Skessuhorn - 22.06.2022, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 20226
Dregur úr
atvinnuleysi
LANDIÐ: Skráð atvinnuleysi
mældist 3,9% á landinu í maí og
dróst saman um 0,6 prósentu
stig milli mánaða. Þetta kem
ur fram í nýrri mánaðarskýrslu
Vinnumálastofnunar. Stofnunin
spáir því að atvinnuleysi dragist
áfram saman í júní og verði á
bilinu 3,53,8%. Atvinnuleysi
dróst saman í öllum landshlut
um en þó mest á Norðurlandi
vestra og Vestfjörðum. Mest
er atvinnuleysi á Suðurnesjum
6,6% en minnst á Norðurlandi
vestra, 1,2%. Hér á Vestur
landi er atvinnuleysi 1,4% í
röðum karla og 2,5% hjá kon
um. Atvinnuleysi náði hámarki
í janúar í fyrra þegar það mæld
ist 11,6% en því til viðbótar
voru 1,2% í skertu starfshlut
falli á hlutabótaleið stjórnvalda,
tímabundnu úrræði sem kom
ið var á í kórónuveirufaraldrin
um. Síðan þá hefur nær samfellt
dregið úr atvinnuleysi. -mm
Handsama ketti á
Hvanneyri
BORGARFJ: Gæludýraeftirliti
Borgarbyggðar hafa borist til
kynningar og ábendingar um
ágang villtra eða hálfvilltra
katta á Hvanneyri, en frá þessu
segir í frétt á heimasíðu Borgar
byggðar. Hvanneyri er innan
friðlandsins í Andakíl þar sem
í stjórnunar og verndaráætlun
koma fram þau tilmæli til íbúa
á verndarsvæðinu að halda kött
um sínum innandyra yfir varp
tímann, frá 20. apríl til 20. júlí
ár hvert til verndar fuglalífi. Til
að bregðast við þessum tilkynn
ingum er áætlað að setja út búr
á Hvanneyri á næstu dögum til
að fanga villta og hálfvillta ketti.
Þeim tilmælum er því beint til
íbúa að halda heimilisköttum
innandyra á næstunni. Þá er
minnt á að skylt er að einstak
lingsmerkja hunda og ketti og
sækja um leyfi til sveitarfélags
ins til að halda hunda og ketti í
þéttbýli. -vaks
Ungviður plantar
í Brynjudal
HVALFJ: Skógræktarfélag
ið Ungviður hóf gróðursetn
ingu á nýjum skógræktarreit
sínum í Brynjudal í Hvalfirði í
maí. Í sumar mun félagið efna
til opinna gróðursetningardaga
helgarnar 18.–19. júní, 16.–17.
júlí og 20.–21. ágúst og býður
alla áhugasama hjartanlega vel
komna. Gróðursettar verða um
tíu þúsund plöntur. Ungvið
ur er skógræktarfélag sem vill
auka þátttöku ungs fólks við
að græða landið. Nánari upp
lýsingar má finna á fésbókar
síðu félagsins. Þess má geta að
nokkrir af meðlimum félagsins
eru skógfræðinemar við Land
búnaðarháskólann á Hvanneyri.
-mm
Fjöldi skemmti-
ferðaskipa
bókuð
GRUNDARFJ: Í Grundar
fjarðarhöfn í sumar eru bók
aðar 43 komur skemmtiferða
skipa með um 50 þúsund far
þega. Hægt er að sjá inn á veg
Grundarfjarðarhafnar grund
port.is hvaða dag og klukkan
hvað skipin koma í höfn. Til að
mynda má sjá að tvö skip eiga
eftir að kíkja í heimsókn í júní.
Mánudaginn 27. júní verður
skemmtiferðaskipið Spirit Of
Discovery við ankeri frá klukk
an 8 til 17 og daginn eftir skip
ið Le Bellot frá klukkan 12 til
18.30 en það skip kemur nán
ast alla þriðjudaga í sumar. Á
næsta ári er þegar búið að bóka
54 skip í Grundarfjarðarhöfn.
-vaks
Nýtt fasteigna-
mat aðgengilegt
LANDIÐ: Eigendur fasteigna
geta nú nálgast tilkynningar
seðil um mat á eignum sín
um í pósthólfinu á www.island.
is. Fasteignir eru endurmetn
ar árlega út frá nýjustu mats
forsendum og byggir matið
meðal annars á upplýsing
um úr þinglýstum kaupsamn
ingum auk fjölmargra annarra
þátta sem hafa áhrif á verð
mæti fasteigna. Nýja fasteigna
matið miðast við verðlag fast
eigna í febrúar 2022. Það tek
ur gildi 31. desember 2022 og
gildir fyrir árið 2023. Frestur til
að gera athugasemdir við nýtt
fasteignamat er til 30. desem
ber 2022, segir í tilkynningu frá
Þjóðskrá. -mm
Niðurstöður umhverfis
vöktunar iðnaðarsvæðisins
á Grundaratanga árið 2021
voru kynntar á opnum
fundi Umhverfisstofnunar
á þriðjudag í liðinni viku.
