Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.10.2021, Qupperneq 28

Bjarmi - 01.10.2021, Qupperneq 28
28 | bjarmi | október 2021 Trú og tilfinningagreind Tilfinningagreind okkar skiptir máli. Fyrir því eru ýmsar ástæður. Fyrst má nefna það að Daniel Goleman benti á það á sínum tíma að tilfinningagreind (EI) skipti meira máli í forystustörfum en vitsmunagreind (IQ). Annað merkilegt og skemmtilegt er að við getum tileinkað okkur tilfinningagreind og nánast hver sem er getur orðið betri en hann er nú þegar. Tilfinningagreind okkar – eða skortur okkar á henni – hefur nú þegar mun meiri áhrif en við gerum okkur grein fyrir, bæði heima og í vinnunni. Hún útskýrir ýmislegt, m.a. hvers vegna: • Við eigum í deilum og hvenær það gerist. • Fólki líkar að vinna með okkur eða ekki. • Við fáum aldrei stöðuhækkunina sem við vonuðumst eftir – eða hvers vegna það gerist. • Svo mikil spenna er í lífi okkar eða hvers vegna allt gengur nokkuð vel. Hver er tilfinningaleg þekking okkar? Sjálfur þurfti ég að þroskast og vaxa á sviði tilfinningagreindar og er enn að. Mig langar að nefna fimm atriði sem geta bætt okkur á þessu sviði. Þau urðu mér að minnsta kosti til hjálpar. 1. ÁTTUM OKKUR Á ÞEIM ÁHRIFUM SEM VIÐ HÖFUM Hfur þú einhvern tíma velt því fyrir þér hvað gerist þegar þú gengur inn í herbergi eða sal? Spurningin er sérstök, því maður getur ekki vitað hvernig andrúmsloftið var áður en maður gekk inn. Við höfum áhrif á andrúmsloftið í sérhverju því rými sem við erum stödd í. Sérstaklega á það við um fólk í forystu, eitthvað breytist við nærveru þess. En er það til góðs eða ills? Spennist fólk upp þegar ég mætir? Róast það? Er það glatt að sjá mig? Hrætt við mig? Spennt að ég sért á staðnum? Gleðst maki minn yfir að sjá mig eða er hann áhyggjufullur yfir því að nú bætist trúlega við eitt atriði enn að kvarta yfir þegar ég kemur? Því miður hafa margir ekki hugmynd um hvernig svara eigi þessari spurningu á heiðarlegan hátt. Enn verra er það þegar fólk er óöruggt með sig, þá þorir það ekki að leita svara við spurningunni. Reiður leiðtogi eða sá sem sífellt snýst í vörn sig getur gengið að því sem vísu að samstarfsfólk hans er líka hrætt við að svara honum þessari spurningu. Ef við viljum á hinn bóginn vaxa í tilfinningagreind þurfum við að vita hvað gerist þegar við stígum inn í rýmið. Að læra hvernig við höfum áhrif á annað fólk. Þess vegna er gott að spyrja fólk hvernig það sé að vera í sporum þess í samskiptum við okkur. Við þurfum að spyrja skýrt og heiðarlega og leggja niður varnirnar. Aðeins að hlusta. Hver sem gerir þetta mun undrast yfir því sem hann uppgötvar. CAREY NIEUWHOF

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.