Skessuhorn - 22.06.2022, Blaðsíða 23
23MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2022
KR og ÍA áttust við í Bestu deild karla
í knattspyrnu sl. miðvikudagskvöld
og fór leikurinn fram á heimavelli KR
á Meistaravöllum. Fyrir landsleikja
hlé höfðu liðin átt misjöfnu gengi
að fagna í deildinni, KRingar höfðu
unnið þrjá síðustu leiki af fjórum á
meðan ÍA hafði tapað síðustu fjórum
af fimm og ekki unnið KR í Vestur
bænum síðan í lok júní árið 2016.
Leikurinn byrjaði fjörlega þegar
Árni Snær Ólafsson, markvörður ÍA,
varði frábærlega frá Ægi Jarli Jónas
syni eftir tíu mínútna leik og fimm
mínútum síðar kom fyrsta mark leiks
ins. Gísli Laxdal Unnarsson vann þá
boltann af Kennie Chopart, renndi
boltanum í hlaupið fyrir Steinar Þor
steinsson sem sendi boltann þvert á
teiginn á Eyþór Aron Wöhler sem
renndi honum í netið. Stuttu síðar
vildu Skagamenn fá vítaspyrnu þegar
brotið var á Steinari innan vítateigs
en ekkert var dæmt og á 27. mínútu
höfðu heimamenn jafnað metin. Atli
Sigurjónsson sendi þá flotta fyrir
gjöf beint á kollinn á Ægi Jarli sem
var aleinn í teignum og skoraði með
hörkuskalla, staðan jöfn eftir tæplega
hálftíma leik. Þremur mínútum síð
ar vildu KRingar fá vítaspyrnu þegar
Oliver Stefánsson renndi sér í teign
um fyrir Atla sem féll í teignum en
aftur var ekkert dæmt og jafnt var á
með liðunum eftir fyrri hálfleikinn.
KR komst síðan yfir strax í upp
hafi síðari hálfleiks þegar fyrrnefnd
ur Atli fór illa með varnarmann ÍA og
skaut föstu skoti á nærstöngina sem
hafnaði í netinu. Tíu mínútum síð
ar fékk Ægir Jarl gott færi en skaut
fram hjá marki ÍA og í kjölfarið tóku
Skagamenn við sér og settu pressu á
KRinga. Á 66. mínútu jöfnuðu þeir
metin þegar Eyþór Aron komst upp
að endamörkum, lagði boltann út í
teiginn á Steinar sem setti boltann
snyrtilega í netið. Skagamenn komust
síðan yfir 32 í leiknum þegar Gísli
Laxdal fór fram hjá varnarmanni
KR inn í teig og lagði boltann fyrir
fætur Eyþórs Arons sem kom hon
um í netið, vel gert hjá þeim félög
um. Þegar allt útlit var fyrir fyrsta
sigur ÍA í sex ár á KR vellinum náði
KR að jafna á næst síðustu mínút
unni. Þeir fengu ódýra aukaspyrnu á
miðjum velli og Aron Kristófer Lár
usson spyrnti inn í teig ÍA þar sem
Alexander Davey skallaði boltann yfir
Árna Snæ og í eigið mark. Árni Snær
lá eftir með skurð í andlitinu eftir að
leikmaður KR hafði lent undir Davey
og óviljandi sett fótinn í andlit hans.
Skömmu síðar flautaði dómarinn
leikinn af og lokatölur 33 í fjörug
um og skemmtilegum leik en óhætt
að segja að Skagamenn geti nagað sig
í handarbökin að hafa ekki náð í stig
in þrjú.
ÍA er nú í tíunda sæti deildarinnar
með sjö stig eftir níu leiki en Leiknir
og ÍBV eru á botninum með þrjú stig.
