Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 23
Á einum degi getum við komið hugmynd í framkvæmd, hannað vöru og búið til hugbúnað. Christophe Lecomte Stöðug nýsköpun á sér stað hjá Össuri þar sem verið er að þróa nýjar vörur og betrumbæta eldri vörur á stoðtækjamarkaði. Þróunin tekur aldrei enda því loka- markmiðið er að búa til stoð- tæki sem auka hreyfanleika og almenn lífsgæði. Christophe Lecomte og Ást- mundur Níelsson starfa báðir við vöruþróun hjá Össuri. Christophe er VP Biochemical Solutions og Ástmundur er VP Bionic Solutions. „Ég vinn við rannsóknir og þróun á mekanískum stoðtækjum. Við erum bæði að þróa nýjar vörur og viðhalda þeim vörum sem eru nú þegar komnar á markað. Við framleiðum meðal annars silíkon- hulsur, gervihné, fætur og í raun öll stoðtæki fyrir útlimi neðri hluta líkamans,“ segir Christophe. „Á meðan Christophe sér um mekanísku vörurnar sé ég um þær tölvustýrðu,“ segir Ástmundur. „Við framleiðum tölvustýrða gervifætur og gervihné. Núna nýlega kom á markað Power Knee gervihnéð sem hefur verið mjög vel tekið og við höfum vart undan að framleiða. Hnjáliðurinn er í raun rafmótor þannig að nú höfum við möguleika á að veita notand- anum enn meiri aðstoð, ekki einungis stuðning heldur getum við bætt upp þann vöðvakraft sem notandinn tapar við aflimun. Þetta hné getur til dæmis hjálpað þér að ganga upp stiga á eðlilegan hátt skref fyrir skref. Það hjálpar notandanum að standa upp og við göngu. Það knýr notandann áfram, alveg eins og heilbrigður fótur gerir.“ Christophe nefnir einnig tvær nýjar vörur sem hans deild þróaði og setti á markað fyrir rúmlega ári síðan. Connect TF og Balance J heita vörurnar og Christophe segir þær hafa skipt sköpun fyrir notendur þeirra. „Það sem er áhugavert við þessar vörur er að þær eru sérstaklega hannaðar fyrir notendur með skerta hreyfigetu. Oft þegar fólk hugsar um Össur þá tengir það fyrirtækið við stoðtæki fyrir íþróttafólk, eins og til dæmis hlaupafætur. En þessar vörur eru hannaðar fyrir eldri einstaklinga, með það í huga að bæta lífsgæði þess, enda er meirihluti aflimaðra í heiminum eldra fólk. Við nýtum okkar þekkingu og tækni til þess að þróa stoðtæki fyrir alla aldurs- hópa,“ segir hann. „Connect TF er hulsa sem er þeim kostum gædd að fólk getur fest á sig gervifótinn meðan það situr og Balance J er fótur sem er sérhannaður út frá þörfum eldra fólks. Fyrir eldri notendur er gríðarlega mikilvægt að geta setið þegar gervifóturinn er settur á. Í síðustu viku fréttum við af aldraðri konu í Bandaríkjunum sem grét af því hún gat fest fótinn á sig sjálf. Þetta hljómar kannski ekki merkilegt, en ef fólk á erfitt með að fara í skó eða sokka, þá er hægt að ímynda sér hvað það skiptir miklu máli að geta fest gervifótinn á sig.“ Vörur fyrir breiðan hóp Ástmundur segir að áherslan í vöruþróuninni sé ekki endilega að búa til f lóknari vörur. „Tæknin á bak við vöruna getur verið flókin en varan þarf að vera einföld í notkun. Markhópur okkar er venjulegt fólk sem hefur lent í áföllum og hefur kannski engan áhuga á tækni. Markmið okkar er að gera vörurnar þægi- legar í notkun til að flækja líf þess sem minnst,“ segir hann. „Það sem Christophe talaði um lýsir breiddinni í notendahópnum. Við höfum verið að hanna vörur með áherslu á eldra fólk og fólk með mjög takmarkaða hreyfigetu, en á hinn bóginn erum við líka að hanna vörur fyrir íþróttafólk sem keppir á Ólympíuleikum fatlaðra. Breiddin er mjög mikil og við erum að þróa mjög sérhæfðar lausnir fyrir þessa hópa.“ Ástmundur segir að það sé í raun mögnuð staðreynd að íslenskt fyrirtæki skuli vera í fararbroddi á stoðtækjamarkaði. „Við erum búin að byggja upp stærstan hluta þróunardeildar Össurar hér í Reykjavík með alla þessa sérhæfingu og þekkingu á stoðtækjum, sem síðan nýtist um allan heim. Við erum með sérhæft starfsfólk frá fimmtán löndum í þróunardeildinni hér í Reykjavík. Við búum yfir mikilli sérhæfingu og reynslu en á sama tíma erum við dugleg að ráða inn unga og efnilega verkfræðinga til starfa. Við tökum mikið af nemum frá háskólum bæði hér á landi og erlendis frá til að vinna að verkefnum tengdum vöruþróun og nýsköpun. Þetta hefur reynst okkur góð leið til að finna efni- lega framtíðarstarfsmenn. Margt af okkar erlenda starfsfólki hér á Íslandi kom til okkar í gegnum svona starfsnám.