Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 26
_ CUSTOMER SERVICE LEAD W E A R E R EC R U I T I N G O U T STA N D I N G S P EC I A L I ST S A N D D E V E LO P E R S _ GENERAL APPLICATIONS _ QUALITY ASSURANCE ENGINEERS _ SOFTWARE ENGINEERS Tern Systems are a trusted provider of Air Traffic Control solutions. We are looking for collaborators with great talents and a passion for solving meaningful problems to join us in building a new generation of Air Traffic Control systems We are a diverse company with over a third of our staff hailing from outside of Iceland, an incredible 16 nationalities in total. Our homegrown and foreign talent work with Air Traffic Navigation industry experts to create solutions that appeal far beyond our borders _ A P P LY @ jobs@tern.is_ E N Q U I R I E Swww.tern.systems SideWind er að þróa vind­ túrbínur sem nýta hliðar­ vind til rafmagnsfram­ leiðslu fyrir flutningaskip. starri@frettabladid.is Nýsköpunarfyrirtækið SideWind er í eigu hjónanna Óskars Svavars- sonar og Maríu Kristínar Þrastar- dóttur en þau vinna að þróun umhverfisvænnar lausnar fyrir f lutningaskip. Fyrirtækið stefnir að framleiðslu vindtúrbína sem nýta þann hliðarvind, sem annars færi til spillis á hafi úti, til raf- magnsframleiðslu. „Hugmyndin er að nýta gamla 40 feta gáma sem ekki er hægt að nýta lengur til f lutninga, taka úr þeim hlið- arnar, koma ákveðinni tegund af vindmyllu lárétt inn í gámana og tengja hana við rafal sem er staðsettur í hverjum gámi,“ segir Óskar, en hugmyndin kviknaði hjá honum fyrir um 35 árum síðan. „Þessir vindmyllugámar eru svo hífðir eins og hver annar gámur sem efsta lag á gámasamstæður f lutningaskipa. Þar munu vindtúr- bínurnar ná að nýta þá hliðar- vinda sem eru á hafi úti. Áhugi er fyrir að nýta túrbínurnar einnig á landi þar sem auðvelt er að flytja þær á milli staða.“ María segir að meðalstórt skip á Íslandi geti sparað 2-300 tonn af olíu á ári með 20 slíkum túrbínum. „Með hækkandi olíuverði hækkar þessi sparnaður í krónum talið. Einnig myndi þetta lækka kol- efnisskatta fyrirtækja. Á Íslandi er einnig skattaívílnum fyrir fyrirtæki sem fjárfesta í grænum lausnum þannig að sparnaður- inn er meiri en bara olían sem sparast.“ Byggt á gamalli hugmynd Hugmyndin fæddist á mennta- skólaárum Óskars fyrir um 35 árum, þegar hann var að rökræða við eðlisfræðikennara sinn um þá hugmynd að byrja aftur að nýta vindinn til að knýja skip áfram. „Hann var nú ekki sammála því og sagði að ég þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur af því. Það væri til nóg af olíu í heiminum.“ Árið 2018 bað María Óskar um að koma með einhverja sniðuga hugmynd til þess að leggja okkar af mörkum í baráttunni við loftslagsbreyt- ingar. „Þá fór ég aftur að hugsa um hugmyndina frá menntaskólaár- unum og hvernig væri hægt að nýta vindinn betur fyrir f lutn- ingaskip. Skipin hafa takmarkað pláss fyrir stór segl og því var hugsunin að nýta þá innviði sem væru til staðar og beisla vindinn með það í huga. Við fórum því í að rannsaka hvort þessi hugmynd væri nú þegar til, sem var ekki og Hliðarvindurinn nýttur til rafmagnsframleiðslu Óskar Svavars- son og María Kristín Þrastar- dóttir eru eig- endur Sidewind. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK sóttum því um einkaleyfi sem við erum komin með á Íslandi og er í vinnslu í öðrum löndum.“ Fyrsta frumgerðin tilbúin Í dag er búið að smíða fyrstu frum- gerðina sem verður prófuð á landi í haust með Verkís, segir María. „Síðan í framhaldinu verður hún prófuð á f lutningaskipi Samskipa. Einnig erum við að fara á fullt í frumgerð tvö sem verður gerð úr endurunnu plasti. Við erum einn- ig komin í stórt samstarfsverkefni með innlendum og erlendum aðilum sem við segjum frá síðar.“ Stuðningsumhverfið gott Þau segjast hafa fengið góðar viðtökur alls staðar og allir séu boðnir og búnir til að aðstoða þau. „Við erum mjög þakklát fyrir að hafa fengið styrk frá Tæknirþóun- arsjóði til þess að útbúa frumgerð- ina, en það hefði verið best að fá styrkinn á styttri tíma en tveimur árum. Við þurftum því að hægja á öllu ferlinu til þess að eiga fyrir frumgerðinni. Einnig var mjög hjálplegt að fá aðstoð frá FabLab Reykjavík við að útbúa þrívíddar- prentaða frumgerð í 1:20 sem fór í vindgöng hjá Háskólanum í Reykjavík. Þá breyttist þetta úr því að vera hugmynd á blaði yfir í áþreifanlegan hlut.“ SideWind er einnig búið að fá framhaldsstyrk frá Tækni- þróunarsjóði til þess að halda áfram með verkefnið næstu tvö árin. „Við vorum einnig valin í átta vikna nýsköpunarhraðal hjá KLAK Icelandic Startups. Þar fengum við góða hjálp í formi fyrirlestra, aðgangi að mentorum, æfingu í að kynna verkefnið og margt f leira. Einnig fórum við með Íslandsstofu til Þýskalands á stærstu orkusýningu í Evrópu og kynntum þar lausnina. Við höfum því góða reynslu af stuðningsum- hverfinu á Íslandi.“ n Vindmylla er sett lárétt inn í gám og tengd við rafal sem er staðsettur þar. 12 kynningarblað 26. ágúst 2022 FÖSTUDAGURNÝSKÖPUN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.