Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 26.08.2022, Blaðsíða 27
 Við höfum meðal annars þróað heima- hjúkrunar- appið Smásögu sem var gert í samvinnu við Heima- hjúkrun á höfuð- borgar- svæðinu. Arna Harðardóttir Origo leggur mikla áherslu á nýsköpun í starfi sínu og fjárfestir í nýsköpun. Þá styður fyrirtækið við sprota­ umhverfið með ýmsum hætti svo sem með aðkomu sinni að rekstri KLAK – Icelandic Startups. Origo tekur þátt í verkefnum Stafræns Íslands. Má þar nefna að Origo hefur undanfarin ár unnið meðal annars við stafrænt öku­ nám, stafrænt veðbókarvottorð, stafrænt sakavottorð og tengingu á stofnunum við Strauminn. „Við höfum undanfarin ár lagt mikla áherslu á að skapa umhverfi innan Origo sem stuðlar að nýsköpun,“ segir Soffía Kristín Þórðardóttir, vörustjóri hjá Origo. „Við höldum reglulega nýsköp­ unardaga Origo og höfum prófað okkur áfram með því að reka eins konar tilraunastofu í vöruþróun, svokallað Product Labs fyrir sprotaþróun.“ Fjárfest í nýsköpun Origo fjárfestir í nýsköpun með ýmsum hætti. „Við gerum það bæði innan fyrirtækisins með því að leggja áherslu á ný verkefni, taka góðar hugmyndir og láta á þær reyna, búa til teymi utan um þær og þróum vörur. Við höfum markvisst undanfarin ár unnið að því að auka vægi eigin vöru­ þróunar innan Origo; en áður var áherslan aðallega á að vinna í útseldum verkefnum með við­ skiptavinum okkar og ekki endi­ lega að selja okkar eigin lausnir. Ýmsar hugmyndir spruttu upp hér innandyra, meðal annars á sviði ferðatækni, gæðalausna og heilbrigðislausna. Við stofnuðum í rauninni sprotateymi inni í hug­ búnaðarlausnum Origo og síðar varð það að sérvöru, sérdeild eða sérfélagi og markmiðið er að unga út hugmynd yfir í nýjar lausnir eða ný fyrirtæki. Jafnhliða þessu höfum við fjár­ fest í sprotafyrirtækjum sem hafa Origo í fararbroddi í stafrænni vegferð Kjartan Hans- son, forstöðu- maður staf- rænna lausna, Arna Harðar- dóttir, sölu- og markaðsstjóri Heilbrigðis- lausna og Soffía Kristín Þórðar- dóttir, vöru- stjóri hjá Origo. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK verið með hugmyndir sem eiga samleið með hugmyndum okkar eða sem við höfum trú á og teljum að við getum tekið lengra.“ Samstarf við KLAK Origo styður við sprotaumhverfið meðal annars með aðkomu sinni að rekstri KLAK – Icelandic Start­ ups. „Origo er stærsti hluthafinn í KLAK – Icelandic Startups sem hefur það markmið að fjölga sprotafyrirtækjum á Íslandi,“ segir Soffía, sem á þessu starfsári er for­ maður stjórnar KLAK. „Origo styður líka beint við ákveðin verkefni KLAK. Við erum í dag bakhjarlar í Snjallræði sem er samfélagshraðall sem styður við teymi sem vinna að lausnum sem styðja við Heimsmarkmið Sam­ einuðu þjóðanna. Slíkar lausnir geta til dæmis snúið að heilbrigðis­ þjónustu, jafnréttismálum eða velferðartækni. Starfsfólk okkar er líka ment­ orar í hröðlum á vegum KLAK; við tökum virkan þátt í starfi KLAK og reynum að leggja okkur fram við að aðstoða frumkvöðla við að láta hugmyndir sínar verða að veruleika og verða að flottum fyrirtækjum.