“ Christophe tekur undir þetta og segir að einhverjir gætu haldið að það væri ekki mikið í boði fyrir vöruhönnuði hér á Íslandi. „Vegna þeirrar þekkingar sem finnst innan fyrirtækisins hér á landi er hér nóg af tækifærum. Við erum með fólk sem þróar mekan- ísku hlutina úr ýmiss konar efnum eins og koltrefjum, plastefnum og málmum og á sama stað er fólk að vinna að því að hanna samsetning- arnar og hugbúnað fyrir stoð- tækin. Vörurnar eru framleiddar og settar saman á sama stað,“ segir hann. „Kosturinn við þetta er að við getum unnið hraðar en margir aðrir. Á einum degi getum við komið hugmynd í framkvæmd, hannað vöru og búið til hugbúnað. Það eru ýmsir möguleikar hér.“ „Til viðbótar við þetta langar mig að segja að við höfum mikinn stuðning yfirstjórnar og eigenda fyrirtækisins. Okkur er treyst til að fjárfesta í nýrri tækni og kanna nýjar lausnir. Við fáum að útfæra hugmyndir okkar og erum leiðandi í nýsköpun,“ bætir Ást- mundur við. Líf án takmarkana Hönnun á vörum Össurar felur í sér samvinnu margra hópa. Markaðssérfræðinga, stoðtækja- fræðinga, framleiðsludeildar og notenda. „Það eru margir sem koma að vöruþróunarverkefni og það þarf alltaf að gera málamiðlanir. Það er ekki til hinn fullkomni fótur en það er alltaf endatakmark okkar. Við fáum mikið af upplýsingum frá notendum til að innleiða í hönnun okkar. Við leggjum áherslu á að fá notendur til að prófa vörurnar til að fá sem víðasta sjónarhornið. Þegar Covid stóð sem hæst flugum við notendum hingað til okkar með mikilli fyrirhöfn til að geta haldið áfram að fá þá til að prófa vörurnar. Við getum ekki sann- reynt vörurnar án þess að prófa þær á notendum,“ segir Ást- mundur. „Markaðurinn stefnir að vörum sem samræmast mjög okkar slag- orði sem er Life Without Limita- tions [Líf án takmarkana]. Við framleiðum vörur sem eru hann- aðar fyrir krefjandi aðstæður, til dæmis vatnsheldar vörur sem þola tærandi umhverfi eins og sund, sjó og sand. En númer eitt, tvö og þrjú hjá okkur er að tryggja öryggi not- andans. Þeir eru háðir vörunum og það er ekkert rými til að gefa afslátt af öryggi þeirra. Varan þarf að virka 100% alla daga út líftíma vörunnar, sem getur verið þrjú til sex ár. Ábyrgð okkar sem fram- leiðanda er því gríðarleg. Bæði út frá kröfunum sem settar eru sem framleiðandi lækningatækja og út frá kröfum notendanna.“ Christophe tekur við: „Það er erfitt að hanna stoðtæki. Þetta er eitthvað sem fólk notar daglega, stoðtækið má ekki vera of þungt, ending skiptir miklu máli og að það gefi ekki frá sér hljóð, það vill enginn láta ískra í sér þegar hann gengur. Við erum að reyna að búa eitthvað til sem líkir eftir fótlegg. Það er ekki auðvelt. En ljósi punkt- urinn er þegar við sjáum einhvern nota vöruna okkar. Ég held að allir verkfræðingarnir, hönnuðirnir og framleiðslufólkið geti tekið undir það með mér að við finnum fyrir stolti þegar við sjáum einhvern vinna til gullverðlauna, eða bara ganga úti á götu með gervifót frá okkur. Þá vitum við að við höfum gert eitthvað gott.“ n Nýsköpun með þarfir notandans að leiðarljósi Christophe Lecomte og Ástmundur Níelsson vinna að því að þróa og betrumbæta stoðtæki ásamt öflugu sam- starfsfólki hjá Össuri. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR Ótvíræð forysta „Forysta Össurar á sviði hugverkaréttinda í stoð- og stuðningstækjaiðnaðinum er ótvíræð og endurspeglar stöðuga áherslu á nýsköpun og þróun innan fyrirtækisins. Við erum afar stolt af að eiga yfir 2.000 einkaleyfi og 600 vörumerki og erum í öðru sæti á lista Alþjóðlegu hug- verkastofnunarinnar (WIPO) yfir flest einkaleyfi á heims- vísu í flokki almennrar hreyfi- hjálpartækni.” Tatjana Latinovic, VP Intellectual Property kynningarblað 9FÖSTUDAGUR 26. ágúst 2022 NÝSKÖPUN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.