Skessuhorn - 13.10.2021, Blaðsíða 18
MiðViKUdAgUR 13. oKTóBER 202118
Laugardaginn 2. október hélt lista-
konan Michelle Bird sína mánað-
arlegu sýningaröð á heimili sínu
í Borgarnesi, sem hún hefur um-
turnað í listgallerí. Sýningarnar
eru einungis einn dag hverju sinni
og koma ólíkir listamenn úr öll-
um áttum á heimili Michelle til að
sýna list sína í hinum ýmsu form-
um. Þennan laugardag var Lara
Becker að sýna verkin sín og segir
Lara sýninguna hafa verið vel sótta.
„Það gekk rosalega vel og það voru
margir sem kíktu við. Ekki bara frá
Borgarnesi og nágrenni, heldur
voru margir sem komu frá Reykja-
vík líka, sem var gaman að sjá,“ seg-
ir Lara um sýningardaginn.
Svartskart
og hengiskraut
Lara Becker er ýmislegt til listanna
lagt. Hún hannar og býr til skart-
gripi; hringa og hálsmen með gim-
steinum undir nafninu Svartskart,
sem hægt er að kaupa á heimasíðu
hennar www.svartskart.is. Auk þess
málar hún litlar landslags- og nátt-
úrumyndir með akrýlmálningu sem
hún innsiglar með plastefni og um-
lykur að lokum með koparramma
svo úr verði hengiskraut. „Ég elska
að gleyma mér í smáatriðunum og
datt í hug að búa til eitthvað sem
fólk getur gefið vinum og fjölskyldu
í gjafir, eins og svona lítil málverk
sem auðvelt er að hengja upp,“ út-
skýrir Lara.
Lara stefnir á að sýna verkin sín
aftur í desember. „Ég verð vonandi
aftur hjá Michelle 11. desember
næstkomandi en þá á að vera sér-
stök jólasýning. Michelle er með
það í bígerð. Ég er henni svo þakk-
lát að búa til þennan vettvang fyrir
okkur listafólkið til að geta komið
og sýnt verkin okkar, það er ómet-
anlegt. Svo er þetta líka svo gott
fyrir listalífið í Borgarnesi,“ segir
Lara að lokum.
glh/ Ljósm. aðsendar.
Stefán gísli Örlygsson, félagi í
Skotfélagi Akraness, varð í sumar
Íslandsmeistari í haglabyssugrein-
inni Skeet, eða leirdúfuskotfimi,
á vegum Skotíþróttasambands Ís-
lands. Mótið fór fram á velli Skot-
íþróttafélags Suðurlands við Þor-
lákshöfn dagana 7. til 8. ágúst. Á
mótinu voru allir bestu skotmenn
landsins mættir. Í úrslitunum skaut
Stefán gísli 55 af 60 dúfum mögu-
legum sem tryggði honum sigur-
inn.
„Í leirdúfuskotfimi er það hið
ólympíska skeet og trapp, sem
keppt er í á ólympíuleikunum. Svo
eru til nokkrar aðrar greinar svo
sem „sporting“ sem er meira veiði-
tengt,” segir Stefán gísli í sam-
tali við Skessuhorn. „Þar er enginn
völlur eins, en í Skeetinu eru allir
vellirnir eins alls staðar í heiminum.
Kasthraðinn á skífunum er alltaf sá
sami. Skotfimi er mikil tækniíþrótt.
Hraðinn á leirdúfunum getur ver-
ið um 90 km á klukkustund þegar
þeim er skotið af stað. Hraðinn er
mikill og þú hefur ekki tíma til þess
að leiðrétta eitt eða neitt, þú verð-
ur bara að vera tilbúinn frá upp-
hafi. Þú ýmist skýtur eina dúfu eða
það koma tvær í einu úr sitthvorri
áttinni og þú hefur bara eitt skot á
hvora.“
Áhugi á skotfimi er mjög mikill
hér á landi og hefur farið vaxandi
hin síðari ár. „Það eru hátt í sex þús-
und iðkendur skráðir í aðildarfélög-
um skotsambandsins, bæði í hagla-
byssugreinum, í loftskammbyssu,
loftrifflum og í kúlugreinum svo-
kölluðum, bæði með skammbyssum
og rifflum,“ segir Stefán gísli.
