Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.10.2021, Page 37

Bjarmi - 01.10.2021, Page 37
bjarmi | október 2021 | 37 áfram: „Ég er svo spennt yfir að hann skuli hafa komið. Ég vissi ekki að hann væri svona. Hvers vegna sögðuð þið mér ekki frá því?“ Ég áttaði mig á því að hún hafði lesið það sem bent var á og tekið undir bænina við allar máltíðirnar. Svo leit hún á mig og sagði: „Þú sagðir mér ekki frá eldinum.“ Ég var ekki viss um hvað ég átti að halda miðað við það sem hún hafði sagt okkur um nýaldarbakgrunn sinn og fikt við eiturlyf. „Þið sögðuð mér ekki að Guð búi yfir eldi og að hann geti beint þessum eldi að þér svo að þú getir logað fyrir hann og þegar þú hittir annað fólk þá getur eldurinn sem hann hefur tendrað í þér snert við öðru fólki svo það geti einnig farið að brenna fyrir hann.“ Gott svo langt sem það náði. Þetta var ekki alveg eins og ég hefði orðað það en orðin komu frá hjartanu. Hún hafði einfaldlega mætt Guði sem hafði tendrað þetta í henni og hún tjáði þetta eins og hún skildi það. Daphne og ég þurftum að fara út síðar en þegar við snérum aftur síðdegis kom hún þjótandi til að hitta okkur, uppfull af nýjum fréttum. „Ég er hrædd um að það hafi gengið dálítið á meðan þið voruð í burtu og ég veit ekki hvort það er í lagi.“ Aftur brá mér mikið en enn og aftur gufuðu áhyggjur mínar af andlegum ruglingi upp eftir því sem leið á frásögn hennar. Hún hafði ákveðið að ganga til næsta smábæjar, Newport, sex til sjö km göngu. Á leiðinni sá hún mann koma gangandi í áttina til sín. Þegar hún horfði á hann fannst henni Guð tala til sín og hún sagði við manninn: „Afsakaðu, ég veit að þú þekkir mig ekki en Guð hefur sagt að hann hafi heyrt bænir þínar og þú þurfir ekki að hafa áhyggjur því hann svarar bænum þínum.“ Hann horfði á hana og brast í grát. Þegar hann þurrkaði tárin spurði hann hana hvort hún væri engill eða mannvera og hún fullvissaði hann um að hún væri venjuleg kona. Síðan sagði hann henni að um morguninn hefði hann hrópað til Guðs í örvæntingu og beðið hann að sýna að hann hefði heyrt með því að senda engil til að segja sér það. En það var meira. Hún fór síðar inn í krána í bænum til að fá sér eitthvað að borða í hádeginu vegna þess að þangað var henni eðlilegast að leggja leið sína í sinni menningu. Einn af yngri viðskiptavinunum þekkti hana. Hann fylgdist með henni um stund en kom síðan til hennar og sagði: „Þú ert ekki sú sem ég þekki. Þú hefur eigast það sem ég hef alltaf viljað öðlast. Hvað er það? Og hvernig get ég fengið það?“ Án þess að vita alveg hvað hún átti að segja, sagði hún honum að hann þyrfti að fara til Ffald­y­Brenin og tala við okkur. Hann var með bíl svo hann ók henni aftur á kyrrðarsetrið. En af því að við vorum ekki þar þá fór hún með hann í kapelluna. Þegar þau fóru þar inn kom Heilagur andi yfir hann og í nokkrar klukkustundir grét hann án afláts. Þegar við Daphne komum aftur var hann farinn en hann kom aftur nokkrum dögum síðar. Hann heilsaði mér innilega með handabandi. Hann hafði misskilið vinkonu sína dálítið og var sannfærður um að ég væri faðir Brendan (sbr. sæfarann mikla á 6. öld). (Stundum nær fólk þessu ekki rétt og skilur „Ffald­y­Brenin“ sem „Faðir Brendan“. Ég kem því venjulega í réttan skilning með því að kynna konu mína sem „Móður Brendan!“) Þegar þessi misskilningur var úr sögunni hélt hann áfram: „Ég vil þakka ykkur. Ég vil segja: blessa þig. Ég kom og dvaldi um tíma í kapellunni ykkar og Guð kom og gerði eitthvað í lífi mínu. Ég vil bara þakka ykkur. Ég er ekki sá sami, ég verð aldrei sá sami, Guð blessi þig.“ Margt fólk sem Guð snertir vill blessa aðra. Það hefur fundið kjarna þess sem Guð er að gera á meðal manna. Ég lærði brátt heilmikið um sögu kristninnar hér í Pembrokeskíri. Snemma á sjöttu öld kom kristinn Íri, Brynach að nafni, til Milford Haven og byrjað var að vinna heiðna íbúa svæðisins til trúar. Hann kom á fót öðru samfélagi í Haverfordwest áður en hann flutti til Gwaundals (Cwm Gwaun, mýrdalur) hér neðan við Ffald­y­Brenin. Hann spurði litla samfélagið, sem átti heima við ána (Afon Gwaun, mýraá) hvort hann mætti fá landskika og búa á meðal fólksins. Hann átti ekki sjö dagana sæla vegna fjölkynngi og heiðindóms sem tilheyrði lífinu í dalnum. Það eru fimmtán hundruð ár síðan Brynach gerði sér að venju að klífa hæðina sem Ffald­y­Brenin stendur á og allt upp á klettana á brúninni þar sem hann bað fyrir byggðinni. Bænir hans voru svo sérstakar og heitar að fólk í dalnum fór að skynja þessa hlíð sem „helgan stað“. Því var trúað að þegar hann bæði þá kæmu englar og styrktu hann og nærvera Guðs birtist hjá honum í hlíðinni. Hlíðin varð þekkt sem Carn Ingli – englahæð. Hér í Ffald­y­Brenin erum við arftakar merkilegrar andlegrar sögu. Þegar ég ræddi við fólk um Wales, vakningu og návist Guðs varð ég var við sérstök velsk tengsl við landið. Hvenær sem Guð lætur til sín taka í Wales þá kemur landið einhvern veginn við sögu. Á okkar dögum er að finna margt fólk víða í Wales sem talar af mikilli alvöru og innileika um síðustu þjóðarvakningu á árunum 1904­´05. Það eru dæmi um að Guð hafi látið til sín taka með öflugum vakningum á svæðum í Wales síðan þá. En svo virðist sem vakningin í Wales 1904­ ´05 hafi verið stöðvuð áður en hún náði að renna sitt skeið og að söngur til Guðs sé enn einhvern veginn grafinn í landið og bíði þess að vera leystur út. Hvað merkir þetta?

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.