Skessuhorn - 22.06.2022, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 25. tbl. 25. árg. 22. júní 2022 - kr. 950 í lausasölu
Ert þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
699 3444
molby@fastlind.is
Löggiltur fasteignasali
ÁRALÖNG ÞEKKING
OG REYNSLA AF
FASTEIGNAMARKAÐI
Á VESTURLANDI
BOGI MOLBY
Allir kaupendur og seljendur fá
Vildarkort Lindar
hjá fjölmörgum fyrirtækjum
sem veitir 30% afslátt
Sú hefð hefur í áratugi verið í Borgarfirði að riðið er til messu í Reykholti klukkan 11 á þjóðhátíðardaginn. Hópurinn leggur í hann frá þremur stöðum í sveitinni og sam-
einast svo í Snorragarði þaðan sem riðið er fylktu liði til kirkju. Að þessu sinni fór Helga Jónsdóttir fánaberi í broddi fylkingar. Sjá svipmyndir frá fleiri stöðum á 17. júní í
blaðinu í dag. Ljósm. mm.
Síðastliðinn laugardagsmorgun kom
upp bilun í gír í Breiðafjarðarferj
unni Baldri þegar ferjan var nýlögð
af stað frá Stykkishólmi klukkan 9.
Um borð í skipinu voru 102 farþegar
og níu manna áhöfn. Björgunaraðil
ar voru ræstir út á hæsta forgangi og
þyrla Landhelgisgæslunnar flaug í
Stykkishólm. Mildi þykir að veður
var gott þegar óhappið varð og var
skipið þá statt rétt utan við Súgandis
ey, einungis um 300 metra frá landi,
eins og sést á meðfylgjandi mynd.
Um fimm tímum eftir óhappið var
Baldur kominn að bryggju aftur með
aðstoð björgunarbátsins Bjargar úr
Rifi sem siglt hafði í Stykkishólm í
flýti með fimm manna áhöfn. Nokk
ur töf var á heimsiglingunni þar sem
erfiðlega gekk að losa ankeri skipsins.
Strax um morguninn var farþegabát
urinn Særún kominn að skipshlið
Baldurs og var um tíma til athugunar
að farþegar færu þar um borð. Af því
varð þó ekki og þurftu því farþegarn
ir að bíða í skipinu í fimm tíma eins
og fyrr segir, við litla ánægju. Í við
tali sem tekið var við nokkra þeirra,
og birt í kvöldfréttum RÚV á laugar
daginn, spöruðu þeir ekki stóru
orðin þegar þeir loks voru komn
ir í land. Kona sem notar ferjuna
reglulega lýsir henni sem gömlum
afdaladalli. Skjöldur Pálsson, farþegi
um borð sagði þetta óboðlegt ástand
á skipinu: „Getur ekki gengið svona
lengur. Ég held að þetta sé fullreynt,“
sagði hann.
Bæjarstjórn Vesturbyggðar og
sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps
sendu frá sér harðorða yfirlýsingu
strax á laugardaginn þar sem segir að
verið sé að leggja líf fólks í hættu með
því að sigla skipinu og að stjórnvöld
verði að bregðast við með tafarlaus
um úrbótum.
Baldur sigldi svo seinni ferð dags
ins á sunnudaginn með viðkomu í
Flatey. Í tilkynningu frá Sæferðum
sagði að vélstjórar Baldurs hafi ásamt
sérfræðingi unnið að viðgerð fram
á sunnudagsnótt. Búið væri að taka
prufusiglingu og fleiri prófanir gerð
ar sem sýni að allt virki eins og það
eigi að gera. Síðdegisferðin á sunnu
daginn gekk að óskum. mm
Björgunarbáturinn Björg frá Rifi kom Baldri til aðstoðar og er hér að fylgja skipinu
síðasta spölinn að bryggju. Ljósm. sá
Baldur bilaði skammt frá Stykkishólmi
Þinn árangur
Arion