Lögmannablaðið - 2021, Page 11
LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 02/21 11
LÖGMENN ERU ÞJÓNAR
RÉTTARRÍKISINS
VIÐTAL VIÐ SIGURÐ ÖRN HILMARSSON
NÝKJÖRINN FORMANN LÖGMANNAFÉLAGSINS
Hvernig kom það til að þú ákvaðst að bjóða þig fram til formennsku?
Ég hef fylgst með starfi félagsins frá því ég varð lögmaður
árið 2009. Ég sat m.a. í starfshópi um hælisleitendamál
en kom inn sem varamaður í stjórn árið 2018 og sat
alla stjórnarfundi þar sem einn stjórnarmanna hvarf til
annarra starfa. Síðan fór ég í aðalstjórn árið 2019 og var
varaformaður síðasta starfsár. Þá fór ég aðeins að máta mig
við þetta hlutverk.
Af hverju fórstu í lögfræði?
Það var nú eiginlega fyrir slysni. Ég var í náttúrufræðideild
MR og hafði hugsað mér að fara í læknisfræði eða eitthvað
slíkt. Í stúdentsprófunum fékk ég hins vegar leið á
náttúruvísindum og velti um tíma fyrir mér að fara annað
hvort í bókmenntafræði eða heimspeki. Ég endaði síðan á
því að skrá mig í lögfræði, aðallega til að fresta ákvörðun um
hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór. Í meistaranáminu
fór ég að vinna lögfræðistörf samhliða námi og fékk þá
aukinn áhuga á faginu.
Lögmannsstofan Réttur hefur verið í fararbroddi við að sinna
mannréttindum og pro bono málum, hvers vegna hefur sú stefna
verið tekin?
Frá því að Ragnar Aðalsteinsson hóf störf sem sjálfstætt
starfandi lögmaður árið 1969 þá hefur hann helgað hluta
af tíma sínum framgangi réttarins með manngildishugsjón
að leiðarljósi. Við sem störfum hér deilum þessari skoðun
en lengi vel var svolítið tilviljun háð hvaða mál voru tekin.
Fyrir um það bil 7-8 árum þá ákváðum við að formgera
stefnu stofunnar í þessum málum og fórum að taka þátt í
verkefni Sameinuðu þjóðanna um samfélagslega ábyrgð.
Við ákváðum þá hvaða málaflokka við tækjum að okkur,
veltum fyrir okkur hvaða gildi ættu að vera í störfum okkar
og hvað fælist í því að vera lögmaður.
Og hvað felst í því að vera lögmaður?
Lögmenn eru þjónar réttarríkisins, þeirra hlutverk
er að gæta að grundvallarréttindum fólks. Það skiptir
raunverulegu máli að það sé gott fólk sem veljist til þessara
starfa.
Sigurður Örn Hilmarsson, einn eigenda Lögmannsstofunnar Réttar, var kjörinn formaður
á aðalfundi Lögmannafélags Íslands 28. maí síðastliðinn. Lögmannablaðið hitti Sigurð
Örn og ræddi við hann um lögmennskuna, lífið og starfið fram undan.