Skessuhorn - 13.10.2021, Page 27
MiðViKUdAgUR 13. oKTóBER 2021 27
Vísnahorn
Margir tala um hlýnun jarðar en
aðrir bera þær fréttir til baka. Það
geti ekki verið hlýnun vegna þess
að þeim sé kalt og ekki matarskort-
ur í heiminum því að þeir sjálfir séu
nýbúnir að borða. Reyndar held
ég að ekkert hafi verið farið að tala
um hlýnandi veðurfar þegar Stefán
Stefánsson orti:
Vangaköld er veðra dís.
Visna að rótum grösin.
Við höfum þó alltaf ís
út í viskýglösin.
Fólk leggur mismikið upp úr
prófgráðum í lífinu og allavega má
segja að þær ættu ekki að koma í
stað heilbrigðrar skynsemi en frekar
sem viðbót. Jóhann S. Hannesson
orti kvæðið Próflaus Áfangi:
Það sækir að þér kvíði er kemur
að kvöldi þíns hinsta dags
um hvort það sé nóg sem þú
hefir unnið
heimi drottins til gagns.
Með harmkvælum tekst þér,
eins og öðrum
sem aldinreit herrans gista
að koma, ef ekki afreksverkum
þó ýmsu smáræði á lista.
Sem þú lærir í ofboði utan
bókar
og ætlar að geti riðið
baggamuninn við endanlegt
uppgjör
og opnað þér gullna hliðið.
En þar bíður ekkert yfirlitspróf
heldur undur og stórmerki og
furður
og þessi sárust og þungbærust
allra
að þú verður einskis spurður.
Stundum verður manni nú samt
fyrir að velta fyrir sér hvaða próf-
gráður ungt blaðafólk hafi í ís-
lensku eða hvort það reyni að lesa
yfir fréttirnar sem það skrifar. Í ein-
hverri „gúrkutíð“ fjölmiðlaheimsins
orti ólafur Stefánsson:
Lýst er stöðu og stéttum,
stefnum, smölun og réttum,
gosi og hlaupi,
(á helgarkaupi,)
- í gatslitnum gúrkufréttum.
Svo fréttafólk sem aðrir lands-
menn þurfa náttúrlega að afla sér
tekna með einhverjum hætti til að
heygja sína hefðbundnu lífsbaráttu
og veitir ekki af að hafa öll spjót
úti. Böðvar guðlaugsson orti þessar
fjármála- og lífsbaráttu limrur:
Þó ástand sé ótryggt og valt
engu þú kvíða skalt:
-- með gengisfellingu
og góðri kellingu
reddast yfirleitt allt.
Að sjálfsögðu er gott hjónaband
mikilvæg undirstaða og sérstak-
lega ef þrengir að. En það má lengi
spara:
Mörg er þjóðmálaþrautin,
- þungfær velferðarbrautin.
En í neyðinni má
sem sé notast við blá-
vatn út í grjónagrautinn.
og að ekki sé talað um alla þá
bjána sem reyna að rukka staur-
blankt fólk:
Armæddur ber ég augum
ógreidda reikninga í haugum.
Spurningin er
hvenær yfir ég fer
í tékkhefti og á taugum.
En þá má reyna að leika sér með
félagslega kerfið:
Þegar afkoman gerist erfið
eins og hjá mörgum ber við,
hollráð ég tel
að fólk hyggi að því vel
hvernig má spila á kerfið.
og þegar því er svo lokið:
Kaffi til drykkjar ég kýs,
þegar kólnar í veðri og frýs.
Það hressir og kætir
og heilsuna bætir
og að sjálfsögðu innflutt af SÍS.
Í síðasta þætti tók ég af Halldóri
Kiljan vísu eftir Halldór Helgason
sem ég hafði sem sagt áður eignað
meistara Kiljan en svo meistarinn
fái nú að njóta sín er rétt að komi
hér önnur eftir hann:
Ein er þúst fyrir utan Prúst
öll í rústir fallin.
Ríður á kústi frjálst og fúst
feiti bústni kallinn.
Halldór var lengst af allnokkuð
umdeildur en þegar ljóðabók hans
Kvæðakver kom út þótti ýmsum
ódrýgilega farið með pappírinn þar
sem oft var aðeins ein vísa á síðu.
Komst þá á flot eftirfarandi vísa eft-
ir ingveldi Einarsdóttur:
Þitt hef ég lesið Kiljan kver.
Um kvæðin lítt ég hirði.
En eyðurnar ég þakka þér
-þær eru nokkurs virði.
