Skessuhorn - 22.06.2022, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 20228
Vestfjarðavík-
ingurinn
STYKKISH: Aflraunakeppni
milli sterkustu manna lands
ins, Vestfjarðavíkingurinn,
fer fram í Stykkishólmi dag
ana 1. og 3. júlí nk. Tvær síð
ustu keppnisgreinarnar og
verðlaunaafhending fara fram
í Stykkishólmi sunnudaginn
3. júlí. Sjöunda grein móts
ins hefst kl. 14.00 þennan dag
og sú áttunda kl. 15.00. Að
því loknu fer fram verðlauna
afhending. Búast má við að
fjölmenni verði í Stykkishólmi
þessa helgi. Auk aflrauna
keppninnar er von á nokkur
hundruð gestum í Hólminn
á landsmót harmónikkuunn
enda. -mm
Leigjendur í
alþjóðasamtök
LANDIÐ: Á fundi stjórnar
Alþjóðasamtaka leigjenda sem
nýverið var haldinn í Helsinki
í Finnlandi var umsókn Sam
taka leigjenda á Íslandi að
samtökunum samþykkt.
Íslensku leigjendasamtökin
tengjast þar með öflugu neti
sterkra leigjendasamtaka víða
um lönd. „Ég trúi að þetta hafi
verið heillaskref,“ segir Guð
mundur Hrafn Arngrímsson
formaður Samtaka leigjenda á
Íslandi. „Það er mikilvægt fyr
ir ung og enn ómótuð samtök
að geta sótt í reynslu þeirra
sem eru komin lengra. Innan
þessara samtaka eru félög sem
hafa með baráttu sinni náð að
umbylta húsnæðismarkaðnum
í sínum löndum. Við munum
sækja í reynslu þessa fólks. Í
þessu hópi var öllum ljóst að
frumforsenda bættrar stöðu
leigjenda er öflug leigjenda
samtök,“ sagði Guðmund
ur. „Félögum okkar fannst
við hafa náð miklum árangri
á skömmum tíma en voru líka
meðvituð um að það er langur
vegur framundan og einhverj
ar brekkur. Sumt af þessu fólki
kemur á norrænt þing leigj
enda sem við stöndum fyrir í
Reykjavík í haust og þar verð
ur sérstaklega rætt um barátt
una á Íslandi.“ -mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
dagana 10. – 17. júní
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu
Akranes: 2 bátar.
Heildarlöndun: 3.012 kg.
Mestur afli: Arnar ÁR: 2.189
kg í tveimur löndunum.
Arnarstapi: 4 bátar.
Heildarlöndun: 4.478 kg.
Mestur afli: Húnaröst RE:
2.138 kg í tveimur róðrum.
Grundarfjörður: 22 bátar.
Heildarlöndun: 211.008 kg.
Mestur afli: Bylgja VE: 47.694
kg í einum róðri.
Ólafsvík: 40 bátar.
Heildarlöndun: 132.426 kg.
Mestur afli: Gunnar Bjarna
son SH: 37.439 kg í tveimur
löndunum.
Rif: 26 bátar.
Heildarlöndun: 75.436 kg.
Mestur afli: Rifsari SH: 27.096
kg í tveimur róðrum.
Stykkishólmur: 33 bátar.
Heildarlöndun: 93.800 kg.
Mestur afli: Fjóla SH: 10.196
kg í fjórum löndunum.
1. Bylgja VE – GRU: 47.694
kg. 17. júní.
2. Runólfur SH – GRU:
47.226 kg. 13. júní.
3. Hringur SH – GRU: 45.314
kg. 15. júní.
4. Björgvin EA – GRU: 37.105
kg. 16. júní.
5. Saxhamar SH– RIF: 26.122
kg. 14. júní.
Laugardaginn 11. júní síðast
liðinn hélt nýkjörin hreppsnefnd
Skorradalshrepps sinn fyrsta fund
eftir sveitarstjórnarkosningar.
Pétur Davíðsson starfsaldursodd
viti boðaði til fundarins sem fram
fór á Hvanneyri. Fundinn sátu auk
Péturs þau Jón Eiríkur Einarsson,
Guðný Elíasdóttir, Óli Rúnar Ást
þórsson og Kristín Jónsdóttir.
Kosning oddvita til eins árs fór
fram á fundinum og fór kosningin
þannig að Jón fékk þrjú atkvæði og
þeir Óli Rúnar og Pétur eitt atkvæði
hvor. Jón Eiríkur var því réttkjör
inn oddviti til eins árs og þakkaði
Jón fyrir kjörið og óskaði eftir góðu
samstarfi við nefndarmenn. Guðný
Elíasdóttir var síðan kosin varaodd
viti til eins árs en hún fékk fjögur
atkvæði gegn einu atkvæði Péturs.
