Skessuhorn - 13.10.2021, Side 13
MiðViKUdAgUR 13. oKTóBER 2021 13
Í samræmi við nýja gr. 5.4 í samþykktum Festu lífeyrissjóðs, boðar
stjórn lífeyrissjóðsins til fundar í fulltrúaráði sjóðsins miðvikudaginn 27.
október n.k. á Grand Hótel, Sigtúni 38, 105 Reykjavík. Fundarstörf hefjast
kl. 18:00. Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum.
Dagskrá:
Setning fundar
Kynning á afkomu Festu lífeyrissjóðs m.v. 30.06.2021
Kynning á framvindu og fylgni við fjárfestingarstefnu sjóðsins
Önnur mál
Stjórn Festu lífeyrissjóðs
Fundur fulltrúaráðs
Festu lífeyrissjóðs
Eitt nýjasta fyrirtækið í flóru fyr-
irtækja á Vesturlandi nefnist Fag-
leg þrif og tekur það að sér glugga-
þvott. Eigandi þess og eini starfs-
maður er Przemyslaw oskar do-
brzyski, en hann flutti ásamt konu
sinni frá Kraká í Póllandi fyrir
þremur árum. Sjálfur segist hann
af praktískum ástæðum nota milli-
nafnið oskar hér heima þar sem
fyrra nafn hans reynist Íslending-
um erfitt í framburði. oskar og
kona hans hafa verið hér í þrjú ár
og þar af tvö ár á Akranesi. Þau eiga
þriggja ára son sem er í leikskólan-
um Vallarseli. Eiginkonan starfar
hjá Vigni g Jónssyni.
Aðspurður um ástæðu þess að
hann fluttist til Íslands segir oskar
að þau hafi langað að víkka út sjón-
deildarhringinn og finnist gaman
að ferðast. Heima í Kraká starfaði
hann hjá skyndibitakeðju en var auk
þess á fullu í íþróttum. Spilaði ís-
hokki með meistaraflokki Cracovia
í heimaborg sinni. Hér á landi hefur
hann m.a. starfað hjá BM Vallá en
varð að hætta þeirri vinnu eftir að
hafa fengið sýkingu í hné og þurft
að gangast undir aðgerð. „Mér hef-
ur alltaf langað að reka eigið fyrir-
tæki og finnst gaman að þrífa. Eftir
að ég komst að því að hér á Akra-
nesi var ekkert gluggaþvottafyrir-
tæki starfandi lét ég verða af því að
stofna fyrirtæki og byrja að bjóða
upp á gluggaþvott. Byrjaði bara
núna um síðustu mánaðamót og
hafa viðtökurnar verið frábærar. Er
þegar komin með nokkur fyrirtæki
sem ég þríf fyrir,“ sagði oskar þeg-
ar hann leit við á ritstjórn Skessu-
horns við garðabraut til að bjóða
gluggaþvott. Aðspurður um hvern-
ig honum og fjölskyldunni líkar að
búa á Íslandi, svarar hann: „okkur
líkar landið, ekki þó endilega veðr-
ið. En fólkið hér hefur tekið okk-
ur vel og hér finnst okkur gott að
búa,“ segir hann.
Nánari upplýsingar má finna á:
Facebook.com/faglegthrif og í síma
761-6817.
mm
Fasteignasalan Hákot og Kallabakarí eftir að Hákon hafði farið höndum um
gluggana.
Stofnaði gluggaþvotta-
fyrirtæki á Akranesi
Przemyslaw Oskar Dobrzyski hjá Faglegum þrifum að þrífa gluggana á ritstjórn
Skessuhorns.
Reykjavík
Grundartangi
Akranes
Borganes
Fimmtudaginn 21. október 2021, kl. 14:00, Björtuloft, Hörpu
Til þess að kynna það sem efst er á baugi hjá Faxaflóahöfnum sf. og fræðast um starfsemina á hafnar-
svæðum fyrirtækisins boða Faxaflóahafnir sf. til málþings fimmtudaginn
21. október kl. 14:00, Björtuloft (6. og 7. hæð) Hörpu.
Dagskrá málþingsins á að snerta málefni sem flestra á hafnarsvæðum Faxaflóahafna sf. og verður
sem hér segir:
14:00 Ávarp formanns
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, varaformaður Faxaflóahafna
14.10 Horft til framtíðar
Magnús Þór Ásmundsson, hafnarstjóri Faxaflóahafna
14:35 Fjórða iðnbyltingin – Möguleg áhrif á hafnir og sjávarútveg
Yngvi Björnsson, prófessor og sérfræðingur í gervigreind við Háskólann í Reykjavík
15:00 Íslenski sjávarklasinn – Starfsemin, samstarf á alþjóðlegum vettvangi, sjávarakademían
Nanna Ósk Jónsdóttir, rekstrarstjóri Íslenska sjávarklasans
15:25 Stafrænt vistkerfi – Tækninýjung fyrir sjávarútveginn
Þorsteinn Svanur Jónsson, framkvæmdarstjóri vöruþróunnar hjá Klöppum
15:50 Umræður og fyrirspurnir
16:00 Fundarslit
Fundarstjóri: Erna Kristjánsdóttir, markaðs- og gæðastjóri Faxaflóahafna
Fundurinn er opinn öllum, en þeir sem eru með starfsemi á hafnarsvæðum Faxaflóahafna sf. eru sér-
staklega hvattir til að mæta. Á fundinum gefst tækifæri til þess að koma með fyrirspurnir og ábendingar
um það sem varðar hafnarrekstur, þjónustu og aðstöðu fyrir viðskiptavini.
Magnús Þór Ásmundsson,
hafnarstjóri
SK
ESSU
H
O
R
N
2021
Málþing með
notendum Faxaflóahafna