Bjarmi - 01.10.2021, Síða 46
| bjarmi | október 202146
Fagnaðarerindið
hljómar í Pakistan
RAGNAR GUNNARSSON
Fyrir um það bil þremur árum fékk Andrew
Hart, sem á þeim tíma vann fyrir Sat7,
kristilegt gervihnattasjónvarp í Norður
Afríku og MiðAusturlöndum, köllun til
að gera eitthvað svipað fyrir Pakistan.
Sat7 sendir út á fimm rásum og þremur
tungumálum, arabísku, farsi og tyrknesku.
Sjónvarpsstarfið hefur verið gríðarlegur
stuðningur við kirkjur og kristið fólk á
svæðinu.
En nú kallaði Guð Andrew til að gera
eitthvað svipað fyrir Pakistan. Úr varð að
hefja kristilega fjölmiðlun undir heitinu
Pak7. Ekki var stefnt á gervihnattasjónvarp
heldur að nýta netið, efnisveitur þar og
samfélagsmiðla, ekki síst með það fyrir
augum að ná til unga fólksins í landinu.
Starf Pak7 hefur gengið vel og
er fjölbreytt dagskrá í boði á ýmsum
efnisveitum og samfélagsmiðlum.
Kristniboðssambandið hefur tekið
þátt í þessu starfi frá byrjun með
fjárframlögum sem hjálpa til við að minna
á fagnaðarerindið í Pakistan með ýmsum
hætti. Vonandi verður hægt að efla þann
stuðning enn frekar.
Hugsjón Pak7 er m.a. að ná að framleiða
sjónvarpsefni fyrir ríkissjónvarpið í Pakistan
þar sem jákvæð mynd af kristnu fólki og
kristinni trú kemur fram um leið og fólk nýtur
góðs efnis. Þannig er dregið úr fordómum
og brú byggð á milli mismunandi trúarhópa.
Einnig er áhersla á kristilegt efni sem byggir
fólk upp í kristinni trú, ekki síst dagskrá fyrir
börn og ungmenni og að framleiða stutt
myndbönd fyrir samfélagsmiðla sem leiða
til samræðna um aðstæður og spurningar
lífsins og loks að efla þekkingu og færni í að
framleiða dagskrá og þar með hvetja kristið
fólk til að nýta sér vettvang fjölmiðlunar til
að koma sér á framfæri.
FJÖLMIÐLUNARSKÓLI
Til að auðvelda framleiðslu var ákveðið
að setja á stofn fjölmiðlunarskóla, PAK 7
Media School, og bjóða upp á námskeið
í kvikmyndun, myndvinnslu og klippingu,
dagskrárgerð, handritsgerð og fleiru tengdu
því að setja gott efni á netið sem yrði kristnu
fólki til uppörvunar og hvatningar.
Þegar hefur nokkur hópur ungs fólks
lokið námi og þjálfun og sum þeirra vinna
nú fyrir Pak7. Nemendur þessa árs voru
22 talsins, karlar og konur, og luku fyrir
stuttu síðan þjálfun sinni m.a. með því að
framleiða fjórar kvikmyndir, tvær leiknar og
tvær heimildamyndir.
Flest í hópnum munu vinna áfram fyrir
Pak7 í minni hópum í ýmsum borgum
Pakistans og framleiða dagskrá fyrir börn
og fyrir ríkissjónvarpið fyrir utan stuttmyndir
fyrir samfélagsmiðla. Markmiðið er að miðla
kærleika Guðs til íbúa Pakistan með hjálp
fjölmiðlunar.