Skessuhorn - 22.06.2022, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 20224
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 4.110 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 3.550. Rafræn áskrift kostar 3.220 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.968 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is
Valdimar K. Sigurðsson vaks@skessuhorn.is
Guðrún Jónsdóttir gj@skessuhorn.is
Steinunn Þorvaldsdóttir sth@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Díana Ósk Heiðarsdóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Menning og stanslaust stuð
Það hefur verið fróðlegt að fylgjast með hvernig mannlíf og menning
hverskonar hefur lifnað við á síðustu vikum. Eftir nær tveggja ára höml
ur og samkomutakmarkanir vegna heimsfaraldurs er þjóðin nú að ærast í
menningunni líkt og kýr sem hleypt er út að vori. Tónleikar, sýningar og
hverskyns viðburðir eru í gangi. Þetta gerist svo á sama tíma og bæjarhátíð
ir og fastir liðir í dagskrá árstímans fara í hönd.
Á liðnum árum skipta þær fermingar og brúðkaupsveislur þúsundum
sem slá þurfti á frest. Nýlega heyrði ég í föður í síma, sem þá var staddur
erlendis í fermingarferð sem syni hans hafði verið gefin, fyrir 27 mánuð
um síðan, en ekki hefði verið hægt að fara í fyrr vegna ferðatakmarkanna.
Strákurinn var orðinn sautján ára. Ég spurði pabbann hvort ekki hefði
komið til greina að hinkra aðeins lengur, ef vera kynni að sonurinn ætti
kærustu, og slá þá kannski saman brúðkaupsferð og skírn fyrsta barnsins.
Þrír fyrir einn!
En, þetta er náttúrulega ekkert grín. Hvorki fyrir þá sem í hlut eiga né
gestina sem nú verða að mæta í allar veislurnar. Nýlega heyrði ég af fólki
sem boðið var í eina veislu í sumar þar sem fagna á í einni atrennu fermingu
yngsta barnsins, tugafmæli annars barns og útskrift móðurinnar úr fram
haldsnámi. Það kallar maður nú ráðdeild í heimilisrekstri. Fyrir gestgjafana
er það ein veisla og fyrir gestina er það sömuleiðis ein veisla, en þrjár gjafir!
Ég vek athygli þeirra sem hyggjast skipuleggja slík fjölnota hátíðarhöld að
senda tilkynningu eða boð út snemma, þannig að hægt sé að hefja tíman
lega reglubundinn sparnað fyrir gjöfum.
Þessi dæmi sanna að þjóðin er orðin veisluþyrst í meira lagi og ekkert
sem bendir til annars en það muni taka marga mánuði að vinda ofan af
tveggja ára uppsafnaðri veislu og samkomuþörf. Framundan er því tími
flókinnar skipulagningar og hagræðingar á því sem venjulega flokkast und
ir frítíma en nú mætti kalla lögbundna fjölskyldu og vina ræktarsemi.
Ekki vill maður móðga mann né annan. Ekki frekar en kona ein sem tjáði
mér í síðustu viku að allar helgar sumarsins væru hún að lágmarki bókuð
í eina brúðkaups, skírnar, fermingar eða afmælisveislu, nemendahitting
eða ættarmót. Stundum væru þetta tvær veislur sömu helgina og jafnvel að
þær sköruðust. Svo ef viðkomandi væri sem dæmi Skagamaður, ættaður úr
Dölunum, og hefði áhuga á hestum og harmónikkutónlist, þá væri ástandið
bókstaflega skelfilegt. Þannig hagar nefnilega til að Landsmót hestmanna
verður á Hellu, Írskir dagar á Akranesi, Heim í Búðardal og Landsmót
harmonikkuunnenda í Stykkishólmi, allt sömu helgina. Ef brúðkaupsveisla
sonarins væri svo kannski haldin á Blönduósi þessa sömu helgi, samhliða
skírn tveggja ára sonardótturinnar, þá sér hver heilvita maður að lausnin er
hvergi nærri í sjónmáli. Þá fyrst mun reyna á samlyndi hjóna sem standa
frammi fyrir því að velja – og hafna.
Fyrir mig sem er svona miðlungs félagsfælinn að upplagi, bæði hjartveik
ur og með sykursýki, er framundan afar erfitt sumar. Nú þarf stórar ákvarð
anir að taka. Þegar á hólminn er komið er nefnilega meira en að segja
það að verða að neita sér um væna sneið af brauðtertu eða vel kremaða
og hnausþykka hnallþóru. Spurningin er því sú að velja að einangra sig í
nokkrar vikur frá umheiminum, slökkva á símanum og opna aldrei tölvu
póstinn. Láta bara fyrir berast á svæði sem laust er við slík gæði í fjarskipt
um. Vissulega koma ákveðin svæði í Dölunum sterkt til greina, eða jafnvel
Hítardalur. Bara hver sá staður sem laus er við fjarskiptageisla Mammons
og frænda hans.