Sjálfur keppir Stefán gísli ein-
göngu í haglabyssugreinum í ein-
staklingskeppnum og með íslenska
landsliðinu í skotfimi og hefur keppt
fyrir Íslands hönd víðs vegar um
heiminn á undanförnum árum, en
hann hefur verið landsliðsmaður til
fjölda ára. Stefán segir að það hefðu
þrír einstaklingar keppt á ólympíu-
leikum í skotfimi fyrir Íslands hönd
frá upphafi. Þegar hann var spurð-
ur að því hvort ekki færi að stytt-
ast í þátttöku í ólympíuleikum hjá
honum sjálfum, svarar hann: „Það
er auðvitað ómögulegt að segja.
Við sem vorum í landsliðinu reynd-
um að ná kvótaplássi fyrir ólymp-
íuleikana 2020 á Evrópumeistara-
mótinu sem haldið var í Króatíu nú
í vor. Á því móti var síðustu tveimur
plássunum úthlutað til Evrópubúa.
En það gekk ekki hjá okkur, en við
höfum náð lágmörkunum nokkr-
um sinnum áður en þú verður að ná
þeim á þessum útvöldu mótum til
þess að komast áfram. En þetta er
brött brekka að ná þessu. Við búum
á Íslandi í þessu veðurfari sem hér
er og erum að keppa við marga sem
eru atvinnumenn í greininni. Þeir
sem ætla að verða virkilega góðir
í íþróttinni þurfa að fara erlendis í
æfingabúðir. Sjálfur er ég búinn að
fara í nokkrar ferðir. Síðast fór ég
til grikklands í fyrravetur. Þar æfði
ég með grískum skotmanni sem er
í fremstu röð í heiminum og var til
að mynda að keppa á ólympíuleik-
unum í sumar.“
Þegar talið berst að Skotfélagi
Akraness segir Stefán gísli að það
séu um 160 manns skráðir í félagið.
Áhugi félagsmanna hefur aukist
undanfarin ár með tilkomu bættr-
ar aðstöðu til æfinga og keppni.
„En eins og í flestum íþróttum eru
félagsmenn misjafnlega virkir. Það
er hópur sem er í keppnisíþróttun-
um og aðrir í þessu fyrir sportið og
eru að undirbúa sig fyrir veiðitíma-
bilið á hverju ári.
Veiðiáhuginn kviknaði hjá mér á
unglingsaldri þegar ég var í sveit-
inni hjá afa og ömmu á Hvalfjarð-
arströndinni. Afi, frændur mínir og
pabbi voru töluvert að veiða. Það
voru rjúpna,- gæsa- og refaveiðar.
Afi var refaskytta í sveitinni til fjölda
ára. Síðar varð ég sjálfur refaskytta
og hef verið það frá 1991. Það þarf
að halda stofninum í skefjum. Ref-
irnir geta verið stórtækur skaðvald-
ur fyrir fuglalíf og búpening.“
Stefán gísli segir að af þeim veið-
um sem hann stundar séu rjúpna-
veiðarnar mest krefjandi. Það þurfi
að spá í svo margt; lesa í veðrið og
það reyni einnig á líkamlegan styrk
að fara á rjúpnaveiðar svo ekki sé
talað um færni í að skjóta. Þá hef-
ur hann farið nokkrum sinnum á
hreindýraveiðar fyrir austan.
Til að ná þeim árangri sem Stefán
gísli hefur náð þarf miklar og þrot-
lausar æfingar. „Þegar mest lætur
fer ég allt að sjö sinnum í viku til
æfinga þegar keppnistímabilið er
í gangi.“ Stefán æfir á æfingasvæði
Skotfélags Akraness sem er við
rætur Akrafjalls neðan við Slögu.
Þar er búið að koma upp góðri að-
stöðu. Félagið var stofnað 1994 og
1998 hófst starfsemin þar. Auk þess
að æfa á Akranesi sækir Stefán æf-
ingar á önnur skotsvæði í nágrenn-
inu. Stefán gísli er nú starfandi for-
maður Skotfélags Akraness en hefur
lengi áður setið í stjórn félagsins.
se
Hringur með fjólubláum gimsteini.
Býr til skart og lítil málverk
Lara Becker á sýningarröð Michelle Bird í Borgarnesi í byrjun október.
Eyrnalokkar sem Lara hannar og hægt
er að kaupa á www.svartskart.is.
Skotfimi er mikil tækniíþrótt
Rætt við Stefán Gísla Örlygsson Íslandsmeistara í leirdúfuskotfimi
Stefán Gísli á móti í Tuscon í Arizona 2018.
Íslandsmeistari 2021 í haglabyssugreininni Skeet; Stefán Gísli Örlygsson úr Skot-
félagi Akraness.