Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2021, Blaðsíða 44

Bjarmi - 01.10.2021, Blaðsíða 44
44 | bjarmi | október 2021 Ný og glæsileg starfsstöð Hjálpræðishersins RAGNAR GUNNARSSON Ný starfsstöð Hjálpræðishersins, nýr Her­ kastali, sem tekinn var í notkun í fyrravetur var loks vígður í ágústlok, en vígslan hafði tafist vegna samkomutakmarkana. Gamli Herkastalinn sem að miklu leyti var gistiheimili fyrir utan samkomusalinn var seldur fyrir nokkrum árum. Nýja húsið stendur við Suðurlands­ braut og er vel í sveit sett, stutt frá biðstöð Strætó við Miklubraut og eins stendur til að Borgarlínan verði með biðstöð nánast beint framan við húsið. Arkitektar voru þau Hans­Olav Andersen og Sigríður Magnúsdóttir. Hugsunin með útlitinu er annars vegar vísun í burstabæinn og hins vegar fjöllin að baki margra bæja og um leið vísun í Sálm 121. Þótti þeim þetta verðug tenging við íslenskt samfélag eftir 125 ára starf Hersins hér á landi. Herinn er hluti af íslensku samfélagi og veruleika en jafnframt alheimshreyfing og með tengingu inn í himininn, Guðs ríki. Í nýju starfsstöðinni eru margir salir og vistarverur sem nýtast vel fyrir fjölbreytt starf Hersins. Við aðalinnganginn er mötuneyti en opinn matsalur til hægri, til vinstri er annar vænn salur sem upphaflega var hugsaður fyrir verslunina Hertex, nytjamarkað Hersins, en hann verður áfram við Vínlandsleið og salurinn nýttur í annað starf. Samkomusalur er innar í húsinu sem og minni herbergi. Þar er aðstaða fyrir barna­ og unglingastarf, aðstoð við heimanám sem og kennslustofa fyrir kvennastarfið, smáhópa og starf meðal eldri borgara. Einu sinni í viku fer gönguhópur frá húsinu og gengið um Laugardalinn en að því loknu er bænastund. Ókeypis máltíðir eru í boði í hádeginu fyrir þurfandi og fær Herinn ótal gjafir frá fyrirtækjum til að nota í eldamennskunni. Í anddyrinu eru handgerðar vörur frá Pakistan, Eþíópíu, Keníu og víðar, í anda sanngjarna viðskipta. Samkomusalurinn er með fullkomnu hljóðkerfi og hægt að skipta honum í

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.