Skessuhorn - 13.10.2021, Blaðsíða 24
MiðViKUdAgUR 13. oKTóBER 202124
Undirritaður fór í ágústmánuði í sumar með fríðu föruneyti í
fimm daga ferð til Hornstranda þar sem ætlunin var að gista í
Hlöðuvík sem er á norðanverðum Hornströndum og liggur á
milli Fljótavíkur og Hælavíkur. Hluti af hópnum, og aðallega
þeir sem yngri voru, ákváðu að taka smá krók á leið sinni og
gista tvær nætur í Hornvík sem liggur á milli Hælavíkurbjargs
og Hornbjargs.
Lagt var af stað á föstudegi, keyrt í rólegheitum á Þingey-
ri þar sem gist var um nóttina og síðan keyrt eldsnemma á
Ísafjörð þar sem eldri hópurinn sigldi beint í Hlöðuvík með
allan farangur og matvöru á meðan yngri hópurinn (að mér
meðtöldum!) fór með áætlun og kom við á leiðinni á Sandey-
ri, grunnavík og Hesteyri og endaði í Veiðileysufirði þar sem
okkur var hent út. Þaðan lá leið í afar fallegu veðri til Horn-
víkur þar sem við gistum tvær nætur í tjaldi með morgunmat
og kvöldverð og nesti í göngur. daginn eftir komu skellti hó-
purinn sér í dagsgönguferð þar sem leið okkar lá upp á Horn,
Miðfell og þrír okkar fóru upp á Kálfatinda. Ekkert símasam-
band er á Hornströndum yfir höfuð en á þessum tindum var
hið besta samband og því notuðu sumir tækifærið til að kasta
kveðju á sína nánustu. Ég ákvað svo að elta einn samferðamann
minn yfir í Hornbjargsvita og þaðan fórum við yfir Kýrskarð
og enduðum í Hornvík þar sem við urðum að láta okkur næ-
gja kalt lambakjöt enda alltof seinir á ferðinni! Næsta dag gekk
hópurinn í rólegheitum afar fallega leið upp af Rekavík í geg-
num Atlaskarð til Hlöðuvíkur þar sem restinni af deginum var
eytt í afslöppun. Á þriðjudeginum bar svo við að það skall á
þoka með smá súld að morgni og því var lítið annað að gera en
að spjalla, spila kínaskák og borða góðan mat þann daginn.
Næsta dag var hins vegar hið besta veður, sól og um 20 sti-
ga hiti og því ákváðum við tveir úr hópnum að skella okkur í
göngu í góða veðrinu og fyrsta stopp var hið reisulega Álfs-
fell sem skilur að Hlöðuvík og Kjaransvík. Vel gekk á leiðinni
upp fjallið en blautt og sleipt var í fjallinu eftir rigningu gær-
dagsins. Þegar við vorum komnir vel á veg og frekar hátt upp
í fjallið gætti ég ekki að mér er ég steig á stóran grjóthnullung
og hann losnaði frá og byrjaði að rúlla niður fjallið. Allt í góðu
með það nema að hann stefndi beint á samferðamann minn
sem var þó nokkuð neðar í fjallinu. Hann þurfti því að miða út
flugið á hnullungnum í fljótheitum og náði á ótrúlegan hátt að
hoppa yfir hann á meðan hann straukst við innanverð lærin á
honum á fljúgandi ferð. Þetta stoppaði okkur ekki í því að ná
toppnum á Álfsfelli og eftir smá klettaklifur stóðum við þar og
nutum útsýnisins í dágóða stund. Eftir þetta tókum við lengri
göngutúr til að ná okkur niður og enduðum í smá útsýnisferð
yfir Fljótavíkina og svo heim í Hlöðuvíkina að kveldi.
daginn eftir var svo haldið heim á leið þar sem hluti hóp-
sins rölti að Hesteyrarbotnum þar sem bátur sótti mannska-
pinn og svo var siglt yfir á Ísafjörð þar sem snæddur var kvöld-
verður á veitingahúsi. Undirritaður verður þó að nefna að ef-
tir á að hyggja hefði verið skemmtilegri kostur að labba alla
leið á Hesteyri á slóðir bókarinnar Ég man þig eftir Yrsu Si-
gurðardóttur en það verður vonandi bara næst. Það voru því
örþreyttir en ánægðir ferðalangar sem komu heim á Skagann
um miðja nótt eftir mikla ævintýraferð og eru nú þegar farnir
að huga að næstu ferð á Hornstrandirnar hinar fögru.
Texti og myndir: Valdimar K. Sigurðsson
Hornstrandir hinar fögru
Horft yfir í Hornvík eftir göngu úr Veiðileysufirði.
Rebbinn er friðaður á Hornströndum. Gengið fram hjá Steinþórsstandi í Hornvík.
Álfsfellið er ægifagurt og erfitt viðureignar.
Á leið upp á tindinn á Álfsfelli. Séð yfir í Ólafsdal frá Álfsfelli.