Skessuhorn - 13.10.2021, Page 28
MiðViKUdAgUR 13. oKTóBER 202128
Vörur og þjónusta
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Pennagrein
Nú er skrýtið sumar á enda, laxinn
var víða tregur að taka agn veiði-
manna, hann var hreinlega áhuga-
laus, þó nokkrar veiðiár hafi bætt
við sig milli ára. En þó var töluvert
af fiski víða og það styttist í næsta
veiðisumar og nýjar laxagöngur.
„Það veiddist 161 lax hjá okkur og
um 200 bleikjur,“ sagði Þórarinn
Birgir Þórarinsson í Hvítadal þegar
tíðindamaður Skessuhorns spurði
um lokatölur í Hvolsá og Staðar-
hólsá í dölum. „Hjá okkur í sumar
var alltaf einhver veiði,“ sagði Þór-
arinn enn fremur.
Búðardalsá endaði í 111 löxum
og fréttist af veiðimönnum sem
voru þar fyrr í sumar sem fengu
fimm laxa. „Það veiddust 142 fisk-
ar hjá okkur, en ekki nema 46 lax-
ar. Það gekk mikið af sjóbirtingi í
ána,“ sagði Trausti Bjarnason á Á
á Skarðsströnd, spurður um veiði
í Krossá. Flekkudalsá gaf 81 lax og
síðustu tölur úr Laxá í dölum eru
1.021, en það gætu hafa bæst við
nokkrir laxar. Haukadalsá endaði í
366 löxum og eitthvað veiddist af
fiski í Efri-Haukadalsá, mest bleikj-
ur. „Miðá í dölum er skemmti-
leg veiðiá, bæði laxar og bleikjur,“
sagði María gunnarsdóttir, sem var
við veiðar í ánni fyrr í sumar. „Það
veiddust 169 laxar og 154 bleikjur,“
sagði Fjóla Mikaelsdóttir um loka-
tölur úr Miðá í dölum. „Það veidd-
ust 103 laxar og á milli 130-140
bleikjur hjá okkur í Hörðudalsá,“
sagði Níels S. olgeirsson á Selja-
landi í Hörðudal. En mikil ánægja
var með nýja veiðihúsið sem opnað
var fyrir veiðimenn í sumar. En það
gamla hafði þjónað veiðimönnum í
35 ár.
Straumfjarðará endaði í 370
löxum, en fáar fréttir voru sagð-
ar af ánni í sumar. Stangveiðifélag
Reykjavíkur hefur hætt með ána
og aðrir tekið við rekstrinum. Haf-
fjarðará gaf 914 laxa, sem verður að
teljast gott á sex stangir, og Hítará
gaf 548 laxa og eitthvað af silungi.
Langá á Mýrum endaði í 832 löx-
um, sem eru aðeins færri laxar en
fyrir ári. En eins og í Langá, sem og
fleiri ám í sumar, var fiskurinn ansi
tregur að taka hjá veiðimönnum.
„Mér finnst gljúfurá skemmtileg
laxveiðiá,“ segir Jóhann g. Her-
mannsson sem var við veiðar í ánni
fyrr í sumar. En gljúfurá gaf 244
laxa og eitthvað af silungi. Straum-
arnir gáfu 125 laxa og helling af sil-
ungi, mest sjóbirtingi. Brennan gaf
112 laxa, líka silunga, og Skuggi
gaf 78 laxa og líka mikið af silungi.
gufuá gaf 33 laxa og eitthvað af sil-
ungi þetta sumarið.
„Þetta endaði vel, sumarveiðin,“
sagði Einar Sigfússon um Norðurá,
en hann hefur nú hætt að selja veiði-
leyfi fyrir veiðifélagið. Þar veiddist
1.431 lax. Er það mun betri veiði en
fyrir ári. Sama er að segja um Þverá
og Kjarará, en hún gaf 1.377 laxa,
sem er fín veiði. grímsá endaði í
764 löxum. „Það er alltaf gaman að
veiða hér,“ sagði tónlistarmaðurinn
Birgir Nielsen, sem var við veiði
síðustu dagana, og fékk ágæta veiði.
Flókadalsá í Borgarfirði gaf 281 lax
í sumar og Reykjadalsá gaf eitthvað
af laxi þetta sumarið. „Andakílsá
er feiknar góð veiðiá og greinilega
öll að koma til eftir áfallið um árið.