Síðan var kosið í undirnefndir
og aðrar nefndir en þær má sjá á
heimasíðunni skorradalur.is. vaks
Fyrsti fundur hreppsnefndar Eyja
og Miklaholtshrepps eftir sveitar
stjórnarkosningar var haldinn
fimmtudaginn 2. júní síðastliðinn.
Þröstur Aðalbjarnarson boðaði til
fundarins vegna þess að hann er
með lengstu setu í sveitarstjórn að
baki af nýkjörnum sveitastjórnar
mönnum. Fram kemur í fundar
gerð að loknum kosningum hafi
kjörstjórn borist bréf frá Valgarð
S. Halldórssyni þar sem hann til
kynnti að hann hefði flutt lögheim
ilið úr sveitarfélaginu og þar með
misst kjörgengi til sveitarstjórnar.
Einnig barst bréf frá Gísla Guð
mundssyni þar sem hann baðst
undan sæti í sveitarstjórn vegna
aldurs. Í þeirra stað koma Þröstur
Aðalbjarnarson og Sonja Karen
Marinósdóttir og færast varamenn
þá upp um sæti miðað við þá röðun
sem þeir voru kjörnir til. Í kosningu
til oddvita fékk Sigurbjörg Ottes
en flest atkvæði og varaoddviti var
kosin Herdís Þórðardóttir. vaks
Jón Eiríkur oddviti ásamt konu sinni Fjólu Benediktsdóttur. Hér á ferðalagi
norðan heiða. Ljósm. af FB.
Jón Eiríkur kjörinn oddviti
Skorradalshrepps
Sigurbjörg Ottesen oddviti Eyja- og Miklaholtshrepps. Ljósm. Gunnhildur Lind.
Sigurbjörg kosin nýr oddviti
Að morgni þjóðhátíðardagsins
var stutt athöfn í Reykholtskirkju.
Þá færðu fulltrúar Hvammssókn
ar í Norðurárdal Reykholtskirkju
að gjöf nýjan kistuvagn. Um er að
ræða vagn sem hægt er að draga
sundur, og leggja saman, og er ætl
aður til flutnings á líkkistum og á
honum standa kisturnar við útfar
ir. Vagninn er á hjólum og klædd
ur smekklegu efni. Vagn sem þessi
hefur ekki áður verið til í Reykholti
en mun nú nýtast vel.
Það voru hjónin Elvar Óla
son og Þórhildur Þorsteinsdóttir
á Brekku sem afhentu gjöfina fyr
ir hönd Hvammssóknar. Þórhildur
sagði við þetta tilefni að hún sem
starfsmaður við útfararþjónustu
hafi skynjað þörfina. Hvamms
sókn hafi verið aflögufær og viljað
leggja sitt til Reykholtskirkju, það
an sem vaxandi fjöldi útfara í héraði
fer nú fram. Við gjöfinni tóku þau
Þorvaldur Jónsson sóknarnefndar
formaður og séra Hildur Björk
Hörpudóttir sóknarprestur. Þor
valdur þakkaði af heilum hug þenn
an rausnarskap nágrannanna. Við
messu skömmu síðar sagði sr. Hild
ur Björk frá gjöfinni og að gripur
þessi yrði notaður við jarðarfarir
eftirleiðis og muni auðvelda fólki
að kveðja sína nánustu: „Það eru
svona gjafir sem einstakt samfélag
gefur, samfélag eins og Hvamms
sókn sem skynjar þörfina og bregst
við henni af kærleika. En það er fátt
jafn sterkt í íslensku samfélagi og
þörfin til að kveðja fallega. Við vilj
um koma saman, sjá og hitta hvert
annað, hlusta og skynja einlægn
ina í sorginni og við viljum deila
máltíð og faðma og hugga. Þannig
er íslensk jarðarför og þannig er
íslenskt samfélag. Oftar eru stólp
ar þess minnst sýnilegir,“ sagði séra
Hildur Björk.
mm
Hér standa þau við nýja kistuvagninn. F.v. Elvar Ólason og Þórhildur Þorsteinsdóttir fulltrúar Hvammssóknar, Þorvaldur
Jónsson sóknarnefndarformaður og sr. Hildur Björk Hörpudóttir.
Hvammssókn færði
Reykholtskirkju kistuvagn að gjöf