Næsti leikur ÍA var í gær gegn FH á
Akranesvelli og var hann ekki hafinn
þegar Skessuhorn var sent í prentun.
vaks
Augnablik og Kári mættust í 3.
deild karla í knattspyrnu á fimmtu
daginn og fór leikurinn fram í Fíf
unni í Kópavogi. Andri Júlíusson
skoraði eina mark fyrri hálfleiks
fyrir Kára þegar hann skoraði mark
úr víti eftir tæplega hálftíma leik og
staðan 01 fyrir Kára.
Í byrjun seinni hálfleiks gerð
ust hlutirnir hratt þegar Bjarni
Harðarson skoraði fyrir heima
menn eftir sex mínútna leik en
Andri kom Káramönnum yfir á ný
skömmu síðar með sínu öðru marki
og aftur frá vítapunktinum. Jón
Veigar Kristjánsson jafnaði metin
aftur fyrir Augnablik eftir tæplega
klukkutíma leik en Finnbogi Lax
dal Aðalgeirsson kom Kára yfir
fjórum mínútum síðar og mik
il spenna í leiknum. Það var síðan
ekki fyrr en á lokamínútunni sem
Arnar Már Kárason tryggði sig
ur gestanna og annan sigur liðsins
í röð í deildinni, lokatölur 24 fyr
ir Kára. Með þessum sigri komst
Kári upp í efri hluta deildarinnar í
sjötta sætið og er með tíu stig eins
og Vængir Júpíters og Augnablik
en efst eru Dalvík/Reynir og KFG
með 15 stig eftir sjö umferðir.
Í næstu umferð fær Kári botn
lið KH í heimsókn á föstudaginn
í Akraneshöllina og hefjast leikar
klukkan 19.15. vaks
Skallagrímur tók á móti Hvíta
riddaranum í A riðli 4. deildar karla
í knattspyrnu sl. miðvikudag og fór
leikurinn fram á Skallagrímsvelli í
Borgarnesi. Bæði lið höfðu unnið
alla fjóra leiki sína í riðlinum til
þessa og því um toppslag að ræða.
Hvorugt liðið var með marka
skóna með í för í leiknum og það
var ekki fyrr en á 82. mínútu sem
eina mark leiksins leit dagsins ljós.
Það skoraði Eiríkur Þór Bjarkason
fyrir Hvíta riddarann og tryggði
nauman sigur gestanna, lokatölur
01.
Hvíti riddarinn náði þar með
toppsætinu í A riðli með sínum
fimmta sigurleik í röð, Árbær og
Skallagrímur eru í öðru og þriðja
sæti með tólf stig eftir fimm leiki og
Ísbjörninn í því fjórða með níu stig.
Athygli vekur að í þessum riðli hafa
verið leiknir alls 19 leikir og enginn
leikur enn endað með jafntefli.
Næsti leikur Skallagríms í riðlin
um var gegn Ísbirninum við Kór
inn í Kópavogi og var hann spilað
ur í gærkvöldi, eftir að Skessuhorn
var sent í prentun.
vaks
Skagakonur tóku á móti ÍH í 2.
deild kvenna í knattspyrnu á mánu
daginn og fór leikurinn fram á
Akranesvelli. Hugrún Elvarsdótt
ir kom gestunum yfir á áttundu
mínútu leiksins þegar hún lagði
boltann laglega í nærhornið fram
hjá markmanni ÍA. Erla Karitas
Jóhannesdóttir jafnaði metin á 24.
mínútu þegar hún fékk boltann inn
fyrir vörn ÍH og hamraði boltann
í fjærhornið. Bryndís Rún Þórólfs
dóttir kom síðan ÍA yfir tíu mínút
um síðar eftir klafs í teignum og á
lokamínútu fyrri hálfleiks átti Unn
ur Ýr Haraldsdóttir góðan sprett
upp hægri kantinn og setti hann
snyrtilega í fjærhornið, hálfleikstöl
ur 31 fyrir ÍA.
Orrahríðin hélt áfram í seinni
hálfleik og eftir tæplega klukku
tíma leik kom Erna Björt Elías
dóttir ÍA í þriggja marka forystu
þegar hún fékk þversendingu frá
Söndru Ósk Alfreðsdóttur og skor
aði með vinstri fætinum upp í þak
netið. Bryndís Rún var síðan aftur
á ferðinni tíu mínútum síðar þegar
hún tók boltann niður í teignum
og lagði hann í hornið. Ylfa Lax
dal Unnarsdóttir bætti við sjötta
markinu fyrir ÍA níu mínútum fyr
ir leikslok með góðu skoti út við
stöng og á síðustu mínútunni inn
siglaði Unnur Ýr stórsigur ÍA með
sínu öðru marki þegar hún fylgdi
eftir stangarskoti Ylfu Laxdal, loka
tölur leiksins 71 fyrir ÍA.
Skagakonur hafa nú unnið tvo
leiki í röð í deildinni og eru að
mjaka sér upp í efri hlutann en þær
eru í sjötta sæti með sex stig eftir
þrjá leiki. Fram, Grótta og ÍR eru
í efstu þremur sætunum á meðan
Hamar og KÁ sitja í botnsætun
um. Næsti leikur ÍA er heimaleik
ur gegn Sindra á Írskum dögum
laugardaginn 2. júlí á Akranesvelli
og hefst klukkan 14.
vaks
Víkingur Ólafsvík tók á móti
Magna frá Grenivík í 2. deild karla
í knattspyrnu á laugardaginn og
vann stórsigur, lokatölur 51 fyr
ir Víking. Fyrir leik var Víkingur
í botnsæti deildarinnar með aðeins
tvö stig eftir sex leiki og Magni sæti
ofar með fjögur stig. Eftir hálf
tíma leik komust heimamenn yfir
með marki frá fyrirliðanum Bjarti
Bjarma Barkarsyni en aðeins þrem
ur mínútum síðar jafnaði Kristófer
Óskar Óskarsson fyrir gestina og
þannig var staðan í hálfleik, 11.
Bjartur Bjarmi var aftur á ferðinni
í byrjun seinni hálfleiks og Andri
Þór Sólbergsson vildi ekki vera
minni maður og bætti skömmu síð
ar við tveimur mörkum fyrir Vík
ing á níu mínútna kafla. Adrian
Sanchez gulltryggði síðan stórsig
ur Víkings og fyrsta sigur þeirra í
deildinni í sumar með marki tæp
lega tuttugu mínútum fyrir leiks
lok, frábær sigur hjá heimamönn
um. Víkingur kom sér með þess
um sigri úr fallsæti upp í níunda
sæti deildarinnar og er þar með
fimm stig eins og Höttur/Huginn
en Magni og Reynir Sandgerði eru
á botninum og Reynismenn enn án
stiga eftir sjö umferðir. Í efri hlut
anum eru Njarðvík og Ægir efst og
jöfn með 19 stig og Þróttur R. í því
þriðja með 16 stig.
Næsti leikur Víkings er á móti
KF næsta laugardag á Ólafsfjarðar
velli og hefst klukkan 16. vaks
Skallagrímur tapaði
sínum fyrsta leik
Byrjunarlið Kára í leiknum gegn Augnabliki. Ljósm. FB síða Kára
Kári mjakast upp töfluna
KR og ÍA gerðu jafntefli
í fjörugum leik
Eyþór Aron Wöhler fagnar öðru marki sínu ásamt Kaj Leó í leiknum.
Ljósm. Lárus Árni Wöhler.
Unnur Ýr Haraldsdóttir skoraði tvö mörk á móti ÍH. Ljósm. sas
Stórsigur ÍA
kvenna gegn ÍH
Luis Romero Jorge í baráttu við varnarmann Magna í leiknum. Ljósm. af
Víkingur Ó með sinn
fyrsta sigur í sumar