Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Qupperneq 33

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2016, Qupperneq 33
Sjómannablaðið Víkingur – 33 N ú eru 14 ár liðin frá því að Sjó- mannablaðið Víkingur hrinti af stað keppni milli sjómanna í myndatökum. Það var ekki síst fyrir þá vitneskju að til margra ára hafði staðið yfir ljósmyndakeppni milli sjómanna á Norðurlöndum sem varð hvatningin að því að fá sjómenn á íslenskum skipum til að keppa við kollega sína á hinum Norðurlöndunum í ljósmyndun. Allt frá því að við hófum þátttöku hefur þátt- takan verið góð í íslensku keppninni og einnig hefur okkar sjómönnum vegna vel í Norðurlandakeppninni sem árlega fer fram í einu af keppnislöndunum í byrjun febrúar ár hvert. Enn og aftur blásum við til keppni og hvetjum alla sjómenn sem munda myndavélar sínar að skoða myndasafnið sitt og taka stóra skrefið og taka þátt. Reglur keppninnar eru afar einfaldar. Allir starfandi sjómenn, sem og sjómenn sem hafa lok- ið starfsferli sínum hafa rétt til að taka þátt. Myndefnið má vera hvað sem er hvort heldur teknar á landi, láði eða legi. Myndirnar þurfa ekki endilega að vera teknar á síðasta ári heldur má grafa vel í myndasafninu. Löglegur eigandi myndar telst vera sá aðili sem ýtir á afsmellarann á myndavélinni og telst því vera ljós- myndarinn. Myndum má ekki breyta meira en nauðsynlegt telst. Það sem fell- ur undir það er litaleiðréttingar, kroppun og afrétting en ekki má skeyta saman tveimur myndum í eina með aðferðum Photoshop. Hver ljósmyndari má senda inn allt að 15 ljósmyndir í hvaða formi sem er en reyndar hafa einungis stafrænar myndir borist á síðustu árum. Óskað er eftir að allar stafrænar myndir séu send- ar í mestu upplausn. Ljósmyndarar eru beðnir um að gefa myndum sínum nafn. Þá þarf að liggja fyrir á hvaða skipi viðkomandi er á eða hafði verið á séu viðkomandi kom- inn í land. Skilafrestur er til 30. nóvem- ber n.k. og skulu stafrænar myndir send- ar á umsjónarmann keppninnar, Hilmar Snorrason, á netfangið iceship@heims- net.is en aðrar myndir sendast á Ljósmyndakeppni sjómanna FFSÍ v/Sjómannablaðsins Víkings Grensásvegi 13 108 Reykjavík Norðurlandaljósmyndakeppnin mun að þessu sinni fara fram á Íslandi í byrj- un næsta árs. Þröstur Njálsson tók þessa mynd sem komst í 15 mynda úrslit Íslandskeppninnar í fyrra og þar af leiðandi í Norðurlandakeppni sjómanna í febrúar síðastliðnum þar sem eigendur bestu myndanna fá höfðingleg verðlaun. Ljósmyndakeppni sjómanna 2016

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.