Skessuhorn - 22.06.2022, Side 12
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 202212
17. júní hér og þar á Vesturlandi
Að þessu sinni voru hátíðarhöld á þjóðhátíðardaginn í Hvanngarðabrekkunni á Reykhólum. Undanfarin fjölmörg ár hafa
hátíðarhöldin verið í Bjarkalundi en nú eru þar vinnubúðir verktakafyrirtækisins Suðurverks næstu tvö árin og hótelið lokað.
Fram kemur á heimasíðu Reykhólahrepps að það hafi rignt nokkuð og komið niður á aðsókninni, en fólkið sem kom skemmt
sér hið besta. Unga kynslóðin fór í leiki og það lánaðist að hóa saman fullorðnu fólki í reiptog, sem var ansi tvísýnt hvernig
myndi enda. Lions bauð upp á pylsur og krakkarnir fengu andlitsmálningu sem rann merkilega lítið í rigningunni.
Ljósm. reykholar.is
Að venju var mikið um að vera á þjóðhátíðardaginn í Snæfellsbæ. Landsbanka-
hlaupið var haldið fyrir börn og unglinga, hesteigandafélagið Hringur var með
opið hús, skrúðganga var frá íþróttahúsinu og var unglingadeildin Drekinn með
andlitsmálningu auk þess að selja nammi og blöðrur. Hátíðardagskrá hófst svo í
sjómannagarðinum og setti Lilja Hrund Jóhannesdóttir hátíðina. Stefanía Bláfeld
Viðarsdóttir var fjallkona Snæfellsbæjar að þessu sinni. Hún las upp hið fallega
kvæði Til fánans eftir Einar Benediktsson. Einnig flutti séra Óskar Ingi Ingason
hugvekju. Ræða nýstúdents var í höndum Anitu Ólafsdóttur. Hún flutti alveg
stórgóða og skemmtilega ræðu sem vakti mikla athygli viðstaddra. Auk þess voru
verðlaun veitt fyrir keppnisgreinar sem fram fóru í íþróttahúsinu. Ljósm. af.
Prúðbúnar á leið til hátíðarguðsþjónustu í Reykholti; þær Vilborg Pétursdóttir og
Jónína Eiríksdóttir. Ljósm. mm.
Við hátíðardagskrá í Borgarnesi, sem flutt var í Hjálmaklett vegna veðurs, var
afreks-íþróttakonunum Alexandreu Rán Guðnýjardóttir og Kristínu Þórhalls-
dóttur veitt viðurkenning. Hér er í ræðustól Guðveig Lind Eyglóardóttir forseti
sveitarstjórnar; Guðný Guðmarsdóttir móðir Alexandreu og Kristín Þórhallsdóttir.
Ljósm. gj.
Skrúðgangan í Stykkishólmi. Ljósm. sá.
Tunnulestin vekur alltaf hrifningu hjá börnunum í Stykkishólmi. Ljósm. sá.
Sr. Þóra Björg Sigurðardóttir var fjallkonan á Akranesi að þessu sinni. Ljósm. ki.
Svala Björgvins að skemmta á Akratorgi. Haffi Haff myndar og ungar stúlkur á sviðinu. Ljósm. ki.