Skessuhorn - 13.10.2021, Síða 8
MiðViKUdAgUR 13. oKTóBER 20218
Aflatölur fyrir
Vesturland
2. til 8. október.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu.
Akranes: 4 bátar.
Heildarlöndun: 13.633 kg.
Mestur afli: Ísak AK–67:
6.606 kg. í fimm löndunum.
Arnarstapi: Engar landanir á
tímabilinu.
Grundarfjörður: 10 bátar.
Heildarlöndun: 321.498 kg.
Mestur afli: Hringur SH-153:
68.707 kg. í einni löndun.
Ólafsvík: 10 bátar.
Heildarlöndun: 86.288 kg.
Mestur afli: ólafur Bjarnason
SH-137: 22.530 kg. í þremur
löndunum.
Rif: 4 bátar.
Heildarlöndun: 36.435 kg.
Mestur afli: gullhólmi
SH-201: 11.630 kg. í einni
löndun.
Stykkishólmur: 3 bátar.
Heildarlöndun: 11.183 kg.
Mestur afli: Bára SH-27:
6.722 kg. í tveimur löndun-
um.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Hringur SH-153 GRU:
68.707 kg. 6. október.
2. Sigurborg SH-12 GRU:
65.344 kg. 4. október.
3. Runólfur SH-135 GRU:
63.834 kg. 4. október.
4. Farsæll SH-30 GRU:
58.913 kg. 5. október.
5. Þinganes SF-25 GRU:
57.315 kg. 3. október.
-frg
Sviptur og dóp-
aður í ofanálag
VESTURLAND: Lög-
reglumenn í hefðbundnu
umferðareftirliti stöðvuðu
för ökumanns á sunnudags-
kvöld þar sem hann kom
upp úr Hvalfjarðargöngum.
Var ökumaður grunaður um
akstur undir áhrifum ávana-
og fíkniefna. Við leit fannst
maríjúana auk þess að öku-
maður reyndist hafa verið
sviptur ökuréttindum. Öku-
maðurinn var handtekinn og
fór mál hans í hefðbundið
ferli. -frg
Ormahreinsun
hunda og katta
AKRANES: Hundahreinsun
verður á Akranesi mánudag-
inn 18. október frá kl. 13-20
og kattahreinsun þriðju-
daginn 19. október frá kl.
13-20. Hreinsunin fer fram
í Þjónustumiðstöð Akraness
að Laugarbraut 6 (gamla
slökkvistöðin) og bent er
á greiða þarf með pening-
um því enginn posi verður á
staðnum. Seinni hreinsun á
Akranesi verður laugardag-
inn 13. nóvember. -vaks
Silja Mist mark-
aðsstjóri ON
SV-LAND: Silja Mist Sigur-
karlsdóttir hefur verið ráðin
markaðsstjóri orku náttúr-
unnar og markaðssérfræð-
ingur orkuveitu Reykjavík-
ur. Hún kemur til fyrirtæk-
isins frá Nóa Síríus þar sem
hún hefur gegnt stöðu mark-
aðsstjóra síðustu ár. Silja
verður hluti af einingu inn-
an oR sem kallast Samskipti
og samfélag en sú eining sér
um öll markaðs- og kynn-
ingarmál oR samstæðunnar.
Silja sem fædd er árið 1991
hóf störf hjá Nóa Síríus árið
2016 eftir að hún lauk námi
í viðskiptafræði við Háskól-
ann í Reykjavík, fyrst sem
vöruþróunarstjóri og síðar
sem markaðsstjóri. Silja hef-
ur meðfram vinnu sinni sinnt
kennslu í markaðsfræðum og
vöruþróun við Háskólann í
Reykjavík. -mm
Þann 26. september síðastliðinn
færðu börn og tengdabörn Bjarg-
ar H. Finnbogadóttur og Alexand-
ers Stefánssonar Snæfellsbæ bekk
að gjöf til minningar um foreldra
þeirra en þennan dag voru 100 ár
liðin frá fæðingu Bjargar. Hún var
fædd á Búðum en flutti með for-
eldrum sínum til ólafsvíkur árið
1926 þegar faðir hennar keypti
verslunarhúsin þar. Alexander
fæddist í ólafsvík 6. október 1922.
Þau hjón eignuðust sex börn og var
Björg húsmóðir en var einnig org-
anisti ólafsvíkurkirkju um árabil.
Alexander starfaði sem kaupfélags-
stjóri Kaupfélagsins dagsbrúnar,
síðar sveitarstjóri ólafsvíkurhrepps
og loks alþingismaður og ráðherra.
Bekkurinn er staðsettur við Pakk-
húsið í ólafsvík.
þa
Frá því í byrjun júní hafa staðið
yfir framkvæmdir á Laugarbraut á
Akranesi. Akraneskaupstaður var
að endurnýja gangstéttir við götuna
og samhliða því voru Veitur ohf að
skipta um vatns- og raflagnir. Verk-
taki endurnýjunar gangstétta er
Skóflan og verktaki lagnavinnu er
Þróttur.
Á mánudag voru steyptar gang-
stéttir mestan hluta öðrum megin
á Laugarbrautinni alveg að tann-
læknastofunni og reiknað var með
að lokið yrði við steypuvinnuna
í lok vikunnar ef aðstæður leyfa.
Samkvæmt útboði átti þessum
áfanga að vera lokið í júlí en fram-
kvæmdum hefur seinkað töluvert.
vaks
Nú þegar vetur fer að ganga í garð
og myrkrið að minna aðeins á sig,
er upplagt að rifja aðeins upp þær
útivistarreglur barna og unglinga
sem eru í gildi. Frá tímabilinu 1.
september til 1. maí eiga öll börn
tólf ára og yngri að vera komin
heim fyrir klukkan átta á kvöld-
in en þau sem eru 13-16 ára ekki
seinna en tíu að kveldi. Reglurn-
ar miðast við fæðingarár barnanna.
Markmiðið með útivistarreglunum
er að stuðla að heilbrigðu umhverfi
fyrir börn og unglinga. Reglurnar
eru fyrst og fremst settar til vernd-
ar börnum og stuðla að því að þau
séu ekki ein og eftirlitslaus eftir að
rökkva tekur.
Allir foreldrar vilja börnunum
sínum það besta. Útivistarreglurn-
ar hjálpa foreldrum að setja börn-
um sínum mörk og styðja þannig
við bakið á foreldrum í uppeldis-
hlutverkinu. Því er full ástæða til að
vekja athygli á gildandi reglum og
hvetja foreldra til að standa saman
að því að þær séu virtar. Reglurnar
gilda alla daga, bæði virka daga, um
helgar og alla hátíðisdaga. vaks
Börn 12 ára og yngri mega leika
úti til klukkan átta á kvöldin
Kristín á Bjargi og Magnús hjá Skóflunni að ræða málin.
Byrjað að steypa á Laugarbrautinni
Á myndinni eru frá vinstri: Örn, Finnbogi, Svanhildur, Lára og Atli. Stefán bróðir
þeirra lést í júní á þessu ári.
Bekkur gefinn
til minningar
um Björgu og Alexander
Steypan tekur fjóra til fimm tíma að þorna.