Já, góðir lesendur; veislu og menningarsumarið 2022 er gengið í garð.
Ég er ekki í vafa að allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi ef vilji er til að
blanda geði við aðra. Góða skemmtun!
Magnús Magnússon
Það eru ýmis kvikindin sem geta
þjarmað að birkiskógum landsins
sem og berjalyngi. Fiðrildategund
in birkifeti er eitt þeirra. Þekkt er
að birkifeti getur lagst á bláberja
lyng og hefur hann á undanförnum
árum gert heilmikinn usla í lyngi
vöxnum brekkum einkum á norð
vestan og vestanverðu landinu.
Birkikjarr í Borgarfirði og í Dölum
hefur t.a.m. stundum iðað af flögr
andi birkifetum en flugtími þeirra
er einkum í júlí. Fyrst lifna lirfurn
ar við og vaxa upp fram eftir sumri.
Meðfylgjandi mynd af bústinni
lirfu birkifeta var tekin í kjarri
vöxnu landi í uppsveitum Borgar
fjarðar 11. júní síðastliðinn. Milt
veður í vor hefur að líkindum ver
ið hagfellt þessari lirfu sem verð
ur síðar í sumar að flögrandi og
sí étandi fiðrildi.
Í frétt Skessuhorns í ágúst 2008
sagði frá að bláberjalyngsbrekkur
í Dölum, á Snæfellsnesi og stað
bundið á Vestfjörðum hafi orðið
brúnar yfirlitum og þar af leið
andi berjalausar. Þetta gerðist eftir
að græni frumuvefur laufblaðanna
hafði verið uppétinn og einung
is visinn og orpinn æðavefurinn
stóð eftir á lyngsprotunum. Þetta
endurtók sig á sömu slóðum árið
2009 og nú í sumar gæti sagan allt
eins endurtekið sig.
mm/ Ljósm. gó
Umferðaþjónusta Vegagerðarinnar
gaf fyrir helgi út nýtt hálendiskort
sem gildir frá 16. júní. Gerðar
hafa verið nokkrar breytingar frá
síðustu útgáfu. Meðal annars er
Arnarvatnsheiði (578) nú opnuð
fyrir 4x4 umferð að sunnanverðu
upp að Norðlingafljóti sem og að
norðanverðu upp að Arnarvatni
stóra. Ennþá er því akstursbann á
vegkaflanum milli Arnarvatns stóra
og brúarinnar yfir Norðlingafljót.
Þessi lokun og aðrar lokanir má sjá
auðkenndar með svörtu á kortinu.
mm
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní bauð
úkraínskt flóttafólk, sem nú er
búsett á Akranesi, gestum og gang
andi að koma við í gamla Lands
bankahúsinu við Akratorg. Hópur
inn vildi með þessu sýna þakklæti
fyrir móttökurnar sem fólkið hefur
fengið. Boðið var upp á úkraínska
tónlist og smárétti.
Andrea Vigfúsdóttir er verk
efnastjóri við komu flóttafólks til
Akraness. Hún segir í samtali við
Skessuhorn að nú séu 23 einstak
lingar komnir frá Úkraínu og deilist
fólkið niður á níu heimili í bæjar
félaginu. Fyrsta fólkið kom 29.
apríl og síðustu tvær fjölskyldurn
ar síðastliðinn miðvikudag. Akra
neskaupstaður auglýsti í vor eft
ir íbúðum fyrir flóttafólk til leigu.
Fyrirkomulagið er þannig að góð
gerðarsamtök leigja íbúðirnar og
síðan gera þau leigusamninga við
flóttafólkið. Andrea segist búast við
að margir muni ílengjast á Akranesi
og séu þegar komnir með vinnu.
Aðrir séu þó harðákveðnir í að snúa
aftur til heimalands síns þegar stríð
inu lýkur og þangað verður óhætt
að fara. „Fimm eða sex eru nú þegar
komin í vinnu og börn hafa sótt
skóla eða komin í dagvistun. Þetta
hefur gengið ótrúlega vel. Fólkið
frá Úkraínu er jákvætt með veruna
hér á Akranesi og vildi með þessari
móttöku á föstudaginn sýna þak
klæti sitt og buðu Akurnesingum
til móttöku í Landsbankahúsinu,“
sagði Andrea. mm
Úkraínufólk á Akranesi bauð til
móttöku á þjóðhátíðardaginn
Hópur Úkraínufólks stóð fyrir móttöku á 17. júní í Landsbankahúsinu við Akratorg.
Nýtt hálendiskort komið út hjá Vegagerðinni
Milt vor gæti orðið hagfellt
átvaglinu birkifeta