Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2021, Síða 36

Bjarmi - 01.10.2021, Síða 36
| bjarmi | október 202136 heimreiðina – við þurftum annarra hjálp til að draga okkur í vanmætti okkar. Gestur okkar var ung kona á miðjum þrítugsaldri, aðlaðandi, dökk yfirlitum og ilmaði ekki svo lítið af patchouliolíu og e.t.v. jafnvel kannabis. Við buðum henni sæti við borðið og hún útskýrði að hún væri „nýaldar“­ferðalangur en þannig væri komið fyrir henni að hún þyrfti að komast burt frá kærastanum sem hún byggi með og öllum öðrum og fá einhvern smábotn í líf sitt. Hún hafði reynt að skrá sig í einhverjar nýaldardvalir og búddatrúarmiðstöð sem vildi að hún eyddi nokkrum mánuðum í að hreinsa sjálfa sig, vegna þess að hún væri kona, áður en þeir veittu henni aðgang. Hún hafði fyllst örvæntingu og flogið í hug að e.t.v. ætti hún að reyna okkar kristnu miðstöð – samt í von um að við segðum nei. Jákvæð viðbrögð okkar kölluðu fram blendnar tilfinningar hjá henni. Við Daphne hvísluðumst aðeins á og buðum henni að dveljast ef hún hjálpaði eina klukkustund á dag. (Við fundum upp hreingerningastarf því við vildum að hún gæti fundið að hún legði eitthvað af mörkum fyrir dvölina.) Við ætluðum að setja hana í lítið herbergi en Daphne fannst að við ættum að láta hana hafa það besta sem við áttum. Við sýndum henni herbergið og létum hana fá blað með upplýsingum um stundir í kapellunni. Við sögðum henni að hún væri hjartanlega velkomin en alls ekki væri þrýst á hana að mæta. Næsta morgun kom hún í kapelluna og tók þátt í morgunhelgistund okkar þar sem fólst í söng, bæn, íhugunarlestri úr Davíðssálmi, hljóðri stund, íhugandi bæn út frá lestrinum og lokabæn. Hún hélt að við hefðum verið með heila messu! Það var ljóst að hún þekkti lítið til hversdagslegs kristnilífs. Ég lét hana hafa pappírsörk með hugleiðingarorðum eftir hverja máltíð. Fyrir hverja máltíð voru lesin ritningarorð og farið með stutta bæn, einfaldlega svona: „Drottinn, ef orð þitt er satt, ljúktu því þá upp fyrir mér. Amen.“ Ég fékk henni einnig Biblíu og minnisblokk og penna og hvatti hana til að skrifa niður athuganir, spurningar sínar og hvað eina sem henni fyndist koma til sín úr Ritningunni. Ég gerði það ljóst að við mundum ekki fylgjast með hvort hún gerði þetta og að við þyrftum ekki að sjá það sem hún skrifaði. Á föstudeginum settumst við niður eftir morgunstundina í kapellunni og fengum okkur kaffi. Hún byrjaði að útskýra fyrir mér hvers vegna henni geðjaðist ekki að kristnu fólki. (Ja, þetta var ekki það sem ég átti von á eftir alla okkar ókeypis gestrisni!) Hún vísaði til þeirrar kröfu kristins fólks að Jesús sé eini vegurinn til Guðs. Í hennar huga var augljóst að hundruð mismunandi leiða lægju til Guðs og að halda öðru fram væri hrokafullt. Ég útskýrði að skoðun kristins fólks væri ekki grundvallaratriðið. Það sem skipti meira máli væri hvað Jesús hefði sagt. Hann fullyrti að hann væri „vegurinn, sannleikurinn og lífið“ og var viss um að enginn kæmi til Föðurins nema fyrir sig (Jóh 14.6). Ég benti hógværlega á þarna væri um lykilatriði að ræða. Væri hún reiðubúin til að taka mark á orðum Krists? Hún vildi rökræða þetta en ég sagði henni að það væri tími til kominn fyrir hana að fara og halda áfram með áætlun sína það sem eftir væri dagsins. Hún varð agndofa. Ég sagði henni að ég væri ekki reiðubúinn að rökræða orð Jesú. Ef hún ætti í vandræðum með þessi orð þá þyrfti hún að ræða við Jesú um þau. Að lokum lagði ég hönd á bak hennar og vísaði henni hógværlega út um dyrnar því hún vildi ekki fara. Hún vildi rökræða þetta. Næsti dagur var laugardagur og við Daphne nutum hugsunarinnar um að fara seint á fætur og almennt að slappa af. En þannig átti þetta ekki eftir að fara. Snemma dags var barið að dyrum hjá okkur. Við dröttuðumst niður stigann og klæddum okkur í sloppana og opnuðum dyrnar fyrir okkar ameríska gesti. Hún skalf og hristist af æsingi. „Hvers vegna sögðuð þið mér ekki sannleikann? Af hverju sögðuð þið mér ekki sannleikann?“ endurtók hún. Ég sagði: „Mér þykir það leitt. Hvað áttu við?“ Hún sagði: „Hvers vegna sögðuð þið mér ekki að Guð sé Faðir minn, að hann hafi skapað mig og hafi áætlun með líf mitt? Hvers vegna sögðuð þið mér ekki að hann elskar mig yfirgengilega og að ég hef aldrei verið skilin eftir ein? Hvers vegna sögðuð þið mér þetta ekki? Hvers vegna sögðuð þið mér ekki að Jesús er raunverulega Sonur hans og að þegar hann dó þá tók hann burt synd mína? Hvers vegna sögðuð þið mér ekki að Guð reisti hann upp til lífs? Hvers vegna sögðuð þið mér ekki að hann upphóf hann sér til hægri handar? Hvers vegna sögðuð þið mér ekki að Jesús geti komið núna inn í hjarta mitt til að búa þar og gert mig að nýrri persónu? Hvers vegna sögðuð þið mér þetta ekki?“ Ég stóð þarna gapandi og spurði: „Hvernig veistu allt þetta?“ „Vegna þess að hann gerði það núna í morgun, var það ekki? Hann kom inn í hjarta mitt og hefur breytt mér – ég er ný manneskja. Hvers vegna sögðuð þið mér ekki þetta allt?“ Mér fannst að samræðurnar ættu að halda áfram í eldhúsinu. Hún kom inn og stóð næstum á öndinni og hélt óðamála „ÞÚ ERT EKKI SÚ SEM ÉG ÞEKKI. ÞÚ HEFUR EIGNAST ÞAÐ SEM ÉG HEF ALLTAF VILJAÐ ÖÐLAST. HVAÐ ER ÞAÐ? OG HVERNIG GET ÉG FENGIÐ ÞAÐ?“

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.