Skessuhorn - 13.10.2021, Qupperneq 2
MiðViKUdAgUR 13. oKTóBER 20212
Næsta laugardag spila Skagamenn
gegn Víkingi Reykjavík í úrslitum
Mjólkurbikarsins í knattspyrnu.
Skagamenn léku síðast til úrslita í
þessari keppni árið 2003 þegar þeir
sigruðu FH-inga í úrslitaleik 1-0. Því
er ærin ástæða að skella sér í Laug-
ardalinn um helgina og alveg upp-
lagt að taka fjölskylduna alla með og
leyfa krökkunum að upplifa stemn-
inguna beint í æð. Hvetja sitt lið af
miklum móð, öskra úr sér lungun og
fagna vonandi í leikslok. Áfram ÍA!
Á fimmtudag verður suðvestan 5-13
m/s og léttskýjað að mestu. Hiti 0 til
6 stig en um eða undir frostmarki
á Norður- og Norðausturlandi. Á
föstudag er útlit fyrir vestlæga átt
og lítilsháttar vætu vestanlands og
stöku él fyrir norðan en annars skýj-
að með köflum. Hiti breytist lítið. Á
laugardag má búast við austlægri
eða breytilegri átt, skýjað að mestu
og dálítil væta á víð og dreif, einkum
sunnan- og vestanlands. Hiti í kring-
um frostmark fyrir norðan upp til 6
stiga syðst. Á sunnudag er gert ráð
fyrir ákveðinni austanátt með rign-
ingu eða slyddu en úrkomuminna
vestan til. Hiti breytist lítið.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Kitlar þig auðveldlega?“ 39%
svarenda sögðu „Já, mig kitlar alls-
staðar“ 30% sögðu „Stundum, ef ég
er í kitlustuði“ 14% sögðu „Bara und-
ir höndum og fótum“ 13% sögðu
„Nei, finn aldrei fyrir neinu“ og 4%
sögðu „Mjög sjaldan og þá í svefni.“
Í næstu viku er spurt:
Hvernig leggst veturinn í þig?
Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálf-
ari Skagamanna, fékk mikla gagn-
rýni í síðustu viku þegar hann skellti
sér í sólarlandaferð í miðjum undir-
búningi fyrir bikarúrslitaleikinn sem
fram fer um helgina. Skessuhorn er
á öðru máli, handvisst að hann hafi
komið til baka úr sólinni eftir erfitt
sumar endurnærður á sál og líkama.
Tilbúinn í slaginn og gefi allt sitt
og miklu meira en það til að hjálpa
Skagamönnum að lyfta bikar í fyrsta
sinn í 18 ár. Jói Kalli er Vestlendingur
vikunnar að þessu sinni.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Jörð skalf í
síðustu viku
VESTURLAND: Jarðskjálfti
mældist á Vesturlandi klukk-
an korter fyrir tíu á fimmtudags-
morgun í liðinni viku. Í færslu
sem Eldfjalla- og náttúruvárhóp-
ur Suðurlands birti á Facebook
eftir skjálftann segir að skjálftinn
hafi verið í eldstöðvakerfi Ljósu-
fjalla og átt upptök sín 5 km aust-
ur af Langavatni, sem er ekki ýkja
langt frá eldstöðinni grábrók ofan
við Bifröst. Er þetta sagt vera til
marks um aukna jarðskjálftavirkni
á svæðinu á þessu ári en þetta var
annar stærsti skjálftinn á þess-
um slóðum í ár. Í færslunni segir:
„Skjálftarnir eru innan eldstöðva-
kerfis Ljósu fjalla sem teygist aust-
ur að grábrók við Bifröst. For-
sögulegir gígar finnast í grennd
við það svæði þar sem skjálftarnir
hafa verið að mælast, m.a. í Hítár-
dal og Hraundal og hafa nokkur
hraun runnið þar á nútíma.“ Þá
segir að skjálftavirknin sé óvenju-
leg að vissu marki, „enda jarð-
skjálftar afar fátíðir í eldstöðva-
kerfum Snæfellsness.“ -arg
Lyfta í kirkjuna
ÓLAFSVÍK: Í síðustu viku hóf TS
vélaleiga framkvæmdir við und-
irbúning að setja upp nýja lyftu
í ólafsvíkurkirkju. Steypt verð-
ur undir lyftuna ásamt því að gerð
verður ný stétt með hitaþræði að
safnaðarheimilinu. Búið var að
safna fyrir kaupum á búnaðinum
sem væntanlegur er á staðinn. Mun
þessi framkvæmd bæta verulega að-
gengi að kirkjunni. -þa
Framtíð
Breiðarsvæðis
AKRANES: Stjórn Breiðar þróun-
arfélags á Akranesi hefur samþykkt
að efna til hugmyndasamkeppni um
framtíðarskipulag á Breiðarsvæð-
inu. gerður hefur verið samningur
við Arkitektafélag Íslands um um-
sjón með keppninni. Þá hefur dóm-
nefnd verið skipuð og mun hún
brátt hefjast handa við gerð forvals-
lýsingar sem og samkeppnislýsing-
ar. Frá þessu er greint á heimasíðu
Breiðar. -mm
Akraneskaupstaður auglýsti fyrir
helgi útboð á byggingarrétti á sex
lóðum á Sementsreit á Akranesi.
Um er að ræða byggingarétt á fjöl-
eignarhúsum á þremur hæðum auk
bílakjallara, á fjórum lóðum á upp-
byggingarreit d og á tveimur lóð-
Útboð á byggingarétti á Sementsreit
um á uppbyggingarreit C. Verður
öllum lóðum úthlutað til sama að-
ila. Það er nú komið að því að hefja
uppbyggingu Sementsreitsins, eft-
ir margra ára þróun. Þá eru fram-
kvæmdir við varnargarð og gatna-
gerð Faxabrautar á lokametrunum.
Byggingaréttur verður sam-
tals 19.350 fermetrar, þar af íbúð-
ir 11.450 fermetrar og kjallari/
bílakjallari 7.900 fermetrar. Í aug-
lýsingunni kemur fram að mikil
áhersla verði lögð á að vel til tak-
ist með uppbyggingu mannvirkja
innan reitsins. Með tilliti til þess er
m.a. horft til gæða tillagna. Sá þátt-
ur mun vega 40% á móti 60% vægi
á upphæð byggingaréttar. Útboðs-
gögn verða aðgengileg á rafrænu
formi frá mánudeginum 11. októ-
ber í gegnum útboðsvef Mannvits.
Meðfylgjandi eru tölvugerð-
ar myndir af væntanlegri byggð á
Sementsreit. frg