Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2021, Blaðsíða 32

Bjarmi - 01.10.2021, Blaðsíða 32
32 | bjarmi | október 2021 Margir fræðimenn hafa fullyrt að í frumkirkjunni og síðar fornkirkjunni hafi bann Gamla testamentisins við gerð mynda útilokað myndir þar sem helgihald fór fram, þrátt fyrir að Guð hafi gerst maður í Jesú Kristi og þar með sýnt að Guð getur birst í jarðneskum veruleika. Því hefur verið haldið fram að það að gera mynd, styttu eða líkneski af Guði Föður eða Jesú Kristi hafi verið óhugsandi fyrir kristið fólk. Guð var almáttugur, einn og ósýnilegur og því ekki við hæfi að samsama hann myndum með skýra tilvísun í hinn skapaða heim. Myndir og líkneski vísuðu, samkvæmt þessari skoðun, beint og óbeint til skurðgoðadýrkunar. Auk þessa beri að gæta að því að söfnuðirnir hafi vænst nálægrar endurkomu Krists, langt fram á aðra öld. Söfnuður sem var mótaður af slíkri heimssýn gat varla séð ástæðu til að koma sér vel fyrir og til frambúðar í veröldinni með í því að byggja safnaðarhús, hvað þá að myndskreyta þau. Því varð talið að fyrst á fjórðu öld, þegar þessar væntingar höfðu dofnað verulega og kirkjan þurfti að koma sér til frambúðar fyrir innan rómversks samfélags, hafi farið að bera á myndefni í tengslum við kristinn átrúnað. Þessi sýn á þróun myndlistar í kirkjunni stenst reyndar ekki. FORN HÚSKIRKJA Húskirkja, sem fannst í fyrrum sýrlenska bænum Dura Europos og grafin var upp á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar, hefur átt þátt í að breyta þessari skoðun. Heimili virðist hafa verið breytt fyrir kristið helgihald, frá árinu 233 og fram um miðja þriðju öld. Þarna virðist vera safnaðarsalur og svo ríkulega myndskreytt skírnarkapella. Myndirnar varpa ljósi á myndnotkun innan fornkirkjunnar. Söfnuðurinn þarna hafði frá árinu 224 biskup og þar með er ekki hægt að tala um hann sem sérsöfnuð á mörkum Rómarveldis eins og einhverjir fræðimenn vildu meina. Það er því ekki sannfærandi að túlka myndefnið og tilvist þess í húskirkjunni sem dæmi um að hér hafi verið á ferðinni kristinn sértrúarsöfnuður er lagði mikið upp úr vægi skírnarinnar. Dura Europos var biskupssetur og húskirkjan var opinber bygging. Þar voru reglulega Myndir í fornkirkjunni og fundin húskirkja SIGURJÓN ÁRNI EYJÓLFSSON

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.