Bjarmi - 01.10.2021, Page 29
bjarmi | október 2021 | 29
Fyrir rúmum áratug fór ég að spyrja
samstarfsfólkið um hvaða áhrif ég hefði
á það, og einn svaraði: Þú ert Bamm
Bamm og vísaði í fígúru í teiknimyndum
Steinaldarmannanna (Flintstones) sem
vissi ekki sem smábarn hversu sterkur
hann var.
Ég er augljóslega sterkur persónuleiki.
Lengi vel gerði ég mér ekki grein fyrir því,
ég var bara ég sjálfur. En þegar ég fór að
grennslast fyrir sagði samstarfsfólk mitt
mér að þegar ég gengi inn horfði það á mig,
ég segði skoðun mína og sveiflaðist yfir
herbergið. Ekkert rými var fyrir samræður.
Ég gaf starfsfólkinu leyfi til að minna
mig á þetta. Upp frá því í nokkur ár var
ég minntur á Bamm Bamm. Ég baðst
afsökunar og hætti. Ég lagði mig fram um
að vera meðvitaður um sjálfan mig og hvað
ég væri að gera. Ég spurði fólk bæði á
undan og eftir fundi hvaða hlutverki ég ætti
að gegna og leitaði eftir endurgjöf hvort ég
beitti mér um of eða of lítið. Það var mikil
hjálp.
Meira að segja heima spyr ég jafnt
og þétt: Hvernig er að hafa mig á
staðnum? Samræðurnar sem fylgja bæta
alltaf heimilislífið – ef við erum tilbúin að
breytast.
2. LÁTUM SKAPSVEIFLUR OKKAR
EKKI BITNA Á ÖÐRUM
Sumir dagar eru góðir, aðrir dagar ekki svo
góðir. Margir láta það bitna á öðrum þegar
dagarnir eru slæmir. Enginn vill vinna með
þeim sem eru þannig í langan tíma, einkum
ef slæmu dagarnir verða margir.
Það er erfitt að hætta að láta sér líða illa
en það er hægt að hætta eða koma í veg
fyrir að það bitni á öðrum.
Sjálfsmeðvitund er helsti lykilinn að
tilfinningagreind. Sama á við um sjálfsstjórn.
Fólk í forystu gerir sér grein fyrir að þó svo
það sé í uppnámi þurfi það ekki að hafa
áhrif á aðra í kringum það, hvorki í vinnu
eða heima. Trúlega hugsarðu: Nú, hvernig
fæ ég útrás fyrir gremjuna? Hér er mín
uppástunga: Þú biður þeim mun meira.
Mig langar að benda þér á ágæta
bók um þetta efni eftir Andy Stanley:
Enemies of the Heart: Breaking Free from
the Four Emotions That Control You.
(Óvinir hjartans: Að losna frá ferns konar
tilfinningum sem stjórna þér). Hún hjálpaði
mér að komast að rótum tilfinninga minna.
Þar er farið að grunni þeirra fjögurra atriða
sem við berjumst við sem fólk og leiðtogar:
Sekt, reiði, ótta og öfund.
3. HÆTTUM AÐ ÁSAKA AÐRA
Tilfinningagreint fólk hefur ekki aðeins stjórn
á sjálfu sér, heldur tekur það líka ábyrgð á
sjálfu sér og verkum sínum. Ef við viljum
vera ábyrg þurfum við að hætta að ásaka
aðra. Ásökun er andstaða ábyrgðar.
Hvað gerum við þegar eitthvað fer
úrskeiðis? Þegar eitthvað vekur sorg og
leiða eða eitthvað sem við höfum ekki
stjórn á tefur framvindu mála?
Þá er mikilvægt að gera ráð fyrir því
að bera ábyrgð þó svo maður hafi ekki
gert mistökin sjálfur. (Einmitt þess vegna