Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 24
Kortlagning sprotafyrir- tækja með tengsl við HR fór fram á fyrri hluta ársins. Í verkefninu voru dregin fram yfir sextíu nýsköpunar fyrirtæki með bein tengsl við skólann. „Háskólinn í Reykjavík er upp- spretta og driffjöður nýsköpunar og leggur áherslu á að efla frum- kvöðlafærni. HR skapar tækifæri fyrir hagnýtingu þekkingar og tækni með rannsóknum, kennslu og tengslum við atvinnulíf og samfélag,“ segir í stefnu Háskólans í Reykjavík. Kortlagning sprotafyrirtækja með tengsl við HR fór fram á fyrri hluta þessa árs. Verkefninu var ætlað að ná yfir þau fyrirtæki sem stofnuð voru af nemendum eða kennurum á meðan á námi þeirra eða störfum við HR stóð, frá stofnun skólans árið 1998. Í verkefninu voru dregin fram yfir sextíu nýsköpunarfyrirtæki með bein tengsl við skólann. Flest þessara fyrirtækja spretta upp úr lokaverkefnum nemenda og/eða rannsóknum starfsfólks og er það í takti við þá stefnu skólans að vera leiðandi í rannsóknum, sam- hliða því að vera öflugur nýsköp- unarháskóli. Alþjóðlegar úttektir staðfesta hversu farsæl þessi stefna hefur reynst HR og mannauðinum þar, bæði starfsfólki og nemendum, því samkvæmt lista Times Higher Education er HR til að mynda 12. besti háskóli í heimi með færri en 5.000 nemendur og í 1. sæti háskóla á heimsvísu þegar kemur að fjölda tilvitnana í vísinda- greinar. Ný tækni, nýjar vörur, ný fyrirtæki Í Háskólanum í Reykjavík er leitast við að veita nemendum góðan skilning á nýsköpun til að hvetja þá til að verða frum- kvöðlar og skapa störf í fram- tíðinni, til dæmis með stofnun sprotafyrirtækja. Stærsta árlega námskeiðið sem kennt er við HR er þannig „Nýsköpun og stofnun fyrirtækja“ og taka nemendur úr f lestum deildum skólans þátt í því á þremur vikum við lok fyrsta eða annars námsárs. Á námskeiðinu hefur fæðst fjöldi hugmynda sem hafa svo orðið að nýjum fyrirtækj- um, nýjum vörum og nýrri tækni. Einnig er stöðugt hvatt til þess að nemendur HR vinni að verkefnum í samstarfi við fyrirtæki, enda náið samstarf við atvinnulífið og þverfagleg samvinna meðal áherslu atriða í stefnu skólans. n Í Háskólanum í Reykjavík er leitast við að veita nemendum góðan skilning á nýsköp- un til að hvetja þá til að verða frumkvöðlar og skapa störf í framtíðinni, til dæmis með stofnun sprotafyrirtækja. Sextíu sprotafyrirtæki með rætur í HR Hjá fyrirtækinu starfar öflugur hópur vísindamanna, verkfræðinga, heil- brigðisstarfsfólks og viðskiptafræðinga. Evolytes vinnur að því að hámarka árangur nemenda og umbylta kennslu. Karl Ægir Karlsson á rannsóknastofu sinni í HR. Halldór Kristjánsson framkvæmdastjóri og einn stofnenda Myrkurs Games. Myrkur Games Metnaðarfullur hasar ævintýraleikur Myrkur Games var stofnað árið 2016 af þremur nem- endum úr Háskólanum í Reykjavík, þeim Halldóri Snæ Kristjánssyni, Daníel Arnari Sigurðssyni og Friðriki Aðalsteini Friðrikssyni. Fyrirtækið spratt upp úr sam- starfi þeirra í þriggja vikna áfanga í leikjagerð og síðar lokaverkefni í sýndarveruleika. Hlutverk fyrirtækisins er að þróa metnaðarfullan hasar ævintýraleik fyrir leikja- og borðtölvur. Myrkur Games er í örum vexti og er með yfir 35 starfsmenn við þróun leiksins auk fjölda verktaka. Fyrirtækið á í samstarfi við alþjóðlegan útgefanda sem sér um markaðssetningu og dreifingu leiksins. Hefur út- gefandinn meðal annars gefið út hina geysivinsælu Metro-seríu, Kingdom Come: Deliverance, Dead Island og Saints Row. „Á næstu árum ætlum við að byggja upp þekkingu og reynslu á fjölmörgum sviðum leikjagerðar. Þá mun Myrkur Games halda áfram vexti um komandi ár og takast á við fleiri verkefni og tölvuleiki, sambærilega við það sem fyrirtækið vinnur að í dag,“ segir Halldór Kristjánsson framkvæmdastjóri og einn stofnenda fyrirtækisins. 