“ Stafræn vegferð mikil áskorun Origo hefur verið í fararbroddi allt frá árdögum hinnar stafrænu umbreytingar og starfsmenn þekkja allar hliðar hennar ofan í kjölinn og sérfræðingar fyrir­ tækisins lifa og hrærast í nýjustu tæknilausnunum. Stafræn vegferð er ein stærsta áskorun fyrirtækja og stofnana í dag og þegar vel er að verki staðið skapast ótal tæki­ færi til að umbreyta starfseminni til hins betra og skara fram úr. „Við viljum vera númer eitt fyrir viðskiptavininn í þessari vegferð og erum búin að fjárfesta gríðar­ lega mikið í henni, meðal annars í mannskap hjá okkur síðustu ár til vinna að því að þjónusta viðskiptavini Origo og viðskipta­ vini viðskiptavina okkar betur. Við höfum verið að standa okkur gríðarlega vel í þessum verkefnum fyrir stofnanir og fyrirtæki,“ segir Soffía. Fjölbreytt verkefni Kjartan Hansson er forstöðu­ maður stafrænna lausna. Hann segir að það sem horft er helst á hjá Origo varðandi stafræna vegferð sé að einfalda fólki lífið; að veita þjónustu til þeirra sem þarfnast hennar á þeim tíma sem hentar hverjum og einum. „Við aðstoðum stofnanir og fyrirtæki við að fara í sína stafrænu vegferð; að staf­ væða þeirra þjónustuvefi, ferla og umsóknir. Einnig þarf að tryggja að aðgengismál séu í lagi.“ Origo tekur þátt í verkefnum Stafræns Íslands og hefur til að mynda komið að stafrænuvæðingu á ökunámsferlinum, stafrænum veðbókarvottorðum, stafrænum sakavottorðum og tengingu á stofnunum við Strauminn (X­ Road) þar sem tengdar voru 30 stofnanir við Strauminn. Þessa dagana eru sérfræð­ ingar Origo að vinna við nýjan vef vedur. is. Origo hefur undanfarin ár unnið við almannatrygginga­ kerfi Tryggingastofnunar og lenti nýverið í fyrsta sæti í útboði hvað varðar útfærslu á nýju viðmóti á því kerfi. Origo hefur einnig unnið félagaskrá, björgunarskóla og útkallskerfi fyrir Slysavarnafélagið Landsbjörg sem styður við þess stafrænu vegferð. App tengt heimahjúkrun Heilbrigðis­ og velferðarþjónusta samtímans er í síauknum mæli að verða stafræn. Hjá Origo sameina starfsmenn sérþekkingu sína á upplýsingatækni og víðtæka reynslu úr heilbrigðisgeiranum til þess að skapa notendavænar lausnir. Lausnirnar mynda sterkan grunn fyrir heilbrigðis­ og vel­ ferðarþjónustu dagsins í dag og til framtíðar. „Við þróum og þjónustum lausnir fyrir heilbrigðis­ og vel­ ferðarkerfið og leggjum mikla áherslu á að það sé mikil nýsköpun í starfi okkar,“ segir Arna Harðar­ dóttir, sölu­ og markaðsstjóri Heil­ brigðislausna. „Við leggjum áherslu á að vinna með bæði aðilum úr heilbrigðis­ kerfinu og öðrum fyrirtækjum sem eru í sama iðnaði og við. Við höfum meðal annars þróað heima­ hjúkrunarappið Smásögu sem var gert í samvinnu við Heimahjúkrun á höfuðborgarsvæðinu. Það hefur breytt miklu í starfi þeirra sem sinna heimahjúkrun og einfaldað það til muna en á sama tíma aukið öryggi og gæði í þeirri þjónustu sem starfsfólk heimahjúkrunar veitir skjólstæðingum sínum.“ Með notkun á Smásögu appi getur starfsfólk Heimahjúkrunar skráð upplýsingar um skjólstæðinga sína í rauntíma í gegnum snjallsíma og þaðan sendast allar upplýsingar beint í Sögu, sjúkraskrá einstakl­ ings. Heildarlausn fyrir Hrafnistu „Við ákváðum að útvíkka hug­ myndina á bak við Smásögu sem við gerðum með Heimahjúkrun og erum núna að vinna með Hrafnistu. Þar nýtum við sérþekk­ ingu Hrafnistu á rekstri öldrunar­ heimila og sérþekkingu okkar í hugbúnaðargerð og erum að þróa heildarlausn með þeim, sem mun aðstoða þau við að halda utan um alla skráningu á þeirri þjónustu sem þau veita íbúum Hrafnistu. Það mun hafa mikil áhrif á starf öldrunarheimila og auka öll gæði í þeirra þjónustu. Svo höfum við líka verið mjög áhugasöm og spennt fyrir því að þróa lausnir sem auka lyfjaöryggi. Við höfum til að mynda þróað heildarlausn með fyrirtækjunum Þulu og MedEye sem heldur utan um lyfjagjafir frá a til ö og gerir það ferli stafrænt. Þær stofnanir hérna á Íslandi sem hafa tekið upp þá lausn frá okkur eru í miklu forystuhlutverki á heimsvísu hvað varðar lyfjaöryggi.“ n kynningarblað 13FÖSTUDAGUR 26. ágúst 2022 NÝSKÖPUN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.