Við fengum fína veiði,“ sagði veiði-
maðurinn snjalli Hafsteinn Már
Sigurðsson, sem var að veiða í ánni
undir það síðasta. Fleiri veiðimenn
tóku í sama streng við Skessuhorn
um ána. Andakílsá gaf 518 laxa, en
árið áður voru þeir 666, einungis
á eina stöng. En áin er greinilega
komin til baka og batinn er veru-
legur.
„Þetta var flott sumar hjá okkur í
Laxá í Leirársveit,“ sagði ólafur Jo-
hnson þegar tíðindamaður Skessu-
horns spurði um ána. Laxá í Leir-
ársveit gaf 850 laxa, sem er töluvert
betra en árið áður. Leirá er ennþá
að gefa sjóbirtinga og laxa, en allt er
þetta að taka enda þetta veiðisum-
arið. Það hafa veiðst bæði laxar og
sjóbirtingar í Leirá í sumar.
gb
Undanfarin misseri hefur ver-
ið unnið að menntastefnu Akra-
neskaupstaðar. Meginmarkmið
menntastefnunnar er að byggja
undir sterkt skólasamfélag á Akra-
nesi með heimsmarkmið Samein-
uðu þjóðanna að leiðarljósi um
menntun fyrir alla. Þannig er hugs-
unin að menntastefnan taki mið af
öllum æviskeiðum og skapi breiða
samstöðu til framtíðar um mikil-
vægustu markmiðin í skóla- og frí-
stundastarfi á Akranesi.
Almennt viðhorf til menntunar í
dag er að hún sé í gangi alla ævi og
hafi jákvæð áhrif á einstaklinga og
samfélagið allt. Kennsluhættir og
viðhorf til náms breytist með tím-
anum og eftirtektarvert að fylgj-
ast með lausnum sem skólasam-
félagið þurfti að vinna með til þess
að halda úti skólastarfi þegar Co-
vid-19 faraldurinn setti skólahald
úr skorðum. Þessi tími sýndi fram á
nýja möguleika í skólastarfi á sama
tíma og við gerðum okkur grein
fyrir öðru sem við viljum ekki vera
án. Við getum nýtt okkur tæknina
á fjölbreyttan hátt en það að byggja
upp félagslega sterka einstaklinga
kallar á samskipti og félagsleg sam-
skipti eru langflestum nauðsynleg.
Leikskólinn er fyrsta formlega
skólastigið og við gerð mennta-
stefnunnar er hugmyndin að
nám verði heildrænt með góð-
um tengslum á milli skólastiga. Í
samfélaginu í dag er lögð áhersla
á nýsköpun, símenntun og endur-
menntun og þeir sem hafa áhuga á
að mennta sig og læra meira eiga
að geta gert það, bæði á formleg-
an og óformlegan hátt. Íþrótta- og
frístundastarf skiptir miklu máli
þegar horft er til menntastefnu
auk þess sem hægt er að velta því
upp hvort það eigi að vera þannig
að innan menntastefnunnar sé frí-
stundastefna?
Við viljum hvetja þig kæri íbúi
til að leggja okkur lið við að vinna
menntastefnuna, koma fram með
þínar hugmyndir og setja þitt
mark á samfélagið til framtíðar en
á heimasíðu Akraneskaupstaðar,
www.akranes.is er hlekkur þar sem
íbúar geta farið inn á og tekið þátt.
Í upphafi vinnunnar var stofnaður
stýrihópur sem hefur unnið með
starfsmönnum menntastofnana
bæjarins, nemendum og foreldr-
um við að byggja grunninn. Nú
óskum við eftir þínum sjónarmið-
um og framlagi til að tryggja jafnan
aðgang allra að góðri menntun og
stuðla að tækifærum til náms alla
ævi í anda heimsmarkmiðanna.
Með kveðju frá skóla- og frí-
stundaráði,
Bára Daðadóttir
Ragnar Baldvins Sæmundsson
Sandra Margrét Sigurjónsdóttir
Lærdómssamfélagið
Akranes
Börn á Akranesi þegar bláfáni var dreginn að húni við Langasand fyrr á þessu ári.
Oft verið betri laxveiði
í landshlutanum
- engu að síður bættu nokkrar veiðiár við sig á milli ára
Atli Bergmann með flottan lax úr
Andakílsá í Borgarfirði.
Garðar Geir Hauksson með
flottan hæng úr Vaðstrengjum í Laxá í
Leirársveit.
Ungir og efnilegir veiðimenn á
bökkum Hvolsár með fiska.
Lax stekkur upp.