3Z Lyfjaþróun með sebrafiskum gegn ADHD og svefnleysi Lyfjaþróunarfyrirtækið 3Z var stofnað árið 2008 og sprettur upp úr öflugu rannsóknaumhverfi innan tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík, og er bakgrunnur stofnenda í taugasálfræði og tauga- vísindum. Fyrirtækið var stofnað árið 2008 af Karli Ægi Karls- syni, prófessor við tækni- og verkfræðideild HR, og Haraldi Þorsteinssyni, í samstarfi við HR. Við það starfa enn í dag bæði og kennarar og nemendur við HR. Rannsóknir sem í fyrstu voru grunnrannsóknir reyndust hafa mikið hagnýtt gildi og eru lyf við ADHD og svefnleysi fyrstu vörur 3Z varðar með einkaleyfi. „Sérhæfing fyrirtækisins felst í endurskilgreiningu þekktra miðtaugakerfislyfja – oft nefnt „drug re- purposing“ á ensku. Í stuttu máli er búið til líkan af miðtaugakerfissjúkdómum í sebrafiskum, þekkt miðtaugakerfislyf prófuð og síðan reynt að finna nýja notkun fyrir þau. Aðferðirnar eru mun ódýrari, hraðvirkari og mannúðlegri en þær sem mest eru notaðar í dag,“ segir Karl. Með því að markaðssetja þessa þróunaraðferð er framtíðarsýn 3Z að verða leiðandi í endurskil- greiningu miðtaugakerfislyfja á heimsvísu. Nýverið tryggði fyrirtækið sér fjármögnun upp á 265 milljónir króna sem leidd er af reynslumiklum fjárfestum í lyfja- og tæknigeiranum. Verður hún nýtt til að ljúka forklínískum rannsóknum á tilraunalyfjum 3Z við ADHD og svefnleysi. Evolytes Námsleikir til að bylta stærðfræðinámi barna Evolytes var stofnað árið 2017. Fyrirtækið varð til við þverfaglegar rannsóknir í sálfræði og tölvunarfræði í hugbúnaðarkerfinu Aperio við Háskólann í Reykjavík. Þriggja ára rannsóknir á áhrifum styrkingarhátta í tölvuleikjum leiddu til þróunar námsleiks sem nýtir blöndu styrkingarhátta til að hámarka áhuga og ár- angur barna í stærðfræði. Rannsóknin sýndi að börn lærðu að meðaltali fjórfalt hraðar í námsleiknum og börn með undirliggjandi námsörðugleika lærðu allt að tólf sinnum hraðar. Hlutverk fyrirtækisins Evolytes er að umbylta stærðfræðinámi með skemmtanavæddu, gagna- drifnu og einstaklingsmiðuðu námskerfi, sem byggir á leiðandi kenningum og rannsóknum í sálfræði, menntavísindum og tölvunarfræði til að hámarka árangur nemenda í stærðfræði. Viðskiptavinir Evolytes á síðasta skólaári voru alls 2.800 nemendur í 43 skólum. „Framtíðarsýn okkar varðandi fyrirtækið er að Evolytes hámarki árangur nemenda og umbylti kennslu með rauntíma gagnagreiningu og yfirsýn. Eins að námskerfið valdefli nemendur, kennara og menntayfirvöld með rauntíma gagnagreiningu,“ segir Mathieu G. Skúlason, framkvæmdastjóri Evolytes og forritari. NeckCare Nýsköpun í heilbrigðistækni NeckCare er nýsköpunarfyrirtæki í heilbrigðistækni, sem stofnað var árið 2019 af dr. Eyþóri Kristjánssyni og Þorsteini Geirssyni. Markmið fyrir- tækisins er að bæta árangur meðferða við stoðkerfissjúkdómum, með þróun á tækni og meðferð sem styður hlutlægt mat og einstaklingsmið- aða endurhæfingu. Frá upphafi hefur félagið starfað með Háskólanum í Reykjavík að rann- sóknum og stutt dyggilega við meistaranema skólans. Íþróttafræðideild HR og NeckCare skrifuðu árið 2020 undir samstarfssamning um rann- sóknir á háls- og höfuðmeiðslum íþróttafólks. Innan íþróttafræðideildar hafa verið gerðar rannsóknir á áhrifum höfuðhögga á íþróttafólk jafnt innan vallar sem utan. Hjá fyrirtækinu starfar öflugur hópur vísindamanna, verkfræðinga, heilbrigðisstarfsfólks og viðskiptafræðinga, sem vinnur bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum. Viðskiptavinir félagsins eru bæði innlendir og erlendir. Dótturfélag þess, NeckCare Enterprises Inc., er staðsett í Winston-Salem í Norður-Karólínu og þaðan er sölu- og markaðsstarfi félagsins í Banda- ríkjunum stjórnað. „Einkaleyfisvernduð tækni gerir okkur mögulegt að veita fagaðilum á heilbrigðissviði aðstoð við hlutlægt mat á hálsskaða og viðeigandi endurhæfingu þeirra sjúklinga sem um ræðir, svo sem þeirra sem hlotið hafa endurtekna og langvarandi hálsáverka. Hátæknivörur NeckCare eru einkaleyfisverndaðar í þremur heimsálfum og hafa vakið mikla athygli erlendis,“ segir Þorsteinn Geirsson, framkvæmdastjóri félagsins. 10 kynningarblað 26. ágúst 2022 FÖSTUDAGURNÝSKÖPUN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.