Það mun hafa verið á fimmtugs-
afmæli Tómasar guðmundssonar
sem hann fékk eftirfarandi kveðju
frá Steini Steinarr og hefur vissu-
lega margur fengið kveðju af minna
tilefni:
Hér situr Tómas skáld með bros
á brá,
bjartur og hreinn sem fyrsta
morgunsárið.
Ó vinur minn hver sorglegt er
að sjá
að sálin skuli grána fyrr en
hárið.
Tæplega hefur Tómas látið þess-
ari kveðju ósvarað þó ekki hafi það
svar borist mér til eyrna. Hins veg-
ar kvað kollegi minn og vísnahirðir
Morgunblaðsins, Halldór Blöndal,
um Jón Bjarnason meðan báðir áttu
sæti á Alþingi:
Höndum bandar hart og ótt,
hýr, að vanda glaður.
Vinstri handar hefur þótt.
Hann er Strandamaður.
Fyrir stuttu rakst ég á þessa heim-
spekilegu vísu sem gæti svo sem vel
átt við núna en ansi væri nú gaman
að vita um höfundinn:
Kveð þú ei harmljóð, þótt hár-
kolla fjallsins sé gránuð,
haustið er uppskerutími eins og
þú getur séð.
Um veginn fer kona komin á
síðasta mánuð
og kannski ert þú faðir þess
barns sem hún gengur með.
Ætli við ljúkum svo ekki þættin-
um með vísu sem Teitur Hartmann
orti um sína vísnaframleiðslu.
Veit ég flestum finnast þær
fremur efnislitlar,
þó er í þeim oftast nær
eitthvað sem að kitlar.
Með þökk fyrir lesturinn,
Dagbjartur Dagbjartsson
Hrísum, 320 Reykholt
S 435 1189 og 849 2715
dd@simnet.is
Kveð þú ei harmljóð, þótt hárkolla fjallsins sé gránuð
grunnskóli Snæfellsbæjar fékk ný-
verið birkiplöntur að gjöf frá Yrkju-
sjóði en skólinn var einn þeirra
skóla sem tók þátt í verkefni á veg-
um ríkisins sem ætlað er að vega á
móti loftslagsbreytingum. Meðal
þeirra verkefna er aukin skógrækt
og landgræðsla þar sem markmið-
ið er að binda kolefni í jarðvegi og
gróðri ásamt endurheimt og bæt-
ingu hnignaðra vistkerfa. Eitt af því
sem gert er ráð fyrir að gera er að
gróðursetja eitt birkitré fyrir hvern
landsmann á þremur árum og er
gert ráð fyrir að gróðursetja fyrsta
árið eitt tré fyrir yngstu tíu árganga
landmanna en á þeim aldri eru nú
49.670 einstaklingar. Þess vegna
var í haust grunnskólum landsins
boðið að taka þátt í verkefninu og
þáði grunnskóli Snæfellsbæjar eins
og áður segir þetta boð. Nemendur
í 4. bekk ásamt ingu myndmennta-
kennara og Vagni ingólfssyni hús-
verði skelltu sér út á dögunum til að
gróðursetja plönturnar. Búið var að
velja plöntunum stað og voru þær
settar niður með girðingunni aust-
an við skólann til að búa til skjól
þegar fram líða stundir. Verkefnið
er hluti af grænfánaverkefni skól-
ans. Krakkarnir létu kuldann ekki
á sig fá en veðrið var ekki alveg
upp á það besta til gróðursetning-
ar. gróðursettu krakkarnir í kring-
um 180 plöntur sem þau ætla svo að
fylgjast með og passa vel.
þa
Ellefu félagar úr Lionsklúbbi
ólafsvíkur mættu í skógrækt ólafs-
víkur síðastliðinn sunnudag í blíð-
skapar veðri til að taka þátt í átak-
inu að breiða út birkiskóga lands-
ins. Var þetta þriðji fundur klúbbs-
ins á starfsárinu 2021-2022 sem
jafnframt var vinnufundur. Fengu
félagarnir Önnu Fr. Blöndal um-
dæmisstjóra Lions á Akureyri sem
gest á fundinn. Týndir voru rúm-
lega 15 lítrar af fræjum sem verða
þurrkuð og þeim svo dreift á völd-
um stöðum í Snæfellsbæ á næstu
dögum. Að lokinni tínslu var komið
að kaffi og kleinum sem Anna bauð
upp á og kynnti um leið starf sitt.
Skapaðist mikil umræða um Lions-
hreyfinguna og það góða starf sem
klúbbarnir eru að vinna að víðs veg-
ar um landið. þa
Söfnuðu fimmtán lítrum
af birkifræi í Ólafsvík
Börnin og Vagn Ingólfsson hjálpuðust að við gróðursetninguna.
Grunnskólanemendur
gróðursettu birkiplöntur