð engum þeirra. Hárin á höfði yðar eru jafnvel öll talin. Óttist ekki, þér eruð meira verðir en margir spörvar. Guð gleymir ekki spörvum og því síður okkur. Svarið var komið, það kom um leið og hann fór upp að tala. Við höfðum haft áhyggjur af hvernig athvarfinu reiddi af og fólkinu þar. Við vorum fjarri en okkur langar svo að vera með þeim – Guð huggaði okkur; hafið ekki áhyggjur, þetta er allt í minni hendi. Við höfum líka þennan tíma verið í sambandi með tölvupóstum, síma og netsímtölum. Við erum þess vegna ekki mjög langt undan þó svo það sé ekki það sama og að vera á staðnum. Bjarmi þakkar Þórönnu spjallið. UMGJÖRÐIN OG FRÆÐSLAN VAR LÍKA MJÖG GÓÐ OG DAGSKRÁIN ÖLL UPPÖRVANDI OG EINLÆGT SAMFÉLAG

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.