Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.10.2021, Qupperneq 34

Bjarmi - 01.10.2021, Qupperneq 34
34 | bjarmi | október 2021 Rómarríki og innan hins hellenska heims voru oft myndir við grafir ástvina sem minntu á líf viðkomandi. Við kristnar grafir er snemma að finna myndir um dauðann sem svefn og vonina um upprisu og/eða lífið eftir dauðann. Þær vísa í efni úr Gamla testamentinu, eins og fórn Abrahams, uppsprettuundur Móse í eyðimörkinni, Jónas í hvalnum eða í sálma Davíðs þar sem er fjallað um að hvíla í skugga náðar Guðs. Úr Nýja testamentinu er efnið, skírn Jesú, samtal hans við samversku konuna, lækning hins lama eða upprisa Lasarusar. Áherslurnar eru skýrar, björgun mannsins fyrir náð Guðs. Ísak er bjargað frá dauða, Jónasi úr fangi kaosaflanna (óreiðunnar) sem sjórinn og fiskurinn eru fulltrúar fyrir, hinn lami og Lasarus eru í orðsins fyllstu merkingu kallaðir aftur til lífsins. Vatnið í myndefninu vísar aftur á móti til skírnarinnar og undirstrikar það eilífa líf sem skírnarþeginn á. Myndefnið á að miðla huggun og von. Myndlistarmennirnir voru óhræddir við að nota fyrirmyndir úr umhverfinu. Þetta efni er áberandi við grafir kristins fólks í katakombunum í Róm, en þær elstu eru frá byrjun þriðju aldar. Auk þessa er að finna efni með beinar tilvísanir í líf viðkomandi. Algengt er að karlmenn séu sýndir við lestur og konur við bæn en þetta myndefni er þegar þekkt í rómverskri menningu til að draga fram trúrækni viðkomandi. Ef hugað er að skírnarkapellunni í Dura Europos þá samræmist hún þessu vel. Þar er greint frá meginefni hjálpræðissögunnar í myndum með mynd af Adam og Evu í tengslum við syndafallið (1Mós 3.1–7), þar er mynd af hirði, baráttu Davíðs og Golíats (1Sam 17.51), lækningu hins lama (Matt 9.1–18), er Jesús gengur á vatni (Matt 14.22–23), samversku konunni við brunninn (Jóh 4.5–29), tilvísun í dæmisögu Jesú um fávísu og vitru meyjarnar (Matt 25.1–13) og mynd af konunum við gröf Jesú (Mrk 16.1–4). Áberandi er að allar 1 Greinin er brot úr BA­ritgerð í listfræði við Háskóla Íslands: Myndbann og afhelgun: Alræðiskenningar afhjúpaðar í myndmáli, nóv. 2020. Efnið er aðeins stytt og einfaldað. 2 Um heimildir greinarinnar vísast til ítarlegrar heimildaskráningar á bls. 45­48 í áðurnefndri BA­ritgerð sem finna má á skemman.is. þessar myndir eru ekki viðfang tilbeiðslu heldur vísa til þátta í ritum Ritningarinnar og „sögulegra“ atburða í tengslum við líf, starf, dauða og upprisu Jesú. Kristur er ætíð staðsettur innan sögu sinnar eins og greint er frá henni í guðspjöllunum. Á þriðju öld og við upphaf þeirrar fjórðu fer að bera á að myndirnar sjálfar verði viðfang tilbeiðslu sem samræmdist ekki kristnum trúarskilningi og var m.a. andmælt á áðurnefndu kirkjuþingi í Elvíra 306. Þar var hnykkt á vægi myndbannsins en vægi þess fyrir kristna söfnuði birtist skýrast í höfnun þeirra á keisaradýrkuninni. NIÐURSTAÐA Af ofangreindu er ljóst að innan kristninnar var sýn manna á vægi mynda jafnan jákvæð, þótt varað væri við þeirri hættu að fólk beindi bænum sínum að myndum eða færi að tilbiðja þær.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.