Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 8
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@ frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is FJölmiðlar, eins og aðrir, eiga alltaf að stefna að því að gera betur. Þar hvöttu jafnvel keppinaut- ar hver annan. Evr- ópa fylgd- ist með á skjáum af ýmsum stærðum og gerðum. Guðmundur Gunnarsson ggunnars @frettabladid.is Ég er þjónn. Auðmjúkur þjónn drottningar íþróttanna, frjálsíþróttanna. Í síðustu viku sýndi drottningin fegurð sína sem aldrei fyrr. Mögulega er ég blindaður af fegurðinni, en ég verð að koma í orð hve stoltur og þakklátur ég er að fá að leggja henni lið. Um götur borgarinnar hlupu þúsundir í Reykja­ víkurmaraþoni, hinar ýmsu vegalengdir. Allt frá skemmtiskokki og upp í opinbert Íslandsmeistaramót í maraþoni. Ekki aðeins sáum við þar fallega íþrótt með ýmsum blæbrigðum, heldur sáum við líka fal­ legt hjartalag íþróttafólksins og stuðningsfólks þess, þar sem þessi íþróttaviðburður er orðinn ein mikil­ vægasta tekjulind góðgerðarsamtaka, fallegustu og mikilvægustu verkefna sem hugsast getur. Úti í München öttu kappi fremstu konur og karlar Evrópu í heiðarlegri og fallegri keppni í ótal greinum, á Evrópumeistaramóti. Nágrannaþjóðir tókust á, án vopna. Þar hvöttu jafnvel keppinautar hver annan. Evrópa fylgdist með á skjáum af ýmsum stærðum og gerðum. Við Íslendingar líklega heppnust allra því norður á Akureyri sat Sigurbjörn Árni Arngrímsson og lýsti þessari veislu þannig að allt frá Þingeyjarsýslum til Þorlákshafnar lyftust áhorfendur upp úr sófunum. Vonandi þannig að sem flestir taka í kjölfarið sjálfir fram skóna! Að þessu sögðu leyfi ég mér að færa ykkur, kæru lesendur, mikilvæg skilaboð frá drottningunni fögru. Skilaboð haustsins, við upphaf íþróttastarfs. Nú segir drottningin og lái henni hver sem vill: „Leyfið börnunum að koma til mín! Hvetjið unglingana til að koma til mín! Hvetjið ykkur sjálf og aðra fullorðna til að stíga upp úr stól og sófa og koma til mín! Leyfið þeim að hlaupa, stökkva og kasta, finna sína grein, sem hentar best. Leyfið þeim að iðka íþrótt þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Íþrótt þar sem enginn er á bekknum, því í einstaklings­ íþróttum keppir hver fyrst og fremst við sjálfan sig, keppist við að bæta sjálfan sig í sinni grein á sínum forsendum!“ n Leyfið börnunum að koma til mín Freyr Ólafsson formaður Frjáls­ íþróttasambands Íslands Sigurður K. Kolbeinsson ræðir við ýmsa þekkta og óþekkta Íslendinga um lífið og tilveruna og sagðar eru skemmtilega sögur og frásagnir aftur í tímann sem mörgum kunna að þykja skemmilegar. Laugardaga kl. 10.00 www.hotelbokanir.is/lifid-er-lag-hladvarp og á Spotify Gilbert úrsmiður er næsti gestur hlaðvarpsins. ser@frettabladid.is Tvö hundruð plús Það er á þessum árstíma, að áliðnum slætti, sem Íslendingar setjast niður og deila sögum af dýrtíðinni hringinn í kringum landið. Ekki einasta kostar það á að giska annan arminn og báða fætur að festa sér bílaleigubíl í viku eða svo, heldur er verðlagn­ ingin á hótelgistingu í slíkum hæðum að jafnvel Íslendingar hafa aldrei séð annað eins. Og því kynntust reykvísku hjónin sem renndu sér