Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2021, Síða 33

Bjarmi - 01.10.2021, Síða 33
bjarmi | október 2021 | 33 haldnar guðsþjónustur og auk þess gefur myndefnið til kynna þróaða sköpunar­ og endurlausnarguðfræði sem er vart hægt að eigna einangruðum kristnum sértrúarsöfnuði. Þess ber að geta að innan frum­ kristninnar og forkirkjunnar er ekki að finna neinar kennisetningar er banna gerð eða uppstillingu mynda. Vissulega er til samþykkt frá kirkjuþingi í Elvíra (306) um að ekki eigi að vera myndir í samkomuhúsum. Hún aftur á móti gefur einungis til kynna að jafnt í vestur­ sem austurhluta Rómaveldis hafi sá siður verið orðinn útbreiddur að myndskreyta samkomustaði og húskirkjur. Það samræmdist vel þeirri venju innan gyðingdómsins að myndskreyta samkunduhús. Þar sem myndbann fyrsta boðorðsins beindist ekki að myndum, styttum og líkneskjum sem slíkum, heldur að tilbeiðslu þeim tengdri. Það er vissulega að finna gagnrýni á myndir og myndanotkun í síðgyðingdómi hellenismans. Þar á meðal var Fíló frá Alexandríu (20 f.Kr. –45 e.Kr.) sem vísar til kenninga Platóns um bann við myndum og hið sama gerir Jósefus sagnaritari (38– 100). Í fornöld gripu fulltrúar gyðingdóms og kristindóms til frummyndakenningar Platóns og tengdu við myndbannið. Það var gert til að draga fram handanveru Guðs og áherslu á andlegan veruleika eða frummyndirnar innan viðkomandi trúar. Kirkjufeðurnir vísuðu til frummynda­ kenningarinnar í gagnrýni á myndadýrkun en leyfðu jafnframt að notaðar væru myndir. Þannig vill Klemens frá Alexandríu (150–215) að menn noti ekki heiðin tákn á innsiglishringa sína, heldur kristin, eins og dúfu, fisk, skip, hörpu eða akkeri. Jafnvel harðir gagnrýnendur á myndanotkun eins og Tertúllían (150–220) höfnuðu fyrst og fremst myndadýrkun. Myndirnar höfðu fyrir bæði gyðinga og kristna á þessum tíma táknræna og fræðandi merkingu eins og myndirnar í skírnarkapellunni í Dura Europos vitna vel um. Myndbrjótar innan kristninnar réttlættu því gjörðir sínar jafnan með rökum sem eiga frekar rætur í frummyndakenningu Platóns og útfærslu hennar innan hellensks menningarheims og heimspekisögunnar, en í myndbann fyrsta boðorðsins. TÁKN OG MYNDEFNI Í FORNKIRKJUNNI Að nota myndir í tengslum við guðsþjónustuhald og trúarlíf er þegar á þriðju öld útbreiddur siður, sem myndaði fyrstu skrefin í átt að markvissri kristinni listsköpun. Þar sem innan kristindóms þess tíma var ekki til staðar nein miðstýring eða stofnanaleg stjórnun á söfnuðum og samskiptum þeirra, þróaðist listsköpun tiltölulega óhindrað áfram. Menn sóttu myndefni í umhverfi sitt sem var tengt við vissa sammannlega þætti, siðferði, þrár og vonir. Myndin af hirðinum sem var útbreidd er nýtt til að túlka efni úr dæmisögum Jesú um góða hirðinn eða Jesú Krist sem góða hirðinn. Myndin er löguð að kristnum táknheimi og veitt ný merking þó að hún greini sig lítt frá öðrum myndum af hirðum. Myndir við grafir kristinna einstaklinga vitna líka um aðlögum myndefnis. Í

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.