Skessuhorn - 13.10.2021, Blaðsíða 16
MiðViKUdAgUR 13. oKTóBER 202116
grundaskóli á Akranesi fagnaði
40 ára starfsafmæli miðvikudaginn
6. október síðastliðinn og ákvað
blaðamaður Skessuhorns að kíkja
á afmælisbarnið í tilefni dagsins.
grundaskóli var í upphafi stofnað-
ur í anda nýrra hugmynda og var
skólinn oft kenndur við umræðu
um svokallað opið skólastarf. Slíkir
skólar voru þekktir fyrir að brjóta
upp bekkjastarf og halda teymis-
vinnu á lofti. Frá fyrsta degi hefur
skólastarfið verið byggt á ákveðn-
um grunngildum sem eru sam-
vinna, traust og virðing. Í dag eru
um 120 starfsmenn við skólann og
nemendur um 680.
Skólastjóri grundaskóla er Sig-
urður Arnar Sigurðsson. Hann
hefur verið skólastjóri frá árinu
2016 þegar Hrönn Ríkharðsdótt-
ir lét af störfum. Sigurður Arnar
hefur alls starfað í skólanum í 29
ár, sem kennari, deildarstjóri, að-
stoðarskólastjóri og nú síðast sem
skólastjóri. Blaðamaður spurði
Sigurð Arnar fyrst hvað ætti að
gera í tilefni afmælisins og sagði
hann að skólinn hafi aðallega ein-
beitt sér að því að gleðja nemendur
því þetta væri afmælið þeirra: „Við
„Framtíð Grundaskóla er björt“
Segir Sigurður Arnar Sigurðsson, skólastjóri Grundaskóla á 40 ára afmæli skólans
Meðfylgjandi eru myndir frá afmælisdeginum. Ljósm. sas.
Sigurður Arnar Sigurðsson skólastjóri á lóð Grundaskóla. Ljósm. vaks.