Skessuhorn - 22.06.2022, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2022 19
Norðurálsmótið í knattspyrnu var haldið í 37. skipti á Akra
nesi um síðustu helgi. Mótið hófst 16. júní með keppni 8.
flokks drengja og stúlkna og tóku alls 570 börn þátt; 80
drengjalið og 18 stúlknalið. Föstudaginn 17. júní, á sjálf
an þjóðhátíðardaginn, var mótið sett formlega með skrúð
göngu og setningu. 7. flokkur drengja keppti frá 17.19. júní
og voru 1150 drengir sem tóku þátt í mótinu. Heildarfjöldi
þátttakenda í Norðurálsmótinu í ár var því um 1750 kepp
endur og gestir á mótinu voru hátt í fimm þúsund. Norður
álsmótið er skipulagt á forsendum iðkenda, með það í huga
að allir séu með í leiknum til að skapa jákvæða og skemmti
lega upplifun barna sem eru að stíga sín fyrstu skref í fót
bolta.
Eggert Hjelm Herbertsson, formaður knattspyrnufélags
ÍA, segir í pistli á facebook síðu sinni að það þurfi ansi öfl
ugt fólk til starfa á móti sem þessu og mikið af öflugu fólki
sem hefði lagt hönd á plóg. „Þetta mót dregur fram bestu
hliðar Knattspyrnufélags ÍA og að mörgu leyti bestu hlið
ar samfélagsins á Akranesi. Það getur reynt á þegar veður
guðirnir eru í fjölbreyttu skapi og breyta þarf plönum þess
vegna reglulega. Við lögðum áherslu á að hlusta á iðkendur,
þjálfara, dómara og aðra og tókum niður punkta um hvernig
við getum gert þetta mót enn betra að ári. Ég vil fyrir hönd
Knattspyrnufélags ÍA þakka þátttakendum, sjálfboðaliðum,
starfsfólki, gestum og öllum þeim sem aðstoðuðu og tóku
þátt við að gera þetta mót eins glæsilegt og raunin varð.“
Kolbrún Ingvarsdóttir ljósmyndari Skessuhorns var á
ferðinni og tók nokkrar myndir af fjörinu og fótboltanum á
Norðurálsmótinu um helgina.
vaks
Skin og skúrir á Norðurálsmótinu um helgina