Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.10.2021, Page 38

Bjarmi - 01.10.2021, Page 38
| bjarmi | október 202138 KELTNESK KIRKJA? Hér verður aðeins litið til nokkurra þátta úr „keltneskri kristni“ og þá einkum tekið mið af Írlandi. Stundum er talað um keltnesku kirkjuna (frá fimmtu til tólftu aldar) en það er hæpið að tala um keltneska kirkju. Kristnin á keltneskum landsvæðum var alltaf hluti af hinni almennu kirkju í vestanverðri Evrópu og kirkjuleg skjöl þarna jafnan skráð á latínu. Staða þjóðtungunnar var þó sterk í ræðu og riti sbr. t.d. gamlar bænir og sálma að ógleymdum hinum mikla bálki írskra fornsagna. Töluverður breytileiki var einnig í kirkjulegum háttum á milli landa og menningarsvæða langt fram á miðaldir þegar rómverska kirkjan fór að beita meira miðstjórnarvaldi undir forystu páfa. Menningarlegur sérleiki keltneskrar kristni var því ekki einstætt fyrirbæri framan af öldum. Engin heildar samræming eða stjórnun var yfir keltnesku svæðunum (á Bretlandseyjum og í Frakklandi) og því einnig nokkur breytileiki á milli þeirra. Hugtakið „keltnesk kristni“ verður því einnig að nota af nokkurri varúð. MÓTUN KRISTNINNAR Kristni er talin hafa borist snemma til Bretlands með kristnum farand­ kaupmönnum og jafnvel rómverskum hermönnum. Vitað er um nokkur hundruð kirkna þar árið 313. Heiðnir Engilsaxar ruddust svo inn yfir austurströnd Englands frá því um miðja 5. öld. Af þeirra völdum þrengdi mjög að kristninni. Heilögum Patreki (um 385–461), þjóðardýrlingi Íra, er rænt sem unglingi, e.t.v. í Wales, en hann var af kristnu fólki kominn. Hann snéri svo aftur til Írlands eftir að hafa flúið úr þrældómi þar og menntast og fengið vígslu og er sagður hafa unnið stórvirki við kristnun Írlands. Hafa ber í huga að kirkjan í vestanverðri Evrópu tók smám saman vaxandi mið af skipulagi og stjórnarháttum Rómverska ríkisins. Þar voru borgir miðlægar stjórn ­ stöð var í skýrt afmörkuðum stjórnunar­ umdæmum. Áhrif Rómverja voru takmörkuð í Skotlandi og Írar lutu þeim aldrei. Á Írlandi voru engar borgir og valdsvæði ættarhöfðingja voru ekki endilega skýrt afmörkuð. En hér skal vitnað til hins virta breska fræðimanns Philip Sheldrake: „Dreifbýlissamfélag keltnesku land anna með langa þjóðflutningahefð hlaut eðlilega að hugsa sér kirkjuna allt öðruvísi en reynsla staðbundnara fólks í þéttbýlli rómverskum heimi gaf tilefni til. Þannig keppti sveigjanlegri eða meira fljótandi skipan keltneskrar kristni við rómverskan smekk fyrir formfastara stjórnkerfi sem birtist í skipulögðum biskupsdæmum. Kirkjulegt starfsfólk, eins og biskupar og prestar, var almennt síður tengt stjórnunarlegum hlutverkum en annars staðar. Þetta fólk gat gegnt andlegri þjónustu sem ekki var endilega bundin tilteknum stað“ (Sheldrake, bls. 5). Horft til keltneskra trúarhefða VIGFÚS INGVAR INGVARSSON

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.