Umhverfisvöktun svæð
isins fer fram samkvæmt
umhverfisvöktunaráætl
un sem gerð er samkvæmt
starfsleyfum fyrirtækjanna
á svæðinu og samþykkt er
af Umhverfisstofnun. Þau
fyrirtæki sem taka þátt í
umhverfisvöktuninni eru
Elkem Ísland, Norðurál
Grundartanga og Alur Álvinnsla.
Niðurstöður fyrir flúor og
brennistein voru óvenju háar árið
2021 sem talið er tengjast staðsetn
ingu mælistöðva, veðurfari og áhrif
um frá eldgosinu í Geldingadölum.
Niðurstöður umhverfisvöktunar
iðnaðarsvæðisins á Grundartanga
árið 2021 fyrir ferskvatn, gras, sjó
og lífríki sjávar leiða í ljós að öll við
miðunarmörk eru uppfyllt, sem sett
eru í reglugerðum.
Líkt og fyrri ár var sýnum fyrir
flúormælingar safnað á síur á Kríu
vörðu og Gröf II, auk þess sem
mælingar voru gerðar á Hálsnesi,
en þar er mælt þriðja hvert ár. Mæl
ingar á styrk flúors í andrúmslofti
á Kríuvörðu rúmlega tvöfaldaðist
á milli ára og var umfram þau við
miðunarmörk sem skilgreind eru í
starfsleyfi Norðuráls. Styrkurinn er
innan skilgreindra heilsuverndar
marka.
Á Gröf II og Hálsnesi var meðal
styrkur loftkennds flúors og
heildarflúors í samræmi við mæl
ingar fyrri ára og langt innan við
miðunarmarka, auk þess sem aðr
ar loftgæðamælingar í andrúms
lofti uppfylla öll viðmiðunarmörk í
reglugerðum.
Styrkur flúors á Kríuvörðu mæld
ist hæstur í júni, júlí, ágúst og sept
ember en í þessum mánuðum ríktu
þó nokkra daga suðvestanáttir í
óvenjulega marga daga sem höfðu
mikil áhrif á niðurstöðurnar á Kríu
vörðu. Styrkurinn mældist hæstur
30. ágúst í suðvestan stinningsgolu.
Til að bregðast við háum mæl
ingum við Kríuvörðu var settur
upp auka mæli
búnaður á Kríu
vörðu til sam
anburðar, til að
tryggja áreiðan
leika eldri bún
aðar. Niðurstöð
ur úr þeim mæl
ingum eru vænt
anlegar. Norðurál
óskaði jafnframt
eftir að tekin yrðu
auka barrsýni og
vatnssýni þegar
fyrstu niðurstöður
lágu fyrir. Niður
stöður úr þeim sýnum voru allar
innan marka.
Hjá Norðuráli eru símælingar
í rjáfri og í háfum á styrk flúor
íðs og mældist árleg losun flú
ors árið 2021 svipuð og undan
farin ár. Ekki er hægt að tengja
háar mælingar við Kríuvörðu
við truflanir eða frávik í rekstri.
Búið er að framkvæma saman
burðarmælingar á losunarmæl
um fyrirtækisins og reyndust þeir
áreiðanlegir. Niðurstöður los
unarmælinga Norðuráls eru ekki
í samræmi við frávik í í mælingu
flúros á Kríuvörðu og eru allar
innan starfsleyfismarka.
Skýrslur um niðurstöður vökt
unarinnar er að finna á vefsíðu
Umhverfisstofnunar, www.ust.is.
-fréttatilkynning
Miðvikudaginn 15. júní var kún
um á Eiði í Grundarfirði hleypt
út í fyrsta sinn í sumar og var mik
ill hamagangur í öskjunni. Kýrn
ar slettu ærlega úr klaufunum og
hristu sig vel og innilega áður en
þær fóru að róast aðeins og smakka
á safaríku grænu grasinu sem nóg
er af.
tfk
Slett úr
klaufunum
Kynntu niðurstöður umhverfis-
vöktunar á Grundartanga
Hvalfjörður. Ljósm. Jón Helgason