Skessuhorn - 13.10.2021, Side 11
MiðViKUdAgUR 13. oKTóBER 2021 11
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Fjöliðjan vinnu- og hæfingarstaður
Akraneskaupstaðar óskar eftir að ráða
leiðbeinanda til starfa
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita einstaklingsmiðaðan persónulegan stuðning•
Stuðla að virkri þátttöku í samfélaginu•
Þátttaka í þróun og mótun þjónustu Fjöliðjunnar•
Hæfinskröfur
Áhugi á að starfa með fólki•
Sjálfstæði og rík réttlætiskennd•
Hæfni í mannlegum samskiptum•
Jákvæðni og framtakssemi•
Stundvísi og samviskusemi•
Reynsla af störfum með fólki með fötlun er kostur•
Hreint sakavottorð•
Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins
að Dalbraut 4 1. hæð. Athygli er vakin á því að starfið hentar öllum kynjum. Launakjör eru samkvæmt
kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með
25.10 2021.
Nánari upplýsingar um starfið veita Guðmundur Páll Jónsson forstöðumaður
s: 433-1720 eða á netfangi gudmundur.pall.jonsson@akraneskaupstadur.is
og Ásta Pála Harðardóttir yfirþroskaþjálfi s: 433-1723
eða á netfangi asta.hardardottir@akraneskaupstadur.is
Um er að ræða 90% stöðugildi og þarf viðkomandi
að geta hafið störf sem fyrst.
Vinnutími er frá kl: 09:00 til kl: 16:00.
María Kristín gylfadóttir hef-
ur verið ráðin í nýtt starf verk-
efnastjóra vegna rannsóknaseturs
skapandi greina við Háskólann á
Bifröst. Rannsóknarsetrið var sett
á fót í ágúst síðastliðnum. Í frétt á
heimasíðu Háskólans á Bifröst er
starfsferill Maríu rakinn. Þar seg-
ir að hún hafi starfað í meira en
tvo áratugi við menntun, menn-
ingu, nýsköpun og rannsókn-
artengd verkefni.
„Frá árinu 2018 rak María
svo eigið ráðgjafarfyrirtæki,
NoRTH Consulting, sem
sérhæfir sig í stuðningi við
sprotafyrirtæki og aðila
í menntun, menn-
ingu og rann-
sóknum vegna
samskipta við
s tyrktars jóði ,
stefnumótunar,
breytingastjór-
nunar, þróunar
námsefnis og
þjálfunar í frum-
kvöðlafræðum,“ segir á vef Há-
skólans á Bifröst. María var menn-
ingarfulltrúi Sendiráðs Íslands í
Washington dC árin 1999-2000.
Hún tók þátt í uppbyggingu MBA
náms við Háskólann í Reykjavík
auk þess sem hún kenndi Evr-
ópufræði við skólann frá árinu
2000-2003. Frá árinu 2003-2018
starfaði hún fyrir mennta-
áætlanir ESB og á árun-
um 2009-2013 var hún
útsendur sérfræðingur
íslenskra stjórnvalda
hjá framkvæmdasjóði
ESB í Brussel. María hef-
ur lokið meistaragráðu í
Evrópufræðum frá
georgetown há-
skóla í Washing-
ton dC auk þess
sem hún lauk
MBA gráðu í
rekstrarhagfræði
frá Háskóla Ís-
lands.
arg
Körfuknattleiksdeild Skallagríms
hélt neyðarfund í grunnskólanum
í Borgarnesi síðastliðinn fimmtu-
dag þar sem framtíð deildarinnar
var rædd og sömuleiðis biðlað til
íbúa og stuðningsfólks Skallagríms
almennt um fleiri hjálparhendur.
Um 50 manns mættu á fundinn og
fóru forsvarsmenn deildarinnar yfir
stöðu mála; sjálfboðaliðastarf og
nauðsynlega fjárþörf vegna tíma-
bilsins sem nú er hafið en illa hefur
gengið hjá deildinni að fullmanna
fjáraflanir, í ráð og stjórnir.
Nýtt skipurit var kynnt á fund-
inum og var almenn ánægja með
það. Með tilkomu nýs skipurits á að
brjóta starfsemi deildarinnar niður
í ákveðin viðráðanleg verkefni eins
og fjáröflunarráð, leikjaráð, fjöl-
miðlaráð og svo framvegis.
Þátttakendur á fundinum voru
allir sammála um að leggja sitt
af mörkum til að halda deildinni
gangandi og búið er að manna flest
ráðin. Næstu skref verða svo að
fylla í þessi ráð og í kjölfarið hefja
vinnu.
Stærsta verkefni stjórnarinnar
verður hins vegar að tryggja fjár-
magn fyrir tímabilið. Samkvæmt
stjórn kkd. Skallagríms mun deild-
in á næstu vikum undirbúa vinnu
við stefnumótun og þá verður ósk-
að eftir þátttöku íbúa og velunnara
til að móta starfið fyrir komandi ár.
Þá voru nokkrir styrktaraðilar
og einstaklingar sem brugðust við
kalli kkd. Skallagríms með nýjum
og auknum fjárframlögum. Fyrir
þá sem hafa áhuga á að verða bak-
hjarlar kkd. Skallagríms er hægt að
hafa samband í tölvupósti: skallark-
arfa@gmail.com. glh
Nýtt skipurit kynnt á
neyðarfundi Skallagríms
Frá neyðarfundi kkd. Skallagríms í liðinni viku. Ljósm. kkd. Skallagríms.
María Kristín ráðin
verkefnastjóri vegna Rann-
sóknaseturs skapandi greina