Skessuhorn - 22.06.2022, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2022 17
Garðar Jónsson málari er fæddur og
uppalinn í Borgarnesi en hefur síð
an búið á Akranesi og nú í Hval
fjarðarsveit. Hann hefur stund
að íþróttir alla sína tíð ásamt því að
þjálfa meistaraflokk bæði í fótbolta
og körfubolta víðs vegar um land.
Hann hyggst nú keppa á Landsmóti
50+ sem haldið verður í Borgarnesi
um helgina.
Mikið íþróttalíf
í Borgarnesi
,,Ég er fæddur og uppalin í Borgar
nesi og stundaði mikið íþróttir
hér á mínum yngri árum. Maður
var að æfa allar greinar; fótbolta,
körfubolta, frjálsar og ég var í sundi
líka. Ég var þó mest í fótbolta og
körfubolta en einhvern veginn var
nægur tími fyrir þetta allt saman.
Á þeim tíma var fótboltinn æfður á
sumrin og körfuboltinn á veturna.
Svo var maður í sundi með körfunni
á veturna og frjálsum með fótboltan
um á sumrin. Svo sá ég það með tím
anum að ég var ágætlega góður í fót
bolta og körfubolta svo ég hélt áfram
þar og hætti í hinu. Þetta voru rosa
lega góðir tímar og mikið af efnilegu
íþróttafólki í Borgar nesi á þessum
árum. Margir náðu bara mjög góð
um árangri í þessum greinum, sér
staklega frjálsum, enda var það starf
mjög gott á sínum tíma. Til svona
16 ára aldurs vildi maður bara vera
í öllu en það hefur alltaf verið mik
ill íþróttaáhugi hjá mér,“ segir Garð
ar um íþróttaiðkun sína sem barn og
unglingur í Borgar nesi á uppvaxtar
árunum.
Úr meistaraflokki
í málarabransann
Garðar lagði fótboltann og körfu
boltann fyrir sig en fór að ferðast
um landið að þjálfa meistaraflokk í
báðum greinum. ,,Ég flutti til Akra
ness árið 1981 og fór að þjálfa þar
meistaraflokk í körfubolta hjá ÍA.
Ég kynntist konunni minni á Akra
nesi og fluttist þess vegna á Skagann.
Ég var búinn að vera að þjálfa meist
araflokkinn hjá Skallagrími í Borg
arnesi með góðum árangri og spil
aði líka með. Gerði svo það sama á
Akranesi. Á sumrin var maður svo
kominn í að þjálfa fótboltann. Ég
byrjaði 1985 að þjálfa og spila fót
bolta, þá á Blönduósi í eitt sumar.
Svo 198788 var ég að þjálfa og spila
með meistaraflokki í fótbolta hjá
Hvöt á Dalvík. Ég endaði svo hjá
Sindra á Höfn í Hornafirði 1990.
Það var einmitt þar sem ég stofnaði
svo fyrirtæki, málarafyrir tækið sem
ég rek enn í dag. Ég hélt svo bara
áfram í því þegar við fluttum aftur
á Akranes. Þá fór ég á fullt í þann
rekstur og var hættur að fara út á
land, íþróttaferillinn var þá búinn og
málarabransinn tók við.“
Stoltur af
þjálfaraferlinum
Garðar segir þjálfaraferillinn hafa
gengið vel en besti árangurinn var
16 liða úrslit í bikarnum í meistara
flokki í fótbolta. ,,Já við vor
um að standa okkur vel þarna. Við
Skallagrímsmenn í meistaraflokki
æfðum þrisvar í viku og náðum
þrátt fyrir það bara ágætis árangri
í fótboltanum. Í dag æfa menn allt
upp í sex sinnum í viku hjá liðum í
efstu deild. Með Sindra á Horna
firði lentum við í 16 liða úrslitum í
meistaraflokki en fengum svo KR í
heimsókn. Það voru margir frægir
leikmenn með KR á þeim tíma og
við enduðum á því að tapa 20. Sem
var bara ásættanlegt tap, alls ekkert
til að skammast sín fyrir.“
Mótið ekki síður
félagslegt
Garðar hefur haldið áfram að halda
körfubolta og fótboltafimi við en í
dag æfir hann eldrimannabolta í báð
um greinum og ætlar sér að keppa
á Landsmóti 50+. ,,Ég er aðeins að
sprikla í fótbolta og körfubolta með
svona eldri hópi en sumir eru nátt
úrulega yngri en ég,“ segir Garð
ar kíminn. ,,Við köllum þetta svona
eldrimannabolta en svo datt þetta
eiginlega út þegar Covidið kom en
ég hef reynt að halda mér í þessu.
Ég er að fara að keppa í fótbolta og
körfubolta, svo er ég að spá í að taka
sundið líka. Sundið er kannski ágæt
upphitun fyrir fótboltann en þær
greinar fara fram sama dag. Sundið
er um morguninn og fótboltinn eft
ir hádegi. Það er líka gaman að fara
á milli staða og fylgjast með fólki í
allskyns greinum, gá hvort maður
sjái ekki einhvern sem maður þekk
ir. Þetta er svolítið félagslegt líka og
best að halda sig ekki bara við eina
grein heldur fara á milli og sýna
sig og sjá aðra. Við höfum t.d. ekki
verið að æfa stíft. Það er ekki búið
að æfa neitt sérstaklega fyrir þetta
mót, ég verð að viðurkenna það. Við
félagarnir tókum eina létta æfingu
fyrir gönguboltann sem er ný grein
á Landsmótinu. Það verður bara
gaman að mæta til leiks, hafa gaman
og hitta gamla félaga. Við sjáum svo
bara til þegar líður á mótið hvort við
endum í verðlaunasæti.“
Fylgist með öllum
íþróttum
Í dag segist Garðar fylgjast vel með
mörgum íþróttum en íþróttaáhuginn
hefur síst minnkað með árunum. ,,Ég
fylgist í dag með öllum keppnum,
alveg sama hvað það er en ég hef
mestan áhuga á fótbolta, körfubolta
og handbolta. Ég fylgist líka með
golfi og frjálsum. Það er bara gam
an að stunda íþróttir og fylgjast með
þeim.“ Garðar segist ekki fara í rækt
ina en hann mætir á boltaæfingar og
segist taka létt hlaup. ,,Konan mín er
svo með mér í þessari hreyfingu og
styður mig í einu og öllu og hefur
gert það í gegnum árin. Við förum
mikið saman í göngutúra og svona,
það er mjög jákvætt að hún er með
sömu áhugamál og ég.“
Keppir með
gömlum félögum
Garðar er enginn nýgræðing
ur þegar kemur að því að keppa á
landsmóti. ,,Ég keppti á unglinga
landsmótum þegar þau voru og svo
hef ég keppt á þremur 50+ mótum.
Keppti þá bara í sömu greinum og
núna, þessum boltagreinum.“ Með
Garðari keppa gamlir félagar en í
körfuboltanum keppa þrír saman og
í fótboltanum fimm en þar má ekki
hlaupa, bara ganga. ,,Fótboltinn er
göngubolti sem er svolítið erfitt, það
má ekkert auka hraðann svo ég kvíði
svolítið fyrir,“ segir Garðar og hlær.
Mótin í Borgarnesi alltaf
til fyrirmyndar
Að lokum segir Garðar aðstöðuna
í Borgarnesi til fyrirmyndar enda
mörg mót verið haldin þar í gegn
um tíðina. Hann vonast þó eftir
bættri íþróttaaðstöðu í Borgarnesi.
,,Borgarbyggð og UMSB hafa stað
ið vel að þessum mótum sem hafa
verið haldin í Borgarnesi og aðstað
an er til fyrirmyndar fyrir þetta.
Mín von er samt sú að fyrir næsta
Landsmót 50+ verði komið nýtt og
glæsilegt íþróttahús. Hér eru líka
frábærir gistimöguleikar, mikið af
hótelum í Borgarnesi og nágrenni.
Tjaldsvæðið er kannski lítið en það
verður eflaust hægt að leita annað.
Brákarhátíð er einmitt sömu helgi
svo það verður sennilega mann
mergð í bænum. UMSB og Borgar
byggð hafa góða reynslu í að halda
svona mót og ég efast ekki um að
þetta Landsmóti verði UMSB og
Borgarbyggð til sóma í sól og blíðu,“
segir Garðar að lokum.
sþ
Með körfuboltann á lofti. Ljósm. mm.
Þjálfaði og spilaði með meistaraflokki
í körfubolta og fótbolta
Keppir nú á Landsmóti 50+ í Borgarnesi næstu helgi
Garðar Jónsson tilbúinn í slaginn í UMSB gallanum á íþróttavellinum í Borgarnesi. Ljósm. sþ.