Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2012, Page 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2012, Page 19
Sjómannablaðið Víkingur – 19 ég. Við búum undir sama þaki og getum rifjað upp liðin ár, bæði á sjó og í land- legum og gerum. Þeir sem eru dánir eru Guðjón Jóhannsson skipstjóri, Jón Jó- hannsson vélstjóri, bróðir Guðjóns, Sverr- ir Jóhannsson, sem var stýrimaður, ætt- aður úr Svarfaðardal eða af Árskógs- strönd, hann var 21 árs. Bjó síðan í Grindavík og var lengi 1. vélstjóri hjá Þórarni Ólafssyni aflamanni mági mínum og seinna með afgreiðslu OLÍS í Grinda- vík. Háhyrningarnir Strax eftir heimkomuna úr vélaskiptun- um á Sæborginni, var farið á reknet. Mestur krafturinn var liðinn í veiðinni, en þó fékkst einn og einn góður róður, ef maður slapp við háhyrninginn, en þetta var eitt versta haustið, hvað hann snerti. Það kom fyrir að það var allt að því helmingurinn af netunum rifin og eftir því, sem meira var af síld í þeim, voru þau ver farin. Það var með ólík- indum hvernig skepnan hagaði sér, hún gat komið að bátnum, rétt fyrir neðan rúlluna og glefsað í netin og hrist þau til Dux GK 86. Varð seinna Svanur KE 6. Líkanið smíðaði hinn snjalli Grímur Karlsson.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.