Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.10.2021, Page 47

Bjarmi - 01.10.2021, Page 47
bjarmi | október 2021 | 47 BARNAEFNI Til að ná til barna í Pakistan var ákveðið að leggja áherslu á söng og tónlist. Ákveðið var að framleiða efni með hressum krökkum sem syngja kristilega söngva sem meðal annars kenna þeim um Biblíuna og efla og styrkja trú þeirra. Hugsunin var að börnin gætu horft á efnið heima t.d. á Youtube. Þannig næði fjölskyldan öll að fylgjast með. Þegar farið var að leita fundust ekki margir kristilegir barnasöngvar á urdu og almennt þá áratuga gamlir. Það þurfti því að yrkja nýja söngva. Í samstarfi við IFRA, kristilega hljómsveit með mikla reynslu, voru ortir nokkrir nýir söngvar. „Við vonum að þessir söngvar verði skemmtilegir og virki börnin svo þau vaxi í Jesú“ sagði John, sönglagahöfundur og tónlistarmaður. Í framhaldinu voru gerð myndbönd með teiknimyndum í skærum litum sem sýndu viðeigandi hreyfingar við söngvana. Þrátt fyrir takmörkuð fjárráð tókst verkefnið vel og því er trúað að þessir söngvar verði til blessunar. Einn söngurinn fjallar um erfiðleika sem geta virst vera sem fjöllin há, og ótti fyllir hjarta og huga minn, „en í öllum mætti mínum og allri minni sál get ég unnið þrekvirki með Jesú.“ AFGANISTAN Landamæri Pakistan í norðri liggja að Afganistan þar sem umfangsmiklar breytingar hafa orðið með yfirtöku talíbana. Það sem gerist í Afganistan hefur sín áhrif í Pakistan líka. Viðbrögðin eru þó afar misjöfn: Sumir gleðjast yfir sjálfstæði Afganistans sem sé nú laust við íhlutun erlendra aðila. Margir vona að talíbanar muni stjórna landinu af meiri mildi en áður var og að afstaðan til kvenna hafi breyst. Allir vona að komist verið hjá því að flóttamannakreppan endurtaki sig en þá voru á tímabili fjórar milljónir Afgana sem lifðu og störfuðu innan Pakistans. Ríkisstjórn Pakistans hefur tekið sér tíma til að skoða framvindu mála og taka afstöðu, ekki síst þegar í ljós kemur hverjir verða í raun stjórnarhættir nýrra valdhafa í Pakistan. Andrew Heart hvetur fólk til að biðja og sérstaklega fyrir yfirvöldum í þessum tveimur löndum, Pakistan og Afganistan, í takt við hvatninguna í 1. Tímóteusarbréfi 2.2: „Biðjið fyrir konungum og öllum þeim sem hátt eru settir til þess að við fáum lifað friðsamlegu og rólegu lífi í guðsótta og siðprýði.“ Á tímum umbyltinga leitar fólk svara og Pak7 heldur áfram að miðla kærleika Guðs í Pakistan á félagsmiðlum og víðar. Í lok hvers mánaðar kemur í ljós að búið er að horfa á myndbönd Pak7 yfir milljón sinnum og hundruð hafa haft samband þar sem hjálpar er leitað. „Það eru forréttindi að fá að biðja með þeim og tala við þau sem hafa samband um kærleika Guðs.“ NOKKRAR STAÐREYNDIR UM PAKISTAN Pakistan er 796.095 ferkílómetrar að stærð. Íbúar landsins voru í júlí í fyrra taldir vera 233,5 milljónir og fólksfjölgun 2% á ári. Stærsta þjóðarbrotið eru Punjabi sem eru tæp 45% þjóðarinnar. 48% íbúa landsins tala punjabi, 12% sindhi, 10% saraiki (náskylt punjabi) og 8% tala pashto og 8% urdu. Af íbúunum teljast 96,4% til múslíma (súnní múslímar ráðandi), sem þýðir að aðrir (þar á meðal kristnir og hindúar) eru 3,6%. Þær tölur eru áætlaðar og frá 2010. Læsi er um 60% og hátt í 40% íbúa landsins búa í stórborgum. (Heimildir: Fréttabréf Pak7, www. pak.org og The World Factbook, www. cia.gov/the-world_factbook/)

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.