norður á Akureyri upp úr miðjum júlí – og ætluðu, svona í nafni rómantíkurinnar, að gista eina nótt í bænum. Þau skoðuðu bókunarsíður og sáu sér til hrellingar að gistiverðið var út úr öllu korti, ekki síst síðasta her­ bergið sem var í boði þá nóttina á Hótel KEA, en það var verðlagt á ríflega 200 þúsund krónur. Verndartollarnir Annars eru það ekki bara einka­ fyrirtækin í landinu, í ferðaþjón­ ustu eða öðrum atvinnugreinum, sem halda uppi verðinu, því ríkis­ valdið er oft og tíðum enginn eftirbátur í þeim þrýstingnum. Álögur á matvæli eru þar áber­ andi – og nægir að nefna nýlegt dæmi af himinháum verndar­ tollum á frönskum kartöflum sem ekkert lát er á, þótt engar franskar séu lengur framleiddar á Íslandi. En við skulum bara samt vernda okkur fyrir þessum áng­ skotans innflutningi. n Það er engin leið að átta sig á áfallinu sem samfélagið á Blönduósi varð fyrir í vikunni. Í kjölfar harmleiks sem skildi fjölskyldur eftir í slíkum sárum að fæst okkar munu nokkurn tímann geta náð utan um sorgina sem þau upplifa. Landsmenn hafa sameinast um að senda hlýja strauma norður í land. Það hefur sam­ heldin þjóð gert bæði vel og fallega síðustu daga. Eins og hún á vanda til. Það hefur skapast nokkur umræða um þátt fjölmiðla í málinu öllu. Hvernig fréttaflutningi af harmleiknum var háttað. Við þessar erfiðu aðstæður. Aðstandendur, mitt í óbærilegri sorginni, sáu sig knúna til að senda frá sér yfirlýsingu þar sem aðgangsharka fjölmiðla var gagnrýnd. Það gerðu þau örugglega ekki af léttúð eða án ástæðu. Okkur fjölmiðlafólki ber að taka þessi orð til okkar og fara yfir vinnubrögðin. Gaumgæfa hvort þau samræmist þeim gildum og reglum sem við störfum eftir. Fjölmiðlar eru ekki hafnir yfir gagnrýni. Frekar en aðrar stoðir samfélags­ ins. Þótt það sé flókið og vandmeðfarið að segja fréttir af átakanlegum atburðum þá verða fjöl­ miðlar að gæta þess í hvívetna að sýna nær­ gætni. En svo getum við líka velt því fyrir okkur í fúlustu alvöru hvort fjölmiðlar eiga yfirleitt að fjalla um atburði af þessu tagi. En þá verðum við líka að muna að fjölmiðlar hafa ákveðnum skyldum að gegna á slíkum stundum. Þeir brúa jafnan bilið á milli lögreglu og almennings. Með því að birta útgefnar til­ kynningar. Og það er mikilvægt. En fjölmiðlar eiga ekki bara að framlengja skilaboð stjórnvalda. Þeir eiga líka að leita svara við spurningum og afla upplýsinga sem kunna að eiga erindi við almenning. Það er líka mikil­ vægt. Málið er bara að það er ekki alltaf auðvelt að feta þennan þrönga stíg upplýsingaöflunar og ­miðlunar án þess að fara offari. Sérstaklega ekki í jafn viðkvæmum málum og hér um ræðir. En ef það gerist, og okkur verður á í mess­ unni, þá eigum við óhikað og undanbragðalaust að biðjast afsökunar. Upplifun aðstandenda á Blönduósi bendir til að það hafi einmitt gerst í þessu tilviki. Því vil ég að lokum biðja alla aðstandendur afsökunar á framgöngu fjölmiðla í þessu máli. Af auðmýkt. Það er það minnsta sem við getum gert. Fjölmiðlar, eins og aðrir, eiga alltaf að stefna að því að gera betur. n Afsökun SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 